AGAMBEN UM VOFU EVRÓPUDRAUGSINS

EVRÓPUDRAUGURINN Í NÁTTMYRKRI STRÍÐSÓGNA

Það má vera blindur maður sem ekki sér það upplausnarástand er nú ríkir í heiminum, og einkum og sér í lagi Í sjálfri Evrópu. Stríðið í Úkraínu er augljósasta merkið, en við blasir um leið upplausnarástand í innanlandsstjórnmálum margra aðildarríkja Evrópusambandsins, ekki bara vegna Úkraínustríðsins, heldur líka vegna yfirstandandi þjóðarmorðs í Palestínu, þar sem aðildarríki ESB geta ekki sammælst um aðgerðir og heimurinn horfir á í lamndi óvissu gagnvart ráðalausum stjórnvöldum. Viðbrögð ESB hafa reyndar verið skýr að einu leyti, Leiðtogaráð ESB hefur samþykkt árlega 800 miljarða evra í fjárveitingu til vopnakaupa næstu árin eða áratugina, án þess að bera þessa áætlun undir þjóðþing eða  þjóðarvilja aðildarríkjanna, og án þess að eiga sér nokkurn sameiginlegan her eða herstjórn. Jafnframt hefur sambandið kallað eftir hertum viðskiptaþvingunum gagnvart Rússlandi, sem hafa sýnt sig að bitna mest á þegnum bandalagsins, öfugt við gefin fyrirheit um hernaðarsigur yfir Rússlandi. Engar forsendur hafa verið gefnar fyrir fjármögnun vígbúnaðaráforma ESB, en ljóst er að þær geta ekki orðið aðrar en niðurskurður á félagslegri þjónustu, heilbrigðisþjónustu, menntun og lífeyrisgreiðslum þegna þessa sambands í framtíðinni, Stærstu liðunum í ríkisútgjöldum aðildarríkjanna. Þessar ytri aðstæður hafa valdið pólitískri upplausn í aðildarríkjum ESB og í Bretlandi, þar sem ríkjandi stjórnvöld glata stöðugt meira stuðningi og sum aðildarríkin eins og Ungverjaland, Slóvakía og Rúmenía virðast ráða ferðinni með stöðugum vexti svokallaðra „popúlistaflokka“ er hafna framferði evrópskra stjórnvalda í atburðarás er virðist stefna beint í útbreiðslu hernaðarátaka á heimsvísu. Þýskaland, Frakkland, Holland, Bretland, Ítalía og fleiri burðarríki ESB sjá litróf stjórnmálanna taka stökkbreytingum þar sem svokallaðir „lýðskrumarar“ eða populistar sækja alls staðar í sig veðrið, um leið og öll stjórnmálaumræðan í álfunni útvatnast í orðaskætingi sem aldrei fyrr. Við þessar aðstæður fannst mér viðeigandi að snara ársgömlum blog-pósti ítalska heimspekingsins Giorgio Agambens, sem hann skrifaði í tilefni kosninga til hins svokallaða Evrópuþings. Atburður sem horfinn er í holtaþoku hins pólitíska orðaskaks, en þar sem umtalsverðan kjarna málsins er enn að finna. Hvernig eigum við að skilja eymd evrópskra stjórnvalda við ríkjandi aðstæður? Ég tel að eftirfarandi pistill Agambens sé innlegg í umræðu dagsins, ekki síst í ljósi tilburða svokallaðrar Valkyrjustjórnar til að ýta Íslandi inn í ESB. (Rétt er að taka fram að auk þess að vera einn áhrifamesti heimspekingur samtímans þá gekk Agamben í gegnum lögfræðinám áður en hann hóf heimspekinám. Hann er því sérmenntaður í stjórnlagarétti):





Giorgio Agamben:

Evrópa eða valdníðslan

(„Europa o l‘impostura“, pistill á blogsíðunni „Una voce, Rubrica di Giorgio Agamben“ 20. Maí 2024. Sjá: Giorgio Agamben, Europa o l’impostura – Quodlibet)

Líkur benda til þess að einungis fáir þeirra er um þessar mundir leggja á sig að greiða atkvæði í kosningunum til Evrópuþingsins geri sé fulla grein fyrir merkingu þessa gjörnings. Þar sem þeir eru kallaðir til að kjósa til illa skilgreinds „Evrópuþings“, þá geta þeir að meira eða minna leyti talið sig í  góðri trú um að þeir séu að gera eitthvað sem samsvari kosningum til löggjafarþinga heimalanda sinna. Rétt er að taka strax fram, að sú er alls ekki raunin. Þegar við tölum um Evrópu núna, þá er hinn fjarstaddi veruleiki þeirrar umræðu fyrst og fremst falinn í raunverulegri pólitískri og lögfræðilegri stöðu Evrópusambandsins. Ástæða þess að hér er um raunverulegt brotthvarf að ræða er fyrst og fremst sú staðreynd að öllum brögðum er beytt til að koma í veg fyrir vitundarvakningu um þann sannleika sem er jafn augljós og hann er auðmýkjandi. Hér á ég við þá staðreynd, að út frá stjórnlagarétti er Evrópa ekki til sem slík. Það sem við köllum í daglegu tali „Evrópusambandið“ er tæknilega séð sáttmáli á milli þjóða er varðar einvörðungu alþjóðarétt. Maastricht-sáttmálinn, sem tók gildi 1993 og lagði grundvöllinn að núgildandi formi Evrópusambandsins, felur í sér ýtrasta samkomulag um hina evrópsku sjálfsímynd sem falin er í einföldu samkomulagi stjórnvalda aðildarríkjanna. Þar sem embættismenn Evrópusambandsins voru sér fullkomlega meðvitaðir um þessa lýðræðislegu  brotalöm reyndu þeir með öllum tiltækum ráðum að breiða yfir þennan ágalla með því að setja á dagskrá áformin um svokallaða stjórnarskrá Evrópusambandsins.

Dæmigert er að textinn sem gengur unddir þessu nafni var saminn af skipuðum nefndum embættismanna er störfuðu án nokkurs þjóðlegs umboðs, og var hann samþykktur á ráðstefnu stjórnvalda aðildrríkjanna árið 2004, en síðan felldur með miklum meirihluta atkvæða þegar hann var borinn undir þjóðaratkvæði í Frakklandi og Hollandi 2005. Í ljósi þessarar einhlítu höfnunar, sem í raun ógilti þessa svonefndu stjórnarskrá á einu bretti, þá voru þessi stjórnarskráráform með leynd – eða kannski öllu heldur með skömm – afskrifuð og í stað þeirra saminn nýr alþjóðlegur sáttmáli, hinn svokallaði Lissabon-sáttmáli frá árinu 2007. Ljóst má vera að frá lögfræðilegu sjónarhorni telst þessi sáttmáli ekki vera ígildi stjórnarskrár, heldur enn einn sáttmálinn á milli þjóða, sem í inntaki sínu varðar einungis alþjóðarétt, og sem menn hafa með öllum tiltækum ráðum varast að bera undir þjóðaratkvæðagreiðslur aðildarríkjanna. Það kemur því ekki á óvart að svokallað Evróuþing, sem kjósendum er nú boðið að greiða atkvæði um, sé alls ekkert löggjafarþing, því það hefur engin völd til að setja lög, völd sem eru öll í hendi Evrópuráðsins (European Commission).

Skömmu fyrir uppkomu evrópska stjórnarskrárvandans hafði málið leitt til skoðanaskipta á milli þýsks lögfræðings, Dieter Grimm, sem enginn hefur tortryggt um skilning á lögspekinni, og Jurgens Habermas, sem eins og flestir þeir er skilgreina sig sem heimspekinga, var gjörsneyddur allri lögfræðimenntun. Habermas taldi sig geta endanlega fullgilt stjórnarskrána á grundvelli almenningsálitsins, á meðan Grimm átti þann góða mótleik að fullyrða að ekki væri gerlegt að leggja fram evrópska stjórnarskrá á þeirri forsendu að ekki væri neinni evrópskri þjóð til að dreifa, og því væri ekkert það stjórnlagavald til staðar, er staðið gæti á lögmætum grunni. Ef það er rétt að stjórnarskrárbundið vald byggi á því stjórnlagavaldi er setur því reglurnar, þá eru allar hugmyndir um evrópskt stjórnlagavald hin stóra fjarvera í allri umræðunni um Evrópu.

Ef horft er út frá meintri stjórnarskrár Evrópusambandsins á sambandið sér enga lagalega forsendu. Því er það fullkomlega skiljanlegt að sú pólitíska eining sem ekki er stjórnarskrárbundin, getur ekki sent frá sér pólitískar yfirlýsingar í eigin nafni. Eina birtingarmynd einingarinnar kemur í ljós þegar Evrópa bregst við sem undirsáti Bandaríkjanna með þátttöku í stríðsrekstri sem með engu móti getur samræmst almannahagsmunum og enn síður vilja almennings. Evrópusambandið starfar í dag sem undirsáti NATO (sem með sínum hætti byggir á hernaðarlegum milliríkjasamningi aðildarríkjanna).

Því getum við með kaldhæðnislegum hætti tekið undir þá formúlu sem Karl Marx notfærði sér um kommúnismann, og sagt sem svo að vofa hugmyndarinnar um hið stjórnlagagefandi vald gangi nú ljósum logum um Evrópu, en enginn þori að vekja vofuna til lífsins. Engu að síður er það svo, að einungis slíkt stjórnlagavald gæti fært evrópskum stofunum lögmæti og raunverulegan starfsgrundvöll, en þær eru við núgildandi aðstæður ekki annað en valdníðsla (impostura) ef það er rétt sem orðabókin segir um þetta hugtak: „sá er þvingar aðra til að trúa hlutum sem eru sannleikanum framandi og að athafna sig í samræmi við það“ fremur ekkert annað en valdníðslu (impostura).

Önnur hugmynd um Evrópu verður þá einungis möguleg þegar við höfum rutt þessari valdníðslu úr vegi okkar. Svo hlutirnir séu sagðir beint og tæpitungulaust: ef við viljum í raun og veru hugsa okkur pólitíska Evrópu, þá verður fyrsta verkefnið að leysa Evrópusambandið upp -, eða í það minnsta, vera búin undir þau tímamót sem nú virðast blasa við, sem felast í upplausn þess.

 

Forsíðumyndin er „Valdastólpar samfélagsins“ eftir Georg Grosz frá 1923

HINN KROSSFESTI, HOMO SACER OG JULIAN ASSANGE

JULIAN ASSANGE OG KROSSFESTING Í NAFNI LAGANNA

Daginn fyrir föstudaginn langa felldu breskir dómarar þann úrskurð um kröfu á framsali Julians Assange til Bandaríkjanna, að framsalinu yrði frestað þar til bandarísk stjórnvöld hefðu gefið trúverðuga tryggingu fyrir því að þessi ástralski blaðamaður yrði ekki sviptur rétti sínum á því  sem hann er: ástralskur blaðamaður sem hefur flutt staðfestar fréttir af stríðsglæpum. Dómsúrskurðurinn er að mati Stellu Moris, eiginkonu og lögfræðings Assange, krafa um að skilyrði framsals sé að forsendur þess séu afskrifaðar, allt liður í endalausri orðaflækju um lagabókstafi sem hafa enga merkingu aðra en bókstafinn sjálfan. Þessi dæmalausi málaflutningur, sem staðið hefur í 5 ár á meðan Assange hefur verið haldið í strangri einangrun í öflugasta einangrunarfangelsi Stóra Bretlands í kjölfar sjö ára einangrunar í sendiráði Ekvador í Lundúnum á árunum 2012-2019.

Það er varla tilviljun að æðsti dómstóll Stóra Bretlands skuli kveða upp þennan merkingarlausa dóm daginn fyrir föstudaginn langa. Það var dagurinn sem Pílatus kvað upp dóm sinn yfir Kristi, eins og segir í Guðspjalli Jóhannesar (19, 9-18):

„Pílatus gekk aftur inn í landshöfðingjahöllina og segir við Jesúm: Hvaðan ertu? En Jesús gaf honum ekkertt andsvar. Pílatus segir þá við hann: Talar þú ekki við mig? Veistu ekki að ég hef vald til að láta þig lausan og ég hef vald til að krossfesta þig? Jesús svaraði honum: Ekki hefðir þú neitt vald yfir mér, ef þér hefði ekki verið gefið það að ofan; fyrir því hefur sá meiri synd sem seldi mig þér í hendur. Upp frá þessu leitaðist Pílatus við að láta hann lausan; en Gyðingarnir æptu og sögðu: Ef þú lætur hann lausan, þá ert þú ekki vinur keisarans. Hver sem gerir sjálfan sig að konungi rís á móti keisaranum.

Þegar Pílatus heyrði þessi orð, leiddi hann Jesúm út og settist á dómstólinn, á stað sem heitir Steinhlað, en á hebresku Gabbata… Og hann segir við Gyðingana: Sjá, þar er konungur yðar! Þá æptu þeir: Burt, burt með hann! Krossfestu hann! Á ég að krossfesta konung yðar? Þá svöruðu æðstu prestarnir: Vér höfum engan konung, nema keisarann. Þá seldi hann þeim hann í hendur, til þess að hann yrði krossfestur…"

Lagabókstafur Pílatusar var jafn merkingarlaus og lagabókstafur Stóra Bretlands, en þótt guðspjallamaðurinn Jóhannes hafi kennt Gyðingum um endalokin, þá á það ekki við um alla gyðinga. Síðastliðinn sunnudag birti ég hér endursögn á dæmisögu gyðingsins Franz Kafka um virkni laganna í því undantekningarástandi sem fylgir hinum merkingarlausa lagabókstaf. Sú saga hefur meðal annars orðið kveikja að hugleiðingum gyðingsins Walters Benjamin um „undantekningarástandið“ og lagalega virkni þess á stríðstímum í Evrópu. Báðir þessir höfundar eru meðal helstu áhrifavalda ítalska heimspekingsins Giorgio Agamben, sem byggir heimspekirit sitt, Homo sacer, að stórum hluta á orðum þessara gyðinga. Þar sem ég er þessa dagana á kafi í að klæða þessa merku bók um „Homo sacer“ og örlög hins nakta lífs andspænis formi laganna, í íslenskan búning, þá birti ég hér nú, í tilefni föstudagsins langa, kafla úr öðrum helmingi bókarinnar af þrem, kafla sem einmitt hefur yfirskriftina „Homo sacer“. Merking þessa titils er ekki einföld, enda kostaði það Agamben 211 blaðsíður að skýra merkingu hans. Eftirfarandi kafli er hluti þeirrar skýringar, en bregður líka ljósi á réttarhöldin í Stóra Bretlandi, sem endanlega lúta valdi keisarans, enn eins og fyrir 2000 árum.
Giorgio Agamben:

Homo sacer

Fyrsti kafli annars hluta samnefndrar bókar í útgáfu Einaudi 1995 og 2005, bls 79-89.

Þessi þýðing er enn í vinnslu og því ekki fullfrágengin. Þar sem Agamben birtir tilvitnanir á öðrum tungumálum en ítölsku er það látið standa óbreytt. Víða eru vafamál um þýðingu merktar með ítalska orðinu í sviga til áminningar í yfirlestri. Þær læt ég standa í texta þessum.

1.1. Í ritgerð sinni Sul significato delle parole (Um merkingu orðanna) hefur Festo varðveitt minningu um hugmynd forns rómverks réttar með uppflettiorðunum sacer mons, þar sem eðli helgidómsins (sacralità) er í fyrsta skiptið tengt lífi mannsins sem slíkt. Strax eftir skilgreininguna á Monte Sacro (Helgafelli) sem alþýðan hafði helgað Júpíter í tilefni viðskilnaðarins, bætir hann við:

At homo sacer est, quem populus iudicavit ob maleficium; neque fas est eum immolari, sed qiu occidit, parricidi non dantur; nam lege tribunicia prima cavetur „si quis eum, qui eo plebei scito sacer sit, occiderit, parricida ne sit“. Ex quo quivis homo malus atque improbus sacer appellari solet.

(Heilagur maður er því sá sem þjóðin hefur dæmt fyrir glæp; og ekki er leyfilegt að fórna (sacrificare) honum, en sá sem drepur hann skal ekki sakfelldur fyrir mannsmorð; reyndar má sjá í fyrstu lögum lögréttunnar að „ef einhver drepur þann sem samkvæmt almannarétti (plebiscito) er heilagur (sacro), skal hann ekki talinn til morðingja.“. Af þessum sökum er sú hefð tilkomin, að illvilja eða óhreinn maður teljist kallaður heilagur).

Margt hefur verið ritað og rætt um merkingu þessarar leyndardómsfullu ímyndar, þar sem sumir hafa viljað sjá „elstu merkin um refsilöggjöf Rómarréttarins“ (Bennett, bls. 5), en sú staðreynd gerir túlkunina flókna, að hún beinist að dæmum er virðast mótsagnakennd við fyrstu sýn. Í ritgerð frá 1930 bendir Bennett þegar á að skilgreining Festo „virðist afneita sjálfu inntaki hugtaksins“ (sama rit, bls. 7), því um leið og hún staðfestir heilagleika (la sacertà) tiltekinnar persónu, þá heimilar hún aftökuna (eða öllu heldur gerir hana ósaknæma). (Sérhver orðsifjafræði sem fjallar um orðið parricidium segir okkur að rótin merki morð á frjálsum manni). Þversögnin verður enn áleitnari í ljósi þess að sá sem hver og einn mátti refsilaust drepa, mátti hins vegar ekki vera tekinn af lífi með aðferðum viðhöfðum í helgiathöfnum (neque fas est eum immolari ; immolari vísar til þess siðar að smyrja fórnarlambið með la mola salsa fyrir aftökuna.

[Mola salsa var samkvæmt Wikipediu grautur sem gerður var úr möluðu og ristuðu haframjöli blönduðu með fersku lindarvatni og salti, og á siðurinn rætur að rekja til Vestala í Róm, sem notuðu efnið til að „hreinsa“ tilvonandi fórnardýr. Innsk. Þýð.]

Hvað felst þá í sacertà (heilagleika) hins heilaga manns, hvaða merking er á bak við orðin sacer esto, sem sjá má víða í konunglegum lagabókstaf og birtist þegar í hinni fornu áletrun á ferköntuðu súlunni á Rómartorgunum, ef þau fela í senn í sér „l‘impune uccidi“ (refsilausa aftökuheimild) og útilokun frá fórnarathöfninni? Augljóst er af athugasemd í Saturnali (III, 7, 3-8) að þessi orðanotkun reyndist Rómverjum líka torskilin, en þar segir, eftir að Marcobio hafði skilgreint sacrum sem það er ætlað er guðunum, að „frá þessu atriði væri ekki óviðeigandi að fjalla um aðstæður þeirra manna er lögin skilgreina sem heilaga tilteknum guðum (sacri a determinati divinità), því ekki er hægt að ganga fram hjá því að sumum finnst undarlegt (mirum videri) að á meðan stranglega er bannað að ráðast gegn sérhverjum heilögum hlut, þá sé hins vegar leyfilegt að drepa hinn heilaga mann“. Hvaða gildi sem við annars leggjum í þá túlkun Macrobio, sem hann telur sig hafa þarna á hendi, þá er það engum vafa undirorpið að „la sacertà“ (heilagleikinn) var í hans augum torrætt hugtak sem kallaði á útskýringu.

 

1.2. Þessi túlkunarvandi hinna fornu höfunda, endurspeglast í ólíkum túlkunum í nútímanum. Hér skiptist hópurinn í tvennt á milli þeirra (eins og Mommsen, Lange, Bennett, Strachan-Davidson) er sjá í sacratio veiklaðar og afhelgaðar eftirstöðvar forns siðar, þar sem trúarlegur réttur og refsiréttur voru óaðskildir og dauðadómurinn var skilinn sem fórn til guðanna. Hins vegar eru þeir (eins og Kerényi og Fowlwe) sem sjá í sacratio frumgerð (figura archetipica) hins heilaga, þar sem fórnarathöfn til guða undirheimanna með allri sinni tvíræðni á sér hliðstæðu í manfræðilegum rótum bannhelginnar: tignarlegur og bannsettur (maledetto), er verður allrar tilbeiðslu og hrollvekju í senn. Ef fyrri hópurinn nær að skýra l‘impune occidi (refsilausa aftöku) (eins og til dæmis Mommsen, með orðatiltækjunum um almúga-aftöku eða ígildi dauðadóms), þá geta þeir hins vegar ekki skýrt með sannfærandi hætti bannið á fórninni, öfugt við sjónarhorn síðari hópsins, ef neque fas est eum immolari reynist skiljanlegt (Kerényi skrifar að „homo sacer sé ekki fórnarhæfur (oggetto di un sacrificium) af þessari einföldu ástæðu: þar sem er sacer er þegar og upprunalega  í eignarhaldi guðanna, einkum og sér í lagi í eignarhaldi guða undirheimanna, og því sé engin þörf á að veita slíkum heilagleika með nýjum gjörningi“: Kerényi, bls. 76). Hins vegar er það illskiljanlegt, hvers vegna homo sacer geti verið réttdræpur af hverjum sem er, án þess að gerandinn saurgist af helgispjöllum (hér sjáum við ósamræmið í skýringu Macrobio, þegar hann segir að þar sem sálir hominis sacri (heilagra manna) væru diis debitae (tilheyrðu guðunum), þá væri reynt að senda þá til himna með sem skjótvirkustum hætti.

Hvorug þessara tveggja túlkana ná að gefa í senn hagfræðilega og rökræna skýringu á  þessum tveim einkennum, en samanburður þeirra felur í sér einkenni homo sacer samkvæmt skilgreiningu Festo: refsileysi aftökunar og bannið á fórnarathöfninni. Það sem við vitum um lögfræðilegt og trúarlegt inntak Rómarréttarins (bæði hvað varðar ius divinum og ius humanum), þá virðast þessir tveir þættir illa samræmanlegir: ef homo sacer var óhreinn (Fowler: tabú) eða eign guðanna (Kerérnyi); hvers vegna var hann þá réttdræpur hverjum sem var, án þess að það kostaði saurgun eða helgispjöll? Ef hann var hins vegar fórnarlamb fornrar fórnarathafnar eða dauðadóms, hvers vegna var það ekki fas (heilög skylda) að taka hann af lífi samkvæmt settum reglum? Hvað felst þá í raun í lífi homo sacer, ef það er staðsett á krossgötum aftökuheimildar og ekki-fórnarheimildar, það er að segja handan lögsögu manna og guða?

Allt leiðir þetta til þeirrar hugsunar að við séum hér stödd andspænis hugtakslegum mörkum hins félagslega regluverks Rómverja, en sem slíkt verður það varla skilgreint með fullnægjandi hætti á meðan við dveljum innan ramma ius divinum og ius humanum, þó það leyfi okkur kannski að bregða ljósi á takmörk hvors tveggja. Í stað þess að leysa úr sérkennum homo sacer, eins og of oft hefur verið reynt, út frá fyrir fram gefinni og upprunalegri tvíræðni hins heilaga, sem byggir á hinum mannfræðilega skilningi á bannhelginni (tabú), munum við þvert á móti reyna að túlka sacratio sem sjálfstæða hugmynd, og við spyrjum okkur hvort slík túlkun geti ekki hugsanlega varpað ljósi á upprunalegt pólitískt  regluverk (struttura) er finna megi á sviði er kom til sögunnar á undan aðskilnaði hins heilaga (sacro) og veraldlega (profano), hins trúarlega og lögfræðilega. En til þess að nálgast þetta svæði verður nauðsynlegt að hreinsa svæðið af tilteknum misskilningi.

 

2.

Tvíræðni hins heilaga

2.1. Goðsögulegur kjarni kenningarsmíða um félagsleg vandamál, sérstaklega þau er varða uppruna fullveldisins, varð til undir lok XIX aldar og á fyrstu áratugum þeirrar XX og hafa þessar smíðar gróflega afvegaleitt allar rannsóknir á sviði hugvísinda á viðkvæmum rannsóknarsviðum. Þessi goðsagnasmíð, sem við getum gróflega flokkað undir yfirskriftina „kenningin um tvíræðni hins heilaga“, tók fyrst á sig form í mannfræði á síðari hluta Viktoríutímans, en setti nær samstundis svip á franska félagsfræði, en áhrif hennar og útbreiðsla yfir á önnur svið hafa verið slík í tímans rás, að eftir að hafa skaðað (compromettere) rannsóknir Bataille á fullveldinu eru þær enn til staðar í meistaraverki málvísindanna á XX öldinni, sem er Vocabulaire des institutions indo-européennes eftir Emile Benveniste. Ekki kemur á óvart að fyrsta myndun þessarar kenningarsmíði hafi birst í Lectures on the Religion of the Semites eftir Robertson Smith (1889) – það er að segja í sömu bókinni og átti eftir að hafa afgerandi áhrif á ritsmíð Freuds, Totem und Tabú („að lesa hana var eins og að svífa burt á gondóla“ skrifaði Freud). Ef haft er í huga að Lectures verða til á tímum þar sem samfélagið hafði þegar glatað öllu sambandi við sínar trúarlegu hefðir, þá á það ekki að koma á óvart að verkið hefjist með ásökunum um eigin vanlíðan. En það var einmitt í þessari bók sem þjóðháttalegur skilningur á bannhelginni (tabú) segir í fyrsta skiptið skilið við hið frumstæða menningarsvið hennar, og einbeitir sér að rannsóknum á biblíulegum trúarbrögðum, þar sem vestræn reynsla af tvíræðni heilagleikans er í sviðsljósinu með óafturkræfum hætti.

Í IV fyrirlestrinum skrifar Robertson Smith: „Samhliða bannhelgunum (tabúunum) sem samsvara nákvæmlega reglum heilagleikans og vernda átrúnaðargoðin, helgistaðina, prestana, yfirvöldin og allt það fólk er tilheyrir guðunum og átrúnaðinum, gegn öllum yfirgangi, finnum við aðra tegund af bannhelgi sem innan semitískra áhrifasvæða á sína hliðstæðu í reglum hins óhreina. Konurnar í kjölfar barnsburðar, maðurinn sem hefur komið í snertingu við líkið o.s.frv. eru í tímabundinni bannhelgi og eru aðskilin frá mannlegum samskiptum, rétt eins og þessar persónur eru taldar óhreinar í semitískum trúarbrögðum. Í þessum tilfellum er hin bannsetta persóna ekki talin heilög, því henni er haldið frá helgistaðnum jafnt og frá allri snertingu við mannfólkið… Í mörgum villimannasamfélögum er ekki dregin skýr lína á milli þessara tveggja tegunda af bannhelgi, og einnig í þróaðri samfélögum má finna óskýran greinarmun á heilagleika og hinu óhreina (Robertson Smith, bls. 152-153).

Í athugasemd sem bætt var við aðra útgáfu á Lectures (1894) undir fyrirsögninni Holyness, uncleanness and taboo, boðar Robertson Smith ómöguleika þess að „skilja hina semitísku kennisetningu um heilagleika og óhreinindi frá kerfi bannhelginnar“ í kjölfar þess að hafa dregið fram lista nýrra dæma um tvíræðni (meðal annars bannið á svínakjötsáti, sem „í þróuðustu semitísku trúarbrögðunum tilheyrir eins konar einskis manns landi á milli hins óhreina og heilaga“ (sama rit, bls. 452).

Það er athyglisvert að meðal vitnisburða um þetta tvíræða vald hins heilaga skuli Robertson Smith einnig nefna bannsetninguna (bando):

„Annar athyglisverður hebrea-siður felst í bannsetningunni (herem), þar sem hinn óguðlegi syndari eða óvinir samfélagsins og Guðs þess, eru dæmdir til algjörrar tortímingar. Bannsetningin (bando) er eins konar form helgifórnar (consacrazione) til guðdómsins, og það er af þessum sökum sem sagnorðið að bannsetja (bandire) er stundum haft með orðinu að „samhelga“ (consacrare). (Micoh 4. 13) eða „helga“ (votare) (Lev. 27. 28). En á upphafstímum Gyðingdómsins fól þetta ekki bara í sér algjöra tortímingu  persónunnar, heldur líka eigna hennar. .. einungis málmarnir gátu fengið samastað í fjársjóði helgidómsins eftir að þeir höfðu verið bræddir í eldi. (Josh. 6. 24). Búsofninum var heldur ekki fórnað, heldur var hann einfaldlega drepinn, og hin helgaða borg átti ekki að vera endurreist (Deut. 13. 16; Josh. 6. 26). Slík bannsetning er tabú, sem hrint er í framkvæmd af ótta við yfirnáttúrulegar refsingar (Er, 16.34) og sú hætta sem þetta hafði í för með sér var smitandi (Deut. 7. 26); sá sem ber samhelgaðan (consacrato) hlut inn á heimili sitt hlítur sömu bannsetningu“ (sama rit, bls. 453-54).

Greiningin á bannsetningunni -sem hliðstæðu við „tabú“ – er frá upphafi afgerandi í tilkomu kenningarinnar um tvíræðni hins heilaga: tvíræðni hins fyrra , sem útilokar með því að innifela, felur í sér hið seinna.

 

2.2. Þegar kenningin um tvíræðni hins heilaga hafði einu sinni verið mótuð, var hún meðtekin á öllum sviðum hugvísindanna án minnstu mótstöðu, rétt eins og evrópsk menning væri að átta sig á henni í fyrsta skiptið. Tíu árum eftir útgáfu Lectures lesum við í upphafi hins sígilda franska mannfræðirits Essai sur le sacrifice eftir Hubert og Mauss (1899): „le caractère ambigu des choses sacres, que Robertson Smith avait si admiriblement mis en lumière“ (Hubert e Mauss, bls 195). Sjö árum síðar lesum við í seinna bindi Völkerpsykologie eftir Wundt, hvernig hugtakið bannhelgi (tabú) tjái einmitt upprunalegan óaðgreinanleika hins heilaga og óhreina er einkenni elstu þróunarstigin í sögu mannkynsins, þessa blöndu tilbeiðslu og hryllings sem Wundt skilgreinir sem „heilagan hrylling“, formúla sem átti að slá í gegn. Það gerðist einungis á seinni þróunarstigum, þegar hin elstu máttarvöld af djöflaætt lutu lægra haldi fyrir guðunum, sem hin upprunalega tvíræðni vék fyrir andstæðunni heilagur og óhreinn.

Emile Durkheim, frændi Mauss, gaf árið 1912 út verkið Formes elementaires de la vie religieuse, þar sem heill kafli er tileinkaður „tvíræðni skilningsins á heilagleika“. Þar flokkar hann „öfl trúarbragðanna“ í tvær andstæðar kvíar: hina dýrlegu og hina meinlegu (le faste e nefaste):

Það leikur enginn vafi á því að tilfinningarnar sem liggja að baki hvers flokks fyrir sig eru ekki af sama toga: annar byggir á virðingu, hinn á viðbjóði og hryllingi. Engu að síður er það svo, að þar sem atferlið (i gesti) er það sama í báðum tilfellum, þá ættu hinar tjáðu tilfinningar ekki að stangast á í eðli sínu. Við sjáum í raun hrylling í trúarlegri virðingu, sérstaklega þegar tilfinningarnar eru sterkar, og innblásinn ótti hinna illu afla er yfirleitt ekki laus við tilbeiðslueinkenni. ,,Hið hreina og óhreina eru þannig ekki tveir aðskildir flokkar, heldur tvö afbrigði sömu eigindar er myndar heilaga hluti. Til eru tvennar tegundir heilagleika, hið dýrlega og hið meinlega (il fasto e nefasto). Því er ekki þannig varið að á milli þessara andstæðu forma sé ekki um samgang að ræða, heldur getur sama fyrirbærið breyst úr öðru í hitt, án þess að taka eðlislægum umskiptum. Hið hreina verður óhreint, og öfugt: tvíræðni hins heilaga felst í möguleika þessara stakkaskipta (Durkheim, bls. 446-48).

Á þessum blaðsíðum sjáum við þegar í verki sálfræðivæðingu hinnar trúarlegu reynslu („viðbjóðurinn“ og „hryllingurinn“ sem hin menntaða evrópska borgarastétt hefur tjáð vanlíðan sína með andspænis veruleika trúarinnar). Þessi tilhneiging nær síðan hámarki sínu nokkrum árum síðar innan Marburg-guðfræðinnar með verki R. Otto um hið heilaga (1917). Hér fagna tvær fræðigreinar sameiningu sinni , önnur var guðfræði sem hafði glatað allri reynslu hins opinberaða orðs, hin var heimspeki sem hafði endanlega sagt skilið við allt tilfinningabindindi (sobrietá di fronte al sentimento). Þessar fræðigreinar halda upp á sameiningu sína með heilagleikahugtaki er fellur fullkomlega að hugtökunum um hið myrka og ógagnsæja. Hér verður nýyrðið numinoso að hinu vísindalega samheiti er segir okkur að hið trúarlega falli alfarið undir hið sálræna tilfinningalíf, og að það hafi fyrst og fremst með hrollinn og gæsahúðina að gera.

Þegar Freud hóf ritun sína á verkinu Totem und Tabú var þegar búið að plægja akurinn. Engu að síður er það fyrst með þessu verki sem raunveruleg almenn kenning um tvíræðnina lítur ljós, ekki bara á mannfræðilegum og sálfræðilegum forsendum, heldur líka málvísindalegum. Árið 1910 hafði Freud lesið ritgerð málvísindamanns að nafni K. Abel, sem nú hefur verið lækkaður í virðingarstiganum. Ritgerðin heitir Mótsagnarkennd merking upprunalegra orða, og Freud hafði skrifað um hana í Imago ritdóm, þar sem hann tengdi efnið við kenningu sína um fjarveru mótsetningalögmálsins í draumum. Meðal orða af gagnstæðu tagi, sem Abel listar í eftirmálanum, og ekki fara fram hjá Freud, er latneska orðið sacer, „heilagur og bannsettur“. Svo undarlega vill til, að mannfræðingarnir sem höfðu orðið fyrstir til að smíða kenninguna um tvíræðni hins heilaga, höfðu hvergi minnst á latneska orðið sacratio. Árið 1911 birtist hins vegar ritgerð Fowlers, The original meaning of the word sacer, þar sem þungamiðjan snýst einmitt um túlkunina á homo sacer,  og fékk umsvifalausar undirtektir iðkenda vísinda trúarbragðanna. Hér gefur tvíræðnin sem felst í skilgreiningu Festo fræðimanninum grænt ljós á að tengja latneska orðið sacer við hugtakakvína tabú (samkvæmt ráðleggingu frá Marett): „sacer esto is in fact a curse; and the homo sacer on whom this curse falls is an outcast, a banned man, tabooed, dangerous… originally the word may have meant simply taboo, i.e. removed out of the region of the profanum, without any special reference to að deity, but „holy“ or accursed according to the circumstances“: Fowler, bls. 17-23).

Í ritgerð sem er studd góðri heimildavinnu, hefur H. Fugier sýnt hvernig kenningin um tvíræðni hins heilaga hafi gegnsýrt málvísindin og endað á að finna þar sína meginstoð (Fugier, bls 238-40). Á þessu ferli hefur homo sacer einmitt gegnt lykilhlutverki. Á meðan hvergi er minnst á kenningu tvíræðninnar í annarri útgáfu Lateinisches etymologisches Wörterbuch eftir Walde (1910), þá er „hin tvöfalda merking“ hugtaksins staðfest í Dictionnaire étymologique de la langue latine eftir Ernout-Meillet (1932), einmitt með tilvísun í homo sacer: „Sacer designe celuiou ce quí ne peût être touché sans être souillé, ou sans souiller; de là le double sens de „sacré“ ou „maudit“ (à peu près). Un coupable que l‘on consacre aux dieux infernaux est sacré (sacer esto: cfr. gr. ágios)“ .

₹ Í gegnum lestur á verkum Fugiers verður áhugavert að rekja sögu þeirra milliviðskipta er hafa átt sér stað á milli mannfræðinnar, málvísindanna og félagsvísindanna hvað varðar spurninguna um hið heilaga. Á milli seinni útgáfu orðabókar Walde og firstu útgáfu Ernout-Meillet hafði birst ritgerðin Sacer eftir Pauly-Wissowa, undirrituð af R. Ganschninietz (1920), sem gerir skilmerkilega grein fyrir kenningu Durkheims um tvíræðnina (eins og Fowlwr hafði áður gert fyrir Robertson Smith). Í umfjöllun um Meillet minnir Fugier á það nána samband sem málvísindamaðurinn átti við félagsvísindaskólann í París (sérstaklega við Mauss og Durkheim). Þegar Callois gefur út ritverkið L‘homme et le sacré árið 1939, gat hann þannig hafið mál sitt út frá traustri alfræðilegri tilvísun orðabókarinnar: „A Rome, on sait assez que le mot sacer désigne, suivant la definition d‘Ernout-Meillet, celui ou ce qui ne peut être touché sans être souille ou sans souiller“ (Callois, bls. 22).

 

2.3. Leyndardómsfull vera úr hinum forna Rómarrétti, sem virðist sameina í sjálfri sér andstæð öfl og kallar því á eigin útskýringu, endurspeglar þannig trúarlegan flokk hins heilaga á þeirri stundu er hún gengur með sínum hætti í gegnum ferli óafturkræfrar merkingartæmingar (desemantizzazione) er leiðir til gagnstæðrar merkingar. Þegar þessi tvíræðni er sett í samhengi við skilning þjóðháttafræðanna á bannhelginni  verður hún beinlínis notuð til að skilgreina í fullkomnu hringrásarferli ímynd homo sacer. Í lífi hugtakanna rekumst við á augnablik, þar sem þau glata beinum skiljanleik sínum, og eins og öll tóm hugtök geta þau tekið á sig mótsagnakenndar merkingar. Þar sem um er að ræða trúarleg fyrirbæri, þá fella þessi tímamót saman við fæðingu nútíma mannfræði undir lok nítjándu aldar, þar sem engin tilviljun ræður því að tvíræð hugtök á borð við mana, tabú, sacer, lenda í brennideplinum. Lévi-Strauss hefur sýnt fram á hvernig hugtakið mana virkar sem umfram-nefnari (significante eccedente) er hefur ekki aðra merkingu en þá að merkja umframvirkni nefnarans gagnvart hinu nefnda. Hægt væri að gera hliðstæðar athugasemdir við hugtakið tabú (bannhelgi) og hugtakið sacro (heilagur) með tilliti til notkunar þeirra og hlutskiptis í samræðu hugvísindanna á tímabilinu frá 1890 til 1940. Fyrir fram gefin tvíræðni hins almenna trúarlega hugtaks hins heilaga (sacro) getur ekki skýrt það pólitíska-lögfræðilega fyrirbæri, sem byggir á ævafornum skilningi á hugtakinu sacer, þvert á móti getur einungis nákvæm og fordómalaus afmörkun hins pólitíska og trúarlega sviðs leitt til skilnings á samkrulli þeirra og hins flókna samspils þeirra. Allavega er mikilvægt að sú upprunalega lögfræðilega og pólitíska vídd, sem birtist í homo sacer, verði ekki falin undir tjaldi vísindalegra goðsagnasmíða (mitologema), sem í sjálfum sér skýra ekkert, og kalla sjálf á sína útskýringu.