DELEUZE: UMTURNUN PLATONISMANS

 

DELEUZE OG FRAMKÖLLUN HINNAR SKAPANDI ÓREIÐU

Á þeim óreiðutímum sem við upplifum þessa dagana fann ég mér skjól í að lesa franska heimspekinginn Gilles Deleuze. Það er ekki léttur lestur, heldur mjög krefjandi, þar sem helst þarf að lesa hverja málsgrein aftur og aftur. Ég hef verið að lesa tvö meginverk hans, "Differnce & Repetition" frá árinu 1968 sem ég les í enskri þýðingu, og snilldarverkið "Logique du Sens" frá 1969, sem ég er að lesa í ítalskri þýðingu. Þetta eru ólíkar bækur, sú fyrri ber þess merki að vera unnin upp úr doktorsritgerð, sú síðari er hins vegar skrifuð af leikandi list út frá hugmyndaflugi Lewis Caroll um Lísu í Undralandi, þar sem ótæmandi hugmyndaflug fær að ráða í tiltölulega stuttum og oft laustengdum köflum þar sem við getum fundið þá "skapandi óreiðu" sem kannski var einkenni Deleuze sem heimspekings. Í allri óreiðunni rakst ég á þennan texta í upphafi viðaukans í þessari efnisríku bók, þar sem Deleuze gerir atlögu að hinni plaonsku hughyggju og hugmyndum hennar um frummyndir og eftirlíkingar þeirra í ólíkum myndum, nokkuð sem varðar ekki bara forngríska heimspeki, heldur umfram allt samtíma okkar - og þá sigurgöngu eftirlíkinganna sem einkenna samtíma okkar. Segja má að Þetta uppgjör Deleuze við Platonismann kallist á við anna yngri texta sem ég hef þýtt og birt hér á vefnum: "Framrás líkneskjanna" eftir Jean Baudrillard, upphaflega birt í bókinni "Simulacres et simulation" frá 1994. (Sjá:https://wp.me/p7Ursx-8B) Í báðum ritgerðunum er viðfangsefnið "sýndarveruleiki" ímyndanna og eftirlíkinganna og hvernig hermilistin hefur farið sigurgöngu í fjölmiðlabyltingu samtímans. Þótt 24 ár séu á milli bókanna tveggja, þá verður að segjast að Deleuze á ekki síður erindi til samtímans. En munurinn á sjónarmiðum þessara snillinga er athyglisverður, þar sem segja má að Baudrillard sjái svartnætti í heimi "Framrásar líkneskjanna", þá vill Deleuze sjá skapandi káta virkni í þessari framrás, sem hann tengir reyndar skemmtilega við Platon og Sókrates, og segir reyndar að þessi tilraun sín til "tortímingar" Platonismans sé "hin saklausasta af öllum niðurrifsverkum". Þessi ritgerð Deleuze ætti að vera skemmtilestur þeirra fjölmörgu sem hafa lesið gamla þýðingu mína á Baudrillard hér á vefnum. Þar sem þessi texti er mjög þéttur hef ég reynt að létta lesturinn með því að bæta við greinarskilum þar sem það gat átt við. Þýðingin hefur ekki verið yfirfarin af fagmanni og er því hvorki endanleg né óumdeilanleg. 

Í lokin vildi ég benda á að sú umræða sem hér á sér stað um líkingar af ýmsum gerðum og gráðum í anda Platonismans á sér skemmtilega hliðstæðu í íslenskum bókmenntum, nánar tiltekið í hinu snilldarlega "Kvæðakveri" Halldórs Laxness frá árinu 1930, en það er ljóðið "Rhodymenia Palmata" (titill mun latneskt heiti á blöðruþangi). Þar er þetta ljóð um "annarrar gráðu líkingar" sem eru m.a. til umræðu í þessu niðurrifi Deleuze á heimspekikerfi Platonismans. Ljóðið er í 10 köflum, en III. kaflinn hljóðar svona, og væri örugglega vel metinn af Deleuze:

III. (Niðurlag)
Vökru hleypa járngráir víkingar
vindum skygnda slóð.
Einatt framdi ég undirferli og svíkingar
ástin mín góð,
af því ég kunni annarrar gráðu líkingar
eins og magurt jóð.


Platonisminn og eftirlíkingarnar

Íslensk endursögn á ritgerðinni Platon et le simulacre, úr eftirmála bókarinnar Logique du sens (1969), hér endursagður úr ítalskri þýðingu Mario de Stefanis , útg. Feltrinelli (1975), bls. 223 – 234.

Hvað merkir „umturnun platonismans“? Með þessum orðum skilgreinir Nietzsche verkefni heimspeki sinnar, eða í víðara samhengi, verkefni heimspeki framtíðarinnar. Svo virðist sem þetta merki: útþurrkun heims hins kjarnfasta og heims birtingarmyndanna.

Engu að síður væru slík áform ekki einskorðuð við Nietzsche. Hina tvöföldu afneitun kjarnanna og birtingarmyndanna má rekja aftur til Hegels, eða öllu heldur til Kants. Hins vegar má vel draga í efa að Nietzsche hafi haft það sama í huga. Auk þess fela slík áform um umturnun í sér þann ágalla að vera sértekning: hún skilur áform platonismans eftir í skugganum. Þvert á móti ætti umturnun platonismans að fela í sér að draga fram áformin, „hundelta“ slík áform – rétt eins og Platon hundelti sófistann.

Mjög almennt sagt, þá ber okkur að leita áforma kenningarinnar um Hugmyndirnar á slóðum tiltekins vilja til úrvals og úrtaks. Um er að ræða að greina mismun, greina sjálfan „hlutinn“ frá myndum hans, frumgerðina frá eftirmyndinni, fyrirmyndina frá ígildinu. En er þessi hugtakanotkun öll sambærileg?

Áform platonismans koma þá fyrst í ljós, þegar við snúum okkur að greiningaraðferðinni. Slík aðferð er reyndar ekki ein af mörgum aðferðum díalektíkurinnar. Hún felur í sér allan mátt díalektíkurinnar, getu hennar til að tengja hana öðru valdi, og sýna þannig allan mátt kerfisins í heild sinni.

Í fyrsta lagi mætti segja að slík greiningaraðferð fæli í sér að greina tiltekna tegund í andstæðar undirgreinar í því skyni að ná utan um viðeigandi tegund: það er goggunaraðferðin sem notuð er í samfelldu úrtaki við greiningu aflans á handfæraveiðum. Þetta er hins vegar aðeins yfirborðskenndur þáttur í úrtakinu, hinn spaugilegi þáttur þess. Ef við tækjum þessa goggunaraðferð alvarlega, þá væru andmæli Aristótelesar fullkomlega réttmæt: goggunarúrtakið væri léleg röksemdafærsla, ólögmæt vegna þess að það vantaði almennt hugtak, er gæti til dæmis gert okkur kleift að álykta að handfæri væru innifalin í aflaskiptum er byggðu á veiðum o.s.frv.

Við verðum að kanna raunverulegan tilgang úrtaksins annars staðar. Í Stjórnmálunum finnum við fyrstu skilgreininguna: stjórnmálamaðurinn er hirðir mannanna. En hann mætir alls konar keppinautum, lækninum, kaupmanninum, bóndanum, sem allir segja: „það er ég sem er hirðir mannanna“. Í Fædrosi snýst málið um að skilgreina óráðið; eða öllu heldur að greina vel skilgreint óráð frá sannri ást. En einnig i þessu tilfelli mætum við mörgum vonbiðlum (pretendenti) sem segja: „Hinn hugfangni, elskhugi, það er ég.“ Tilgangur úrtaksins felst því ekki í að skipta tegundinni í undirgreinar, heldur í dýpri greiningu á ætterninu (stirpi): greina vonbiðla, greina hina hreinu frá hinum óhreinu, hinn sanna frá hinum falska o.s.frv. Sígild myndlíking um glópagullið á sér þessa skýringu.

Platonisminn er Odysseifskviða heimspekinnar. Hin platonska díalektík er ekki díalektík andstæðanna, heldur díalektík samkeppninnar (amphisbetesis), díalektík keppinauta og vonbiðla. Kjarni uppskiptanna birtist ekki í stærðinni, í ákvörðun undirtegunda af tiltekinni tegund, heldur í dýptinni, í úrtaki ættbálksins (stirpe). Að skilgreina væntingarnar og greina hina sönnu vonbiðla frá hinum fölsku.

Þegar Platon gengur að þessum áformum sínum grípur hann enn einu sinni til kaldhæðninnar. Það sem gerist í raun og veru, þegar úrvalið nær tilætluðu markmiði sínu, þá er eins og öllu sé kastað á glæ og þess í stað gripið til goðsögunnar. Þannig er það í Fædrosi, þar sem hringferli sálnanna virðist rjúfa úrtaksáformin . Sama gerist í Stjórnmálunum, í goðsögunni um árdaga tímans og sögunnar. Slík er önnur gildra aðgreiningarinnar og úrvalsins, seinni kaldhæðni hennar, þetta afturhvarf, þessi birtingarmynd afturhvarfsins eða afneitunarinnar. Sannleikurinn er sá, að goðsagan raskar engu.

Þvert á móti er goðsagan samtengjandi þáttur sjálfs úrtaksins. Það er eiginleiki úrtaksins að yfirvinna tvíþættingu goðsögunnar og díalektíkurinnar og innbyrða í einu lagi vald díalektíkurinnar og vald goðsögunnar. Goðsagan með sinni hringrásarbyggingu er einmitt sagan um grndvöllun. Hún gefur einmitt grænt ljós á að skapa fyrirmynd, þar sem hinir ólíku vonbiðlar hljóta sinn dóm.  Það sem kallar á grundvöllun er einmitt tilkallið.  Vonbiðillinn (il pretendente) ákallar þannig grundvöllinn og vel eða illa grundaðar væntingar hans eru því botnlausar. Þannig gerist það í Fædrosi, að goðsaga hringrásarinnar sýnir það sem sálirnar hafa megnað að sjá af Hugmyndunum, áður en holdtekningin átti sér stað: það er einmitt með þessum hætti sem boðið er upp á hinn valkvæða mælikvarða er segir til um hvernig hið vel grundaða óráð, eða hin sanna ást, tilheyra þeim sálum er margt hafa séð, og marga fjöruna sopið, en eru engu að síður viðbjargandi (risuscitabili) – á meðan tilfinninganæmu sálirnar, þær minnissljóu og skammsýnu, eru hins vegar ásakaðar fyrir að vera falskir vonbiðlar. Sama gerist í Stjórnmálunum: þessi goðsögn hringferðarinnar sýnir hvernig skilgreining stjórnmálamannsins  sem „hirðir mannanna“ tengist bókstaflega hinum arkaíska erki-guði: en þar birtist valmælikvarði er leggur grunn að því, hvernig ólíkir menn innan lýðveldisins eiga ólíka aðild að hinni goðsögulegu fyrirmynd. Endanlega endurspeglar þessi valkvæða þátttaka vandamál hinnar valkvæðu aðferðar.

Að eiga þátt (eða hlutdeild) merkir í besta falli annarar gráðu aðild. Þar af leiðir hin fræga nýplatónska þrenning: hinn óháði (impartecipabile), hluthafinn (partecipato) og þáttakandinn (partecipante). Einnig mætti orða þetta svona: grunnurinn (fondamento), viðfang valkvæðisins (oggetto della pretesa), vonbiðillinn (pretendente); faðirinn, dóttirin og hinn trúlofaði vonbiðill. Grunnurinn er það sem býr fyrirfram yfir einverju (á fyrsta stigi), en veitir jafnframt hluttekningu í því, færir vonbiðlinum aðild, og gerir hann þannig að annars stigs handhafa, að því marki sem hann nær að yfirstíga prófraun grundvallarins. Hluthafinn (il partecipato) er það sem hinn óháði býr yfir á fyrsta stigi stigveldisins. Hinn óháði veitir hlutdeild, veitir þátttakendunum hlutdeild: réttlætið, gæði hins rétta, hina réttlátu.  Með þessari valkvæðu þátttöku er án alls vafa gerður skýr greinarmunur á öllu stigveldi, allt verður eitt stigveldiskerfi. Er hugsanlegt að við séum hér að tala  um hluthafa í þriðja eða fjórða sæti, með endalausri gengisfellingu allt til þess sem hefur ekkert í höndunum nema eftirlíkinguna, ígildið, hillingarnar, eða er hann kannski sjálfur hillingar? Í Stjórnmálunum er munurinn skýrður í smáatriðum: hinn sanni stjórnmálamaður eða hinn vel grundaði vonbiðill, svo koma frændfólkið, aðstoðarfólkið og þrælarnir, allt að ígildunum og falsinu. Yfir því síðastnefnda hvílir bölvunin: þar eru holdgervingar hins illa valds hins falska vonbiðils.

Goðsagan er þannig það sem myndar hið innbyggða módel eða frumraunina (fundamento-prova), sem vonbiðlarnir gangast undir og metur yfirtökuvæntingar þeirra. Þetta eru forsendur úrtaksins og þeirrar uppskiptingar og þeirra markmiða sem stefnt er að, en þau felast ekki í skilgreiningu hugtaksins, heldur í sönnunarvottorði Hugmyndarinnar, ekki í ákvörðun tegundarinnar, heldur vali frændgarðsins (stirpe). Hvaða skýrir það  að í þrem höfuðtextum Platons um stigveldisskipunina, Fædrosi, Stjórnmálunum og Sófistanum, sé engin grundvallargoðsögn sett fram í síðastnefnda textanum?

Ástæðan er einföld. Í Sófistanum er aðferð stigveldisskiptinganna með þverstæðufullum hætti ekki fólgin í matsgerð hinna réttlátu vonbiðla, heldur felst hún þvert á móti í að ofsækja hinn falska vonbiðil sem slíkan, í því skyni að skilgreina veru (eða öllu heldur ekki-veru) eftirlíkingarinnar og ígildisins (simulacro). Það er sjálfur sófistinn sem er vera eftirlíkingarinnar, satírinn eða kentárinn, erkiguðinn Proteus sem blandar sér í allt og snýr út úr öllu.

En í þessum skilningi verður hugsanlegt að markmið Sófistans feli í sér stórbrotnasta ævintýri platonismans: að Platon hafi orðið fyrir þeirri hugareldingu í ákafri rannsókn sinni á hlutskiptum eftirlíkingarinnar og heljargjá hennar, að eftirlíkingin sé hugsanlega ekki bara fölsk eftirmynd, heldur setji hún stórt spurningamerki við sjálft hugtakið eftirlíking… og hugtökin frummynd eða fyrirmynd. Endanleg skilgreining  á sófistanum leiðir okkur að þeim punkti þar sem við getum ekki lengur greint sófistann frá sjálfum Sókratesi: hinum kaldhæðna, sem leikur sér í einrúmi með stuttar röksemdafærslur. Þurfti ekki að leiða kaldhæðnina alla leið þangað? Að Platon sjálfur hafi verið sá sem fyrstur manna vísaði veginn á slóðina að umturnun platonismans?

Við byrjuðum á fyrstu skilgreiningunni á hinum platonsku markmiðum: að greina kjarnann frá birtingarmyndinni, hið skiljanlega frá hinu skynjanlega, Hugmyndina frá myndinni, frummyndina frá eftirgerðinni, módelið frá ígildinu. Við sjáum strax að slíkar framsetningar ganga ekki upp.

Mismunurinn færist á milli tveggja tegunda mynda. Eftirgerðirnar (le copie) hvíla í öðru sætinu, þær eru vel grundaðir vonbiðlar, baktryggðir af líkingunni. Ígildin (i simulacri) eru eins og fölsku vonbiðlarnir, þau eru byggð á ólíkindum er leiða til umskiptingsins, til grundvallar fráhvarfs. Það er einmitt með þessum hætti sem Platon skiptir sviði myndarinnar-blætisins (immagini-idoli) í tvennt: annars vegar eru eftirmyndir-helgimyndir  (copie-icone), hins vegar ígildi-draugamyndir (simulacri-fantasmi) (sbr. Sófistinn 236b, 264c).

Að svo stöddu getum við skilgreint betur heildarmynd áforma platonismans. Um er að ræða val á vonbiðlum, að gera greinarmun á góðum og lélegum eftirlíkingum, eða öllu heldur greinarmun á þeim eftirgerðum sem eru alltaf vel grundaðar, og ígildunum (simulacri) sem eru alltaf spillt með ólíkindum sínum. Um er að ræða að tryggja sigur eftirlíkinganna yfir umskiptingunum eða ígildinum, að fjarlægja þau og halda þeim hlekkjuðum í djúpinu, koma í veg fyrir að þau komist upp á yfirborðið og flæki sér í hvaðeina.

Mikilfengleg og staðföst tvíræðni Hugmyndarinnar og myndarinnar á sér eingöngu þetta markmið: að tryggja undirliggjandi mismun tveggja gerða mynda, og búa til hlutstæðan mælikvarða þeirra. Ef eftirmyndir helgimyndanna eru vel gerðar og ígrundaðar, þá er það vegna þess að þær eru gæddar líkingu. En líkingin verður ekki dæmd af ytri áferð. Líkingin leiðir ekki frá einum hlut til annars, heldur felst hún í tengslum hlutar og Hugmyndar, því það er Hugmyndin sem skilur tengslin og hlutföllin sem grundvalla innri kjarna verksins. Hið innra og andlega, líkingin, mælist eftir tilefni (pretesa).

Eftirmyndin líkist raunverulega Hugmynd hlutarins. Móttakandinn samsamar sig hlutnum, en einungis að því marki sem hann er mótaður samkvæmt Hugmyndinni (andlega og inntakslega). Hluturinn verðskuldar einungis gæðavottorð (til dæmis réttlætisvottorð) að því marki sem hann byggir á kjarnanum (réttlætinu). Í stuttu máli, þá er það  æðri samsemd við Hugmyndina sem grundvallar nákvæmlega hinar góðu væntingar eftirmyndanna. Þær byggja á innri meðtekinni líkingu.

Hugsum okkur nú aðra tegund mynda, sýndarfyrirbærin og ígildin (simulacri): nálgun þeirra gagnvart hlutnum, gagnvart gæðunum o.s.frv. kemur að neðan, og er knúin ísmeygilegri ásókn og undirróðri gagnvart „föðurnum“, án tillits til Hugmyndarinnar. Um er að ræða ógrundaða íhlutun sem felur ólíkindi innra misvægis.

Þó við segjum að ígildið sé eftirmynd eftirmyndarinnar, helgimynd sem hefur hlotið óendanlega misþyrmingu, líking sem hefur gengið í gegnum óendanlega útþynningu, þá komumst við ekki að kjarna málsins: þeim náttúrlega eðlismun sem er fyrir hendi á milli ígildisins og eftirmyndarinnar, þeim þætti sem lætur þau mynda tvær hliðar einnar skiptingar. Eftirmyndin (copia) er mynd sem hefur til að bera líkingu, ígildið er mynd án líkingar.

Fermingarkver kirkjunnar, sem eru undir sterkum áhrifum platonismans, hafa leitt okkur í þennan skilning: Guð skapaði manninn í eigin líkingu og mynd, en vegna syndarinnar hefur maðurinn glatað Hugmyndinni en viðhaldið myndinni. Við erum orðin að ígildum (simulacri), við höfum glatað hinni siðferðilegu tilvist, til þess að ganga inn í þá fagurfræðilegu.

Samlíkingin við fermingarkverið hefur þann kost að leggja áherslu á demónískt eðli ígildisins. Vafalaust hefur það ennþá til að bera einhver áhrif eftirlíkingarinnar. Þar er hins vegar um heildaráhrif að ræða, ytri áhrif, framkölluð af áhrifavöldum gjörólíkum þeim sem eru að verki í fyrirmyndinni. Ígildið byggir á ólíkindum og mismun, það innrætir ólíkindi og mismun. Þess vegna getum við ekki skilgreint það út frá þeirri fyrirmynd sem eftirmyndinni er gefin, fyrirmynd Hins Sama sem eftirmyndirnar búa yfir. Ef ígildið á sér ennþá fyrirmynd, þá er það fyrirmynd Hins, sem varpar frá sér innbyrtri innanverðri líkingu.

Gefum okkur hina miklu platonsku þrenningu: bústólpann, framleiðandann og hermikrákuna. Ef bústólpinn er settur í efsta sæti stigveldisins, þá er það vegna þess að hann dæmir um markmiðin og hefur til að bera raunverulega þekkingu er varðar fyrirmyndina eða Hugmyndina. Kalla mætti eftirmyndina eftirlíkingu að því marki sem hún endurgerir fyrirmyndina. En þar sem slík endurgerð er  þekkingarfræðilegs eðlis (noetica), andleg og innhverf miðlun, þá er hún raunveruleg framlegð sem mælist á forsendu grundvallandi tengsla og fyrirliggjandi aðild kjarnans. Alltaf er til staðar framleiðandi virkni í hinni góðu eftirmynd, og heilbrigð skoðun, ef ekki þekking, til að samsvara slíkri virkni.

Við sjáum hins vegar að eftirlíkingin er til þess fallin að taka á sig neikvæð áhrif, þegar einungis er um hermilist (simulazione) að ræða, hún fæst einungis við ígildið (simulacro) og framkallar líkingaráhrifin utanverð og áhrifalaus, tilkomin með kænsku og undirróðri. Heilbrigðri skoðun er heldur ekki til að dreifa lengur, heldur stöndum við frammi fyrir kaldhæðnislegu stefnumóti þar sem ráðskast er með vanda heims þekkingarinnar, þar sem við sjáum list stefnumóta handan þekkingar og skoðana.

Platon skýrir fyrir okkur hvernig menn ná svo ófrjósömum árangri: ígildið (simulacro) ráðskast með stórar víddir, dýpt og fjarlægðir, sem áhorfandinn ræður ekki við. Og þar sem þær eru honum óviðráðanlegar, upplifir hann hermiáhrif. Ígildið felur í sér sundurgreinanleg sjónarhorn, áhorfandinn er hluti að sjálfu ígildinu (simulacro), sem sjálft umbreytir sér og afmyndar sig með sínu sjónarhorni. Þannig felur ígildið að lokum í sér hreint óráðsflan, óendanlega framvindu, eins og við sjáum í Filebusi, „þar sem hið „meira“ og „minna“ sækja stöðugt fram“, stöðugt breytt verðandi, tærandi framvinda undirheimanna, þess albúin að ýta stöðugt á undan sér jafngildingunni, mörkunum, Hinu Sama og Líka: ávalt hið meira og minna samtímis, en aldrei eins.

Verkefni platonismans er að setja slíkri þróun takmörk, að beina henni að hinu sama, viðhalda líkingunni – og fyrir þá mótþróafullu: að vísa henni í dýpstu mögulegu myrkur, loka hana í neðansjávarhelli Úthafanna: þetta er tilgangur platonismans í vilja hans til að láta helgimyndirnar fagna sigri á eftirlíkingunum.

Platonisminn leggur þannig grundvöllinn að öllu því sviði, sem heimspekin sér sem sinn heimavettvang: heim endursýningarinnar (rappresentazione) uppfullan af eftirlíkingum-helgimyndum, ekki skilgreindur í utanverðu sambandi við tiltekinn hlut, heldur í innanverðu sambandi við fyrirmyndina eða grundvöllinn. Módel og fyrirmynd platonismans eru Hið Sama: í þeim skilningi sem Platon segir að réttlætið sé ekki annað en hið rétta, hugrekkið sé hugrekki o.s.frv. – hin sértæka skilgreining grundvallarins sem það er situr í fremsta sæti. Sú líking sem telst til fyrirmyndar samsvarar hreinni samsemd fyrirmyndarinnar, hin hreina líking eftirmyndanna samsvarar svokallaðri hermilíkingu . Þrátt fyrir þetta getum við ekki sagt að platonisminn hafi framþróað þessa getu endursýningarinnar  getunnar vegna: hann takmarkar sig hins vegar við að afkróa það sem gæti ruglað markalínunum.

En útbreiðsla endursýningarinnar sem vel grundvölluð og takmörkuð gæði, sem endanleg endursýning, er fyrst og fremst viðfangsefni Aristótelesar: endursýningin yfirtekur allt sviðið sem nær allt frá hinum æðstu tegundum til örveranna, og hjá Aristotelesi tekur aðferð uppskiptinganna á sig hefðbundið svipmót skilgreininga, sem ekki er að finna hjá Platon.

Við getum staðfest þriðja þátt eftirlíkinganna þegar það gerðist undir áhrifum kristindómsins, að ekki var lengur reynt að gefa endursýningunni traustari grundvöll, gera hana framkvæmanlega eða tilgreina hana og skilgreina sem endanlega, heldur var hún gerð óendanleg. Yfirskyn eftirlíkingarinnar var látið jafngilda endursýningunni, hún látin jafngilda yfirtöku hermilistarinnar (imitato), og hún látin ná jafnt til hins óendanlega stóra og hins óendanlega smáa. Endursýningin (rappresentazione) var þannig opnuð gagnvart þeirri Veru sem nær út yfir hin stærstu fyrirbæri og hinar smæstu tegundir í það óendanlega.

Leibnitz og Hegel hafa sett mark snilligáfu sinnar á þessa tilraun. Engu að síður er það svo, að ef ekki tekst svo auðveldlega að losna úr hnappheldu endursýningarinnar (rappresentazione), þá er það fyrir tilverknað viðvarandi eftirspurnar eftir Hinu Sama og Hinu Líka.

Hið Sama hefur hins vegar fundið sér skilyrðislausa reglu er megnar að veita því takmarkalaus yfirráð: hina fullnægjandi rökhugsun. Hið Líka hefur fundið sér aðstæður er megna að beita því á það takmarkalausa: samkvæmnina eða samfelluna. Staðreyndin er sú, að jafn auðugt hugtak (nozione) hjá Leibnitz og la compossibilità (möguleiki samvirkninnar) felur í sér, að því gefnu að stökin (monadi) eigi sína líkingu í stökum punktum (punti singolari), þá geti sérhver heild er finnur samsvörun í þessum punktum, framlengt sig í aðrar heildir samsvarandi öðrum punktum:  annar heimur upphefst í nágrenni punktanna er sýndu frávik frá áunnum heildum (serie). Við sjáum þannig hvernig Leibnitz útilokar ósamræmið með því að dreifa því á „incompossibili“ (ósamverkanleikana) og viðhalda hámarks samkvæmni og samfellu sem mælikvarða á bestan mögulegan heim, sem er raunheimurinn. (Leibnitz gefur hinum heimunum einkunnina „pretendenti“ (yfirskyn, tilgerð), er byggi á veikari grunni).

Sama máli gegnir um Hegel. Nýlega hefur verið sýnt fram á[i] hvernig hringir díalektíkurinnar snérust í kringum eina miðju og gengu út frá einni miðju. Miðjusetning hringanna eða samsemd heildanna (serie): heimspekin yfirgefur ekki þátt endursýningarinnar (rappresentazione) þegar hún leggur í landvinninga hins óendanlega. Ölvun hennar er látalæti. Hún fylgir alltaf sömu heimavinnunni, Íkonologíunni (túlkun helgimyndanna),og aðlagar hana að úthugsuðum þörfum kristindómsins (hins óendanlega smáa og óendanlega stóra). Alltaf er um að ræða val kröfuhafanna (pretendenti), útilokun hins sérvitra og utangátta í nafni æðri tilgangs, hins hreinræktaða veruleika, og einnig í nafni merkingar sögunnar.

Fagurfræðin þjáist af gegnumdrepandi tvíræðni. Annars vegar setur hún fram kenninguna um skynjunina sem form hinnar mögulegu reynslu. Hins vegar setur hún fram kenninguna um listina sem íhugun um raunverulega reynslu. Til þess að þessar tvær tilætlanir nái saman, þurfa aðstæður reynslunnar í heild sinni að vera sjálfar skilyrði raunverulegrar reynslu. Þannig séð verður listaverkið sjálft að birtast í raun sem tilraun. Við vitum til dæmis að vissar aðferðir bókmenntanna (hinar listirnar eiga sér sambærileg dæmi) leyfa að fleiri frásagnir séu fluttar samtímis. Þetta er án efa eitt af einkennum nútímalistarinnar. Hér er alls ekki um ólík sjónarhorn að ræða á tiltekna sögu, sem gengið er út frá að sé hin sama. Sjónarhornin eru undirsett tiltekinni samþættingarreglu. Hér er hins vegar um að ræða ólíkar og misvísandi sögur, rétt eins og tiltekið afmarkað landslag samsvari sérhverju sjónarhorni. Um er að ræða einingu misvísandi heilda hvað varðar misvísunina, en ávallt er um afmiðjaða óreiðu að ræða, sem myndar sjálf hreina einingu í heildarverkinu, La Grande Opera.

Þessa formlausu óreiðu finnum við í hinu mikla verki (James Joyce) Finnigans Wake. Þetta er ekki handahófskennd óreiða. Um er að ræða fullyrðingavald, vald til að samtengja þessar ólíku seríur í eina heild, er felur í sér allar seríurnar (út frá þessu getum við skilið mikinn áhuga James Joyce á Giordano Bruno sem kennigasmiðnum um complicatio (flækjur)). Á milli þessara grunnþátta heildarverksins verður til eins konar innri endurómur. Þessi endurómur kallar fram þvingaða hreyfingu er nær út yfir seríurnar sjálfar. Öll persónugervin tilheyra eftirlíkingunni (simulacro) þegar hún brýtur hlekki sína og kemur upp á yfirborðið. Eftirlíkingin staðfestir þannig eigin vald sem draugagangur, þetta frátekna vald sitt.

Við munum að Freud hafði þegar sýnt fram á hvernig vofan á sér að minnsta kosti tvíþættar rætur, annars vegar í frumbernskunni, hins vegar í fullorðinsárunum. Tilfinnigaþunginn sem tengist vofunni og draugaganginum skýrist af innri endurómun, sem borin er fram af líkingunum og dauðaskynjuninni, fráhvarfi og sundurlimun lífsins; þessi tilfinningaþungi skýrir sig með útvíkkun tilbúinna þvingandi hreyfinga sem þessu fylgja. Þannig samtvinnast aðstæður hinnar raunverulegu reynslu og byggingalegir þættir listaverksins: misvísanir frásagnanna, afmiðjun hringanna, framkvæmd óreiðunnar sem tengir þær saman, innri endurómur og útvíkkandi hreyfing, árásargirni  Ígildanna.

Sambærileg kerfi, þar sem sett er af stað samtal ólíkra eða sundurleitra þátta, eru í vissum skilningi mjög algeng. Það eru kerfin sem byggja á vísbendinga-merkjum (segnali-segno). Það eru vísbendinga-merkja kerfi. Vísbendingar (segnale) eru tiltekin gerð, þar sem skiptast á ólíkar megundir (potenziale) er tryggja samskipti aðskildra; merkið er það leifturskot er verður á milli tveggja sviða snertiflatanna, á milli tveggja samskiptaþátta. Í raun virðist sem öll fyrirbæri svari slíkum aðstæðum í samræmi við aðstæður í tilteknu misræmi eða mismun, í gefnu ójafnvægisástandi. Öll áþreifanleg kerfi eru merki, öll gæði eru merki. Engu að síður er ljóst að þeir þættir er mynda jaðarinn (bordo) eru útvortis. Að sama skapi verða framlegðaraðstæður þeirra útlægar gagnvart fyrirbærunum. Til þess að hægt sé að tala um Ígildi  þurfa þessir útvortis þættir að ganga í gegnum raunverulega inntöku í kerfinu, vera meðteknir og flæktir í óreiðuna, mismunur þeirra þarf þannig að vera innifalinn. Vafalaust er alltaf um einhverja líkingu að ræða á milli þeirra þátta sem enduróma. Það er í sjálfu sér ekki vandamál, það varðar hins vegar tilfelli og afstöðu slíkra líkinga.

Hugsum okkur formúlurnar tvær: „einungis það sem líkist felur í sér mismun“, „einungis ólíkir mismunir fela í sér líkingu“. Um er að ræða tvenns konar lestur á matsaðferð, þar sem önnur fær okkur til að hugsa mismuninn út frá líkingunni eða tiltekinni gefinni samsemd. Hinn lesturinn býður okkur þvert á móti að líta á hið líka ásamt samsemdinni sem afleiðingu grundvallar mismunar.

Fyrri lesturinn skilgreinir nákvæmlega heim eftirlíkinganna eða endursýninganna (rappresentazioni). Hann gefur sér heiminn sem helgimynd (icona). Hins vegar skilgreinir seinni lesturinn heim Ígildanna (simulacri). Hann setur heiminn fram sem hugarburð eða vofu. Frá þessum sjónarhóli skiptir hinn upprunalegi mismunur, sem Ígildið byggir á, litlu máli, – hvort hann sé mikill eða lítill. Komið getur fyrir að báðir grunnþættirnir búi aðeins yfir smávægilegum mismun. Engu að síður nægir að grundvallar mismunurinn sé metinn í sjálfum sér, og ekki sé fyrirfram gengið út frá neinni gefinni samsemd. Það þýðir að stuðst sé við dispars (mismun) sem mælieiningu og samskiptameðal. Þannig getur líkingin verið hugsuð aðeins sem afurð slíks innri mismunar. Litlu máli skiptir hvort kerfið byggi á mikilli ytri líkingu og lítilli innri líkingu -eða öfugt, þar sem líkingin er sett fram á kúrfuferil og mismunurinn, mikill eða lítill, myndar alltaf miðju slíks kerfis sem er afmiðjusett.

Umturnun Platonismans felur því í sér eftirfarandi: að hefja ígildin (simulacri) til vegs, að staðfesta rétt þeirra í flokki helgimynda eða eftirmynda (copie). Vandinn snýst ekki lengur um aðgreiningu Kjarna og birtingarmyndar eða Fyrirmyndar og eftirmyndar. Slík aðgreining virkar í heild sinni í heimi endursýninganna (rappresentazione). Um er að ræða að framkvæma undirróðurinn með þessum hætti, „Sólsetur Guðanna“ (Nietzsche). Ígildið (il simulacro) er ekki léleg eftirlíking, það felur í sér jákvæða orku sem afneitar bæði fyrirmyndinni og eftirlíkingunni, bæði frumgerðinni og afsteypu hennar. Í þessum ólíku tilvikum, sem hafa bæði verið innlimuð í Ígildið (simulacro), verður hvorugur þátturinn staðfestur sem frumgerð, og hvorugur sem eftirmynd (copia). Það dugar heldur ekki að ákalla fyrirmynd Hins, því engin fyrirmynd getur staðist svimandi hrun Ígildisins. Ekkert sjónarhorn er umfram annað, nema um sé að ræða almennt viðfang allra sjónarhorna.

Hér kemst ekkert stigveldi að: hvorki fyrsta né annað sæti…  líkingin stenst, en hún verður til fyrir tilverknað ytri áhrifa Ígildisins, sem tekur sér stöðu á báðum vígstöðvunum og lætur þær bergmála. Samsemdin stenst, en verður til eins og löggjöf er nái til allra paranna og lætur þau hverfa aftur hvert inn í annað fyrir tilverknað tilbúins atburðar.

Með umturnun Platonismans er talað um líkinguna sem samsemd og innbyrtan mismun (differenza interiorizzata). Einnig er talað um Mismuninn (Differente) sem frumkraft. Það sem við köllum Hið Sama og Ígildið varðveita héðan í frá kjarna sinn í því að vera samsömuð (simulati), það er að segja í því að tjá virkni Ígildisins. Ekkert val er lengur í boði. Verkið sem hefur verið svipt stigveldinu, felur í sér samþjappaða samsemd, samsömun atburðanna. Þetta er sigurganga hins falska kröfuhafa (pretendente). Hann framkallar ígildi föðurins, vonbiðilsins og kærustunnar undir margföldu lagi andlitsgríma. Þessi falski kröfuhafi verður hins vegar ekki sakaður um uppgerð, miðað við meinta frummynd hins sanna, ekki frekar en Ígildingin geti kallast svipmynd, vofa eða blekking.

Það er hermilistin (simulazione) sem er hinn raunverulegi draugur, það er að segja virkni og áhrif Ígildingarinnar (simulacro) sem vélbúnaður, sem díonysískt vélavirki. Um er að ræða hið falska sem vald, Pseudos, í sama skilningi og felst í orðum Nietzsche: æðsti valdastóll hins falska. Ígildið færir Hið sama og Hið svipaða í faðm valdsins, fyrirmyndina og eftirlíkinguna, með því að yfirtaka yfirborðið. Regla þátttökunnar, trygging útbreiðslunnar og ákvörðun stigveldisins eru útilokaðar. Þessi umturnun Platonismans stofnsetur heim flökkudreifingar og hins krýnda stjórnleysis.

Í stað þess að vera nýr grundvöllur gleypir þessi umturnun í sig allar undirstöður, tryggir allsherjar hrun sem jákvæðan og gleðiríkan viðburð, rétt eins og botnleysið: á bak við sérhvern helli bíður annar og enn dýpri hellir, – víðari og undarlegri heimur og auðugri ofan yfirborðsins, hyldýpi undir hverjum botni, undir sérhverjum grunni.

Hvernig gæti Sókrates fundið sjálfan sig í þessum hellum, sem eru ekki lengur hans? Með hvaða leiðarþræði, þegar þráðurinn er þegar tíndur? Hvernig gæti hann ratað út, og hvernig gæti hann haldið áfram að greina sig frá sófistunum?

Þegar við segjum að hið Sama og hið Líka séu eftirlíkingar og Ígildi (simulati), þá merkir það ekki að um sé að ræða ímyndanir og blekkingar. Eftirlíkingin myndar valdið til að hafa áhrif. En það gerist ekki bara samkvæmt orsakalögmálinu, því orsakasamhengið væri áfram hrein ágiskun og ógreinanlegt án íhlutunar annarra merkinga. Það gerist í skilningi „merkisins“ (segno) sem verður til við merkingargjöf. Það er í skilningi „siðvenjunnar“, eða öllu heldur grímunnar, sem tjáir tiltekið ferli felubúnings, þar sem á bak við hverja grímu bíður önnur gríma…

Ekki er hægt að greina Ígildingu í þessum skilningi frá hinni eilífu endurkomu (Nietzsche). Með hinni eilífu endurkomu á sér reyndar stað umturnun helgimyndanna, eða umturnun þess heims sem við kennum við Endursýningu (rappresentazione). Hér gerist allt eins og um væri að ræða hulið innihald, er setti sig upp á móti hinu sýnda inntaki. Hægt er að heimfæra hið sýnda inntak hinnar eilífu endurkomu upp á Platonismann í heild sinni: Hann sýnir þá með hvaða hætti óreiðan er skipulögð fyrir tilverknað frumglæðisins (demiurgo), samkvæmt forskrift Hugmyndarinnar (Idea) sem þvingar hið Sama, og hið Sviplíka (simile) upp á hana. Í þessum skilningi er hin eilífa endurkoma óráðsflan (divenire folle), til þess gert að endurskapa eilífðina undir hinu einsýna feðraveldi. Þannig birtist endurkoman í goðsögn skaparans: Þessi goðsaga leggur grunnninn að eftirgerðinni í myndinni, gerir myndina undirsetta eftirlíkingunni. En þetta sýnda inntak er langt frá því að endursýna sannleika hinnar eilífu endurkomu, inntakið sýnir öllu heldur goðsögulega notkun þess og langlífi í hugmyndafræði sem afber inntakið ekki lengur, og hefur gleymt leyndarmáli þess.

Það er við hæfi að minna á, hvernig hin eilífa endurkoma vakti almennan  hrylling í hinni grísku þjóðarsál, og einkum og sér í lagi í Platonismanum, þegar hugað var að undirliggjandi merkingu hennar. Taka þarf undir með Nietzsche, þegar hann nálgast hina eilífu endurkomu sem sína eigin svimandi hugmynd, er nærist eingöngu á framandlegum dionysískum lindum, sem Platonisminn hefur bæði hafnað og hunsað. Vissulega takmarkast þær sjaldgæfu sýningar, sem Nietzsche stóð fyrir, við hið sýnda inntak: hin eilífa endurkoma í mynd hins Sama er kallar fram Líkinguna.

En hvernig getum við horft framhjá ósamræmi þess mismunar sem er á þessum flata náttúrlega sannleika, er nær ekki lengra en til almennustu dagmálaskipta, – og tilfinningasveiflum Zaraþústra? Þar að auki verður þessi sýnda framsetning (esposizione manifesta) einungis til þess að mæta ótvíræðum andmælum Zaraþústra: einu sinni ásakar hann dverginn, og í annað skiptið dýrin, fyrir að umbreyta því sem býr yfir mikilli dýpt í hreina flatneskju, að breyta djúphugsaðri tónlist í „dægurflugu“ og að breyta því sem felur í sér hreinustu torfærur í einfalt hringferli. Í hinni eilífu endurkomu þarf að meðtaka hið sýnda inntak, einungis til þess að uppgötva það dulda innihald sem hvílir á þúsund feta dýpi (á bak við sérhvern helli, annar og víðfeðmari hellir…). Það sem Platon fannst vera geldur útúrdúr sýndi sig þannig að vera óbreytanleiki grímanna, hin óyfirstíganlegu merki.

Leyndardómur hinnar eilífu endurkomu felst í þeirri staðreynd, að hún tjáir enga reglu sem andæfir gegn óreiðunni og yfirbugar hana. Þvert á móti er hún ekkert annað en óreiðan, valdið sem staðfestir óreiðuna. Eitt atriði gefur til kynna að James Joyce sé Nietzsche-sinni: Þegar hann sýnir að vicus of recircolation geti ekki komið „caosmos“ á hreyfingu með árekstri. Samkvæmni Endursýningarinnar (rappresentazione) setur annan hlut í stað hinnar eilífu endurkomu: eigin óreiðu-villu („cao-erranza“). Einmitt vegna þess að á milli hinnar eilífu endurkomu og Ígildisins liggja svo djúpir leyniþræðir, að annað verður ekki skilið án hins. Þetta eru andstæðir þættir sem eiga sína endurkomu, en mætast aftur þar sem hvor um sig flytur eigin mismun með öllum hinum, og þar sem allir flækja eigin mismun í óreiðu sem á sér hvorki upphaf né endi.

Hringur hinnar eilífu endurkomu er hringferli án miðjusetningar, sem hefur alltaf afmiðjaða miðju. Það er rétt hjá Klossowsky, þar sem hann heldur því fram að hin eilífa endurkoma sé „ígildi kenningar“: hún er vissulega Veran, en einungis þegar „verandinn“(sá sem er) er fyrir sitt leyti Ígildi. Ígildið virkar þannig að líkingin er bakslag er beinist óhjákvæmilega að grunnforsendu sinni og samsemd (identità), sem er óhjákvæmilega þvinguð. Hin eilífa endurkoma er þannig hið Sama og hið Líka, þar sem Ígildingar eiga sér stað, afurðir líkingarinnar og virkni Ígildisins (viljans til valds). Það er með þessum hætti sem hin eilífa endurkoma kollsteypir Endursýningunni  og eyðileggur helgimyndirnar: endurtekningin gengur ekki út frá hinu Sama og hinu Líka, heldur felur hún einungis í sér það eina Sama þess er myndar Mismuninn, einu líkingu hins ósamkvæma (dispaiato).

Hin eilífa endurkoma er hinn eini sanni draugur allra Ígilda (vera allra veranda). Hún er valdið til að staðfesta áttleysið (divergenza) og afmiðjunina, og gerir hana að viðfangi æðri fullyrðingar. Í gegnum vald hins falska kröfuhafa lætur hin eilífa endurkoma það sem er ganga, og ganga aftur. Þannig lætur endurtekningin ekki allt koma aftur, hún á sér ennþá valkosti, horfir í mismuninn, en alls ekki samkvæmt aðferð Platons. Það sem hin eilífa endurkoma velur eru allar þær uppákomur er setja sig uppi á móti valinu. það sem hin eilífa endurkoma útilokar og lætur ekki endurtaka sig er það sem gengur út frá Hinu Sama og Hinu Líka, það sem þykist leiðrétta ósamkvæmnina, þykist miðjusetja hringina, koma reglu á óreiðuna, framvísa fyrirmyndinni og gera eftirmynd hennar.

Hversu gamall sem Platonisminn kann að vera, þá gerist hann bara einu sinni, og Sókrates lendir undir fallöxinni. Hið Sama (Medesimo) og hið Sviplíka (Simile) verða í raun einfaldar tálsýnir (illusioni), einmitt þegar þær hætta að vera Ígildi (simulati).

Vald Ígildisins er skilgreining á Nútímanum (Modernità). Það stendur upp á heimspekina að vera ekki skilyrðislaust nútímaleg, né heldur að vera tímanleg. Frekar ber henni að láta nokkuð sem Nietzsche kenndi við hið ótímabæra (l‘intempestivo) birtast í nútímanum: það sem tilheyrir nútímanum þurfi engu að síður að vera öfugsnúið (ritorto) gagnvart honum og „hliðhollt framtíðinni“. Heimspekin verður hvorki til í skógarþykkninu né á göngustígunum (slóðir Heideggers, innsk. þýð.), heldur í borgunum og strætunum, þar með talið í því tilgerðarlegasta sem þar er að finna.

Hið ótímabæra festir sig í sessi í tengslum við hið fjarlægasta, í umturnun Platonismans, í tengslum við samtímann, í Ígildinu skilið sem hættumerki hans, í tengslum við framtíðina , í vofu hinnar eilífu endurkomu sem átrúnað framtíðarinnar. Uppspuninn og Ígildið eru ekki bara sami hluturinn, heldur líka andstæður. Uppspuninn er alltaf eftirgerð eftirgerðar sem þarf að þjarma að, þangað til eðli hans breytist og hann umturnast í Ígildi (tímabil Popplistarinnar).

Í hjarta nútímans, á sjálfum skurðpunktinum þar sem hann gerir upp eigin sakir, þar snúast uppspuninn og Ígildið gegn hvort öðru, rétt eins og tvö ólík eyðingaröfl: tómhyggjurnar tvær. Það er mikill munur fólginn í  annars vegar að eyðileggja í því skyni að varðveita og framlengja þeirri reglu sem felst í endursýningunum, fyrirmyndunum og afritunum, og hins vegar að eyðileggja fyrirmyndirnar og afritin í því skyni að framkalla hina skapandi óreiðu, sem lætur Ígildin virka og hefja vofurnar til vegs: tortíming Platonismans er það saklausasta af öllum niðurrifsverkum.

[i] Louis Altusser hefur skrifað af tilefni Hegels: „Hringur af hringum, vitundin á sér ekki eina miðju og aðeins hana sem skilgreiningu: þar kæmu til aðrir hringir, hringir er ættu sér miðjur ólíkar hennar, afmiðjaða (eccentrici) hringi til að endurskynja raunverulega í eigin miðju útisetu (ecacia) sína: þannig þyrfti að endurmeta hringina í kjarna sínum“. (Pour Marx…)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

CARLO SINI: SAMRÆÐA UM HLUTINN, MERKIÐ OG FJARLÆGÐINA

Hluturinn sem merki samkvæmt Carlo Sini

 

Kaflinn um „Heimspekina og merkingarfræðina“ í heildarútgáfu verka Carlo Sini: Opere, Volume I, Tomo I.

Fyrra bindið (af tveim) í fyrstu bók þessarar heildarútgáfu hefur titilinn „Lo spazio del segno – Semiotica ed ermeneutica“ (Rými merkisins – Merkingarfræði og túlkunarfræði)
Fyrsta bindið í ritsafni Carlo Sini, sem kom út hjá Jaca Book 2017 (470 bls.) í ritstjórn Florindu Cambria, fjallar að stórum hluta um uppgjör Sini við Nietzsche og Heidegger og frumspekina í heild sinni og framlag hans til merkingarfræðinnar, þar sem Sini leiðir hugmyndir bandaríska heimspekingsins Charles S. Peirce um "merkin" inn í þá heimspekilegu deilu sem hefur einkennt  samtímann og verið lýst sem gjá eða klofningi milli  heimspekiskóla sem kenndir hafa verið við „meginlands-heimspeki“ annars vegar og heimspekiskóla hins engilsaxneska pragmatisma hins vegar. Í þessari deilu gegnir tungumálið mikilvægu hlutverki og hið frumlega í nálgun Sini felst ekki síst í því að tengja merkingarfræði Peirce inn i þessa deilu og hugmyndir hans um virkini „merkisins“, sem er í raun samheiti yfir orðin, myndirnar og táknin sem við notum til að nálgast hlutina og okkur sjálf. Í þessu samhengi eru „hlutirnir“ (þar með taldir mennirnir) kynntir til sögunnar sem „merki“. Greining Carlo Sini á virkni merkisins er hér sett fram í samtalsformi á snilldarlegan hátt og skýrir fyrir okkur á tiltölulega auðskildu talmáli þær heimspekilegu ráðgátur sem felast í venslum mannsins, merkisins og hlutarins, ráðgátur sem hafa verið til umræðu hér á vefnum í textum Kants, Nietzsche, Heideggers, Lacans og Agambens. Þessi kafli er framhald undangenginnar umræðu Sini um heimspekina og merkingarfræðina, um  formgerðarstefnu  Claude-Levi Strauss og Saussure, um fyrirbærafræði og and-húmanisma Heideggers og Strauss, húmanisma og tilvistarstefnu Sartre og fornleifafræði hugmyndanna hjá Foucault. Þessi kafli veitir okkur í stuttu máli nýja og skýra innsýn í þá umræðu sem ég hef dregið fram hér á vefnum í endursögn á textabrotum þessara höfunda. Auk þess má lesa þennan kafla sem stutta kynningu á frumlegasta framlagi Sini í þessari umræðu, en það er tenging fyrirbærafræðinnar, túlkunarheimspekinnar og hins bandaríska pragmatisma í nokkuð heilsteypta heimspekilega hugsun. Vonandi tekst mér að skrifa samantekt með samanburði á hugmyndum þessara höfunda á næstunni og birta hér á vefnum.

Merkið og fjarlægðin

Þegar talað er um endalausa merkingarfræði (semiosi infinita) rekumst við oft á -með hrapallegum afleiðingum – þá almennu og venjubundnu hefð að líta á merkið sem „natúralískt“ fyrirbæri: merkið er þannig skilið sem hver annar hlutur meðal hluta: við höfum tréin, fljótin, hallirnar, bílana, hundana, börnin og svo merkin (í almennum skilningi: til dæmis merki hins talaða og ritaða tungumáls, umferðarskiltin, stafróf heyrnarlausra-mállausra, hljómkall trompetsins, allt svið táknanna, „heilkennanna“ o.s.frv.) Þessi almenni skilningur byrjar hins vegar að missa fótfestu sína þegar við áttum okkur á að merki er aldrei hin beina merking tiltekins hlutar (kannski væri réttara að segja meints hlutar) heldur vísun í annað merki.

— „Meintan“ hlut? Ert þú kannski að halda því fram að hlutir eða viðföng séu ekki til? Hvaða merkingarfræðilega öfgahughyggja er hér á ferðinni?

— Í vissum skilningi vildi ég einmitt segja þetta.

— En hvaða tilgangi þjónar það að skilgreina sem merki allt það sem almennt og ekki af ástæðulausu hefur verið kallað hlutir (náttúrlegt fyrirbæri eins og tré, eða tilbúið fyrirbæri eins og til dæmis járnbrautalest)?

— Ég ætla að reyna að svara. Þó ég viti að það er ekki auðvelt. Við getum byrjað með því að segja að þó járnbrautalestin sé vissulega  „hlutur“ (oggetto), en eins og Peirce segir, þá er hún það fyrir tiltekinn „Túlkanda“.  Við höfum ekki bara lest, og svo búið mál. Það er lest fyrir einhvern /einhverjum.

— Æ, já, það er gamla kenningin hans Berkeley: esse est percipi (vera er skynjuð). En allir vita að…

— Ég bið þig að grípa ekki of snemma fram í fyrir mér: við þurfum að sýna smá þolinmæði. En, sem sagt, ég sagði að það sé lest fyrir einhvern. En þegar ég segi „einhvern“, þá á ég ekki við „ég“, „þú“, „við“ o.s.frv. Túlkandinn er í raun og veru ekki „sjálfsvera“ („soggetto“) í hefðbundnum skilningi þess orðs. Túlkandinn tilnefnir menningarlega heild „merkinga“ sem eru í sjónmáli mögulegs þekkingarsviðs á skilgreindum hlutum.

— Hér má auðveldlega greina óskiljanlegan tjáningarmáta hughyggjumeistarans og orðfæri hans: það er kvalræði að reyna að fylgja honum eftir og skilja!

— Gott og vel: segjum sem svo að skýin séu hlutirnir, og andrúmsloftið sé það sem við kölluðum áður „menningarlega heild merkinga“. Nú eru skýin í andrúmsloftinu (atmosfera), við getum skynjað þau sem slík, en einungis í andrúmsloftinu. Ef ekkert er andrúmsloftið, þá eru engin ský, en þau eru formgerðir (formazioni) þess. Þannig sjáum við að til þess að geta aðgreint hlutina sem slíka, þurfum við skilgreinda menningu sem hægt er að dvelja í og birtast í (byggingu umræðuhæfra formgerða og sérstakra tilnefninga, myndi Foucault hafa sagt). Ef við notum dæmið af „lestinni“ sem áður var nefnd: ef túlkandinn er „Babilóníubúar“ eða „pygmýa-frumbyggjar“ (menning Babilóníumanna eða Pygmýa-frumbyggja), þá er ekki um neinn „hlut“ að ræða sem heitir „lest“. Hjá þeim er eitthvert hliðstætt fyrirbæri  ekki til staðar, hvorki í reynd (Babilóníumenn höfðu engar lestir), né sem aðgengi (pygmýa-frumbyggi sem kemur til Evrópu getur ekki séð „lest“ þegar við sýnum honum hana, jafnvel þótt auðvitað sjái hann „eitthvað“. Endanlega vildi ég skilgreina þetta „eitthvað“ sem „atburð“, en að svo komnu máli er víst best að sleppa þessu atriði og gera okkur að góðu fyrri nálganirnar með dæmum okkar). Ertu sammála?

— Sammála. Ég vildi bara benda á hvernig frumspekilegur hughyggjumaður, síðasti nemandi Sókratesar, myndi líta á dæmið um skýin sem huggulegan lapsus animae, en ég er ekki að gera mál úr því.

— Gott og vel, þá getum við haldið áfram. Reynum að taka saman það sem þegar hefur komið fram (mjög yfirborðslegt, og þess vegna óljóst): Rétt eins og hver annar hlutur, þá ætti „viðfangið“ lest að geta staðsett sig í samhengi hugtaka (menningarlegra merkinga) sem túlka hlutinn (túlka hann einmitt sem „lest“). Það er þetta samhengi sem við túlkum hér sem Túlkanda (Interpretante), og það er mikilvægt að hafa í huga.

— Ég hef aldrei heyrt „samhengi“ segja: „Lestin mín er að koma“…

— Einmitt, hárrétt athugað. Þetta er athugasemd sem Heidegger hefði talið “hárrétta“.

— Því trúi ég! Að minnsta kosti er ég sama sinnis: það eru takmörk fyrir sérviskuuppátækjum frumspekinganna! Einnig þeir taka lestina þegar þeir fara á ráðstefnur (undir titlinum: „Við erum alltaf alls staðar og hvergi“). Svo taka þeir lestina heim.

— Ég veit ekki hvort hægt sé að segja um Heidegger að hann sé frumspekingur, og þegar hann talar um nákvæmni (esattezza), þá á hann vissulega við það sem við erum vön að meina með þessu orði, en um leið á hann við annað og flóknara mál…

— Þó það nú væri! Var nokkur von á öðru?

–…reyndar er það ekki samhengið (contesto) sem segir: „Lestin mín er að koma“, það erum við sem segjum það, „ég“, „þú“, „við“ o.s.frv. Getum við sæst á þetta og haldið áfram?

–Að sjálfsögðu.

–Jæja, „ég“, „þú“ o.s.frv. könnumst við lestina, en það gerist í krafti þess að við tilheyrum tilteknu menningarlegu samhengi (contesto), það er að segja almennum túlkanda. Ef við viljum, þá getum við vel sagt að „ég“, „þú“ o.s.frv. séum „holdgerðir“ túlkendur. Við gerum athafnir okkar virkar með gjörðum okkar og forþekkingu, í gegnum merkin og merkingarnar, sem mynda saman okkar menningarlega samhengi og okkar almenna túlkanda. En með öllu þessu höfum við alls ekki sagt né sýnt fram á, að „lestin“ sé merki, og í hvaða skilningi það geti verið.

— Ég var einmitt að hugsa um það.

— Gott og vel,  til þess að geta sýnt hvernig lestin er merki (ekki orðið „lest“, eða skiltið „gætið ykkar á lestinni“, heldur hin raunverulega lest úr stáli og skrúfum) þurfum við að spyrja okkur þessarar spurningar: hvernig sýnir lestin sig gagnvart okkur? (un „treno, come si da?). Það á við um lestina eins og alla aðra hluti, að hún sýnir sig ekki í algjörri birtingu, með fullu innsæi. Ég hef aldrei fyrir mér „alla þessa lest“ né heldur „lestina“ eins og um væri að ræða kjarna hennar eða hina platónsku hugmynd hennar. Með öðrum orðum, þá er alltaf til staðar viss „fjarlægð“ á milli þess sem birtist og þess Túlkanda af holdi og blóði, sem gæti til dæmis verið ég. Við skulum jafnframt hafa í huga að sérhver fjarlægð hefur sinn hátt á að vera fjarlæg. Við gætum orðað þetta þannig að hin upphaflega eða frumlæga reynsla er reynsla fjarlægðarinnar. Hún gefur í sérhverju tilfelli til kynna „uppfyllingu“ sína (eins og Husserl hefði sagt), það er að segja, hvernig við eigum að umgangast hana til þess að eyða henni.

— Hin frumlæga reynsla er reynslan af fjarlægðinni. Hvernig gerist hún? Mér virðist þetta vera óljósasta fullyrðingin fram að þessu.

— þarf að skýra þetta betur. Það gerðist einnig með góðvin minn frá París, eftir að hafa hlustað með eftirtekt og þolinmæði á mínar tyrfnu útskýringar eins og hann var vanur, þá sagði hann að þessi skilningur á fjarlægðinni væri að þvælast fyrir honum og gerði honum torskilið þetta eðli merkisins, sem ég var að reyna að skýra. Ég ætla því að reyna að byrja upp á nýtt, og nálgast efnið frá öðru sjónarhorni. Sem sagt:

Annað hvort er ekkert eða eitthvað. Ef eitthvað er, þá er fjarlægð. Þetta er tilgátan. Reynum að skýra hana.

Við skulum byrja á að segja að eitthvað geti verið með margvíslegum hætti. Ég á við: við erum ekki bara að hugsa um skynreynsluna, eða dómgreindina (hvort sem um er að ræða greiningu í hugtakakvíar eða forsögulega greiningu (categoriale o precategoriale)). Eitthvað getur verið, til dæmis eins og kraftaskaut tiltekins átakavettvangs, eða þá gjörningur eða hegðun. Það getur verið póll einhverrar hneigðar eða löngunar, til dæmis að gleypa eða æla eða eitthvað því um líkt. Nú felur sérhvert „eitthvað“ í sér fjarlægðarmið (distanza vettoriale) sem við getum orðað með þessu móti: það gefur til kynna ákveðna stefnu eða markmið (að gera, að skynja, að taka inn, að langa í o.s.frv.). Eitthvað er með margvíslegum hætti að því marki sem það ber með sér þessa boðhætti (það er að segja hætti boðberans, (la sua vettorialità)).

Við höfum nú sagt að þetta „það er“ feli í sér fjarlægð, og þetta er grundvallaratriði, sem ekki er enn á hreinu. Höldum því áfram.

Ef eitthvað er, þá gefur Viðfangið sig fram (við skrifum hér Viðfangið (l‘oggetto) með stóru V til að gefa til kynna almennt eðli þess. Af sömu ástæðu skrifum við Túlkandann með stóru T). Viðfangið gefur sig fram; þetta þýðir að það er til staðar eða öðlast nálægð (presenza). Nú getur nándin annað hvort verið takmörkuð eða algjör. Með algjörri nánd (presenza. Ath. Þetta orð er á latínu prae-sensum sem merkið það sem er skynjað „á undan“, þ.e.: „forskynjun“) er Viðfangið sjálf nándin: það er allt í nálægð sinni, það er sjálf návistin (presenza). En þetta er einungis önnur aðferð við að segja að í algjörri nánd sé Viðfangið ekki. Það er ekki gerlegt að nálgast það, að hafa það í sjónmáli. Það er allt þarna (eða hérna, ef menn vilja það heldur) og það er eiginlega allt þetta þarna (eða hérna). Ekki er um neina fjarlægð að ræða á milli Viðfangsins og nándar þess. Hin algjöra návist er það sem ekkert verður sagt um eða reynt. Hún er hið beina og milliliðalausa (immediato) hjá Hegel og Peirce. Við getum tekið dæmi (sem ófullkomna tilgátu eins og öll önnur dæmi): reynsluna af algjörri návist sjáum við í reynslu barnsins í móðurkviði. Barnið hefur ekki móðir sína sem viðfang, það er með móðurinni, samtengt í algjörri návist viðfangs síns. Móðirin verður þá fyrst viðfang þegar nálægð hennar er orðin takmörkuð, það er að segja þegar viðfangið er ekki lengur algjörlega eitt með návistinni, heldur einmitt komið í fjarlægð hennar. Við höfum þannig staðsett okkur á sviði hinnar takmörkuðu nálægðar. Samkvæmt þessu er hér um að ræða eina tilfellið þar sem Viðfangið getur verið í návistinni (presenza) (að því gefnu að í algjörri návist  sé Viðfangið ekki til staðar og geti alls ekki verið það). Könnum þetta nánar.

Takmörkuð nálægð: eitthvað boðar sig í nálægð án þess að vera nándin (eða vera í henni). Hvers vegna segjum við „boðar sig“? Það er vegna þess að eina leiðin fyrir Viðfangið til að dvelja í nálægð án þess að vera nándin, það er að segja eina mögulega reynslan af takmarkaðri nærveru, felst í reynslunni af merkinu. Merki er boðberi (anghelos).

— Loksins komum við á sprengjusvæðið! Ég verð hins vegar að gera þá athugasemd, að ef allt er merki og merkin eru „englar“, þá opnast fyrir okkur heimsmynd sem er „englum lík“ (angelicata), nokkuð sem „stilnovistarnir“ gætu horft til með öfundaraugum („stilnovistar“ eru miðaldaskáld mansöngva af skóla Dante). Við höfum sem sagt flutt okkur um set frá því að lifa í skýjunum upp í að lifa meðal englanna.

— Að því marki sem hlutirnir eru „boðanir“ get ég ekki annað en samsinnt. En við skulum reyna að kanna dýpra. Við skulum spyrja okkur hvaða tengsl séu á milli hins algjöra Viðfangs og hins takmarkaða. Við gætum svarað (svolítið goðsögulega) að hið algjöra Viðfang (það sem ekki á sér stað í nærverunni) samsvari fjarverunni, algjörri fjarveru. Hið algjöra Viðfang er glatað viðfang. Þessi missir hins algjöra Viðfangs, þessi róttæka fjarvera, er hins vegar forsenda sérhverrar nærveru (sem við höfum nú skilið að er alltaf takmörkuð nærvera) . Við gætum þar með sagt: í sinni takmörkuðu nærveru hins altæka Viðfangs er með einhverjum hætti um endurfund að ræða, takmarkaðan endurfund. En hér vildi ég vera nákvæmari: Hið altæka Viðfang er „fundið“ (ekki „endurfundið“, þar sem frá þessari stundu hefur það aldrei áður verið fundið. Þetta er smáatriði sem skiptir að mínu mati höfuðmáli. Það er eins og að segja að Viðfangið sé glatað aðeins í takmarkaðri nærveru sinni, áður  væri það hvorki glatað né höndlað. Hin altæka nálægð og hið algjöra Viðfang eru þannig þættir og forsendur takmarkaðrar nærveru hins takmarkaða Viðfangs, ekki „goðsögulegt“ svið er komi til á undan tímanum og rýminu. Hið altæka Viðfang er þannig einn þáttur og einn verumáti merkisins).

— Mín tillaga væri sú að setja hömlur á hömlulausa óðamælgi fræðimannsins og þessa sífelldu flugeldasýningu, en taka þess í stað upp leiðarþráðinn sem ég var, þótt ótrúlegt sé, farinn að fylgja eftir.

— Sammála, það væri sanngjarnt. En framhald þessarar hugsunar (ég meina raunverulegt framhald) líkist reyndar meira flugeldasýningu en rökhendu, jafnvel þó það sé alltaf mögulegt, eins og Peirce sagði, að draga hana saman í rökhendu. En ég sný engu að síður aftur að virðingarstiganum. Sagt var: í nærveru hins algjöra Viðfangs á sér með einhverjum hætti stað endurfundur  (eða fundur); „með einhverjum hætti“ merkir hér: um er að ræða takmarkaðan endurfund. „Takmarkaður endurfundur“ merkir : endurfundurinn sem merki. Og þar sem merkið er boðberi, þá felur það í sér að hið takmarkaða Viðfang (það sem er til staðar) er boðberi hins altæka Viðfangs (við gætum einnig orðað það, út frá því sem áður var sagt, að um sé að ræða boðun fjarverunnar, því hún var eitt og hið sama og hin algjöra nærvera). Ef horft er á málið frá öðru sjónarhorni (sem er hinn dæmigerði hugsunarháttur heimspekinnar: ekki út frá afleiðslu (deduzione) og stærðfræðilegri sönnun, eins og Kant hafði þegar áttað sig á), þá gætum við sagt: birting hins takmarkaða Viðfangs felur samtímis í sér brotthvarf hins altæka Viðfangs. Þessi missir er á sama tíma og í sama skilningi kynning einhvers (atburðarins – en ég var þegar búinn að segja að ég vildi ekki snerta það viðfangsefni hér). Það sem kynnir sig til leiks er á sama tíma og í sama skilningi tiltekið merki, (að sýna sig, það er að segja boðunin, og það að vera merki, er eitt og hið sama).

Við gætum skilgreint allt sem hér hefur verið sagt til þessa sem ættfræði hins frumlæga Viðfangs eða frumgerðar þess. Samkvæmt því og þar sem við vildum byrja upp á nýtt, þá lítum við hér á þetta sem afgreitt mál, en um leið vildum við snúa aftur til „lestarinnar“ okkar til að sannreyna hvernig hún virkar.

— Látum gott heita að málinu sé lokið, þó mér sýnist alls ekki svo vera. Sem sagt, mér virðist alls ekki liggja hreint fyrir hvernig málinu sé lokið.

— Einnig hér verð ég að vera sammála. Umræður eins og þessar verða aldrei leiddar til lykta. Við getum alltaf breytt um sjónarhorn: heimspekingurinn tekur hinni óútkljáðu umræðu ávallt með jákvæðu viðhorfi frekar en vonbrigðum, öfugt við ekki-heimspekinginn. Og báðir hafa eitthvað til síns máls. Hins vegar vildi ég aðeins segja, að þótt þegar framlagðar röksemdir þyrftu á viðbótar leiðréttingum og dýpri greiningu að halda, þá gætu þær hugsanlega dugað í glímunni við viðfangsefnið: þessa frægu „lest“ okkar.

Sem sagt: hvernig náum við því marki að hafa það að hafa (svo vitnað sé enn einu sinni í orð Husserls), nokkuð sem felst í því að hafa lest sem viðfang? Eins og við höfum áður gert, þá vísum við hér aftur til dæmisins af barninu, en núna þar sem það er nýkomið úr móðurkviði. Við segjum að þar eigi sér í fyrsta skiptið stað myndun hlutareðlisins (oggettualità), það er að segja „kraftaskaut hagsmuna“: móðurbrjóstið fullt af mjólk, pelinn o.s.frv. Þannig verður til Umwelt (umheimur), heimur andrúmslofts og hluta (sem er ekki heimur í „verufræðilegum“ (ontoligico) skilningi eins og Heidegger myndi segja, heldur í skilningi milliliðalauss hlutareðlis (ontico)). Móðurbrjóstið er hér skaut sogsins og fullnægju því tengdu (brjóstið, sogið fullnægjan eru í upphafi nánast sami hluturinn). Sem slíkt, það er að segja sem hlutur/viðfang (oggetto) er brjóstið þá merki sogsins og fullnægjunnar. Eðlilega auðgast það smám saman af eðliseiginleikum (aukinn merkingarblær (connotazione) eins og sagt er, þar sem nýjar, oft dulvitaðar upplýsingar koma fram). Brjóstið eykst að „gæðum“ (hvað varðar snertingu, lykt, hlýju, bragðskyn, sjónskyn o.s.frv.) En það sem við þurfum að hafa í huga er að brjóstið er alltaf með takmarkaða nærveru, aldrei altæka. Fjarlægð þess er alltaf meiri eða minni, en þar er alltaf um fjarlægð að ræða.

Leonardo da Vinci: Madonna Litta, (hluti), 1490. Hermitage-safnið

— Þetta er tilgangslaust, ég skil ekki hvert þetta á að leiða. Hvað merkir: það er alltaf fjarlægð? Gerum ráð fyrir að nýburinn okkar sé blessunarlega sjúgandi geirvörtuna: hann hefur brjóstið í munni sér, munninn fullan af sætri og volgri mjólk, kollinn hvílandi í armi móðurinnar sem styður mjúklega við hann og hvetur hann kannski með kliðmjúkum orðum, hendur hans snerta brjóstið með nautnafullum strokum og við getum ekki lesið úr andlitinu annað en fullkomna sælu: hvað viltu meira? Öll þessi reynsla er brjóstið. Þetta er ekki þannig að fyrst komi brjóstið og svo, handan þess, hið sæta, mjúka, volga, bleika o.s.frv. Ég verð að játa að mér finnst við gætum smættað allt þetta stóra vandamál niður í lítilsháttar orðaleik (Wittgenstein sagði: heimspekin er einföld spurning  um tungumálið, öllu heldur er hún sjúkdómur tungumálsins). Sem sagt, komum okkur saman um þetta: með brjóstinu erum við að tala um hið bleika, mjúka, sæta o.s.frv…. það er að segja öll þau form reynslunnar sem það varða. Þegar við erum einu sinni orðnir sammála um þetta, þá held ég að þessi meinta „fjarlægð“ muni hverfa. Ég meina: þá er vandinn úr sögunni.

— Þetta var vel sagt. Ég á við: það sem nú hefur verið sagt skilgreinir mjög vel tvennar skoðanir okkar. En þrátt fyrir þær réttmætu athugasemdir sem hér hafa komið fram (og ég get ekki annað en verið sammála að hluta til), þá er ég enn þeirrar skoðunar að fjarlægðin sé til staðar. Þrátt fyrir snjöllustu tilgátuna (nýburinn hefur brjóstið á milli handanna, geirvörtuna í munninum, sýgur volga mjólkina o.s.frv.) þá er nærvera brjóstsins boðuð í gegnum merki þess (mýkt, ylur, sætleiki, bleikt), hún er fyrst og fremst í þessum merkjum nærverunnar, en í heild sinni (insieme) er hún ekki í þessum merkjum.

— Hvað merkir „í heild sinni“?

— Ég mun reyna að skýra mál mitt. Við munum öll eftir frægri kenningu Locke sem sagði að efnið (sostanza) væri summa einfaldra hugmynda þess. Til dæmis „eplið“; efnið „epli“, verður skilið af samfelldri samsetningu hins hála, rauða, sæta o.s.frv.  og ekki er um neitt annað að ræða en þessa samsetningu, þessa summu. Ég held að Locke hafi haft rétt fyrir sér, en aðeins að hálfu leyti. Eplið er vissulega þessi summa, en það er líka meira en þessi summa. Ekki í þeim skilningi að sérhvert epli hafi einnig að geyma eidos (hugmynd) eplisins, eins og Husserl hefði sagt, heldur af allt öðrum og að mínu áliti dýpri ástæðum. En snúum okkur að því sem sagt var rétt áðan: nærvera brjóstsins er í merkjum þess og í heild sinni er það (brjóstið) ekki í þeim (merkjunum). Könnum hvernig það er ekki.

Í fyrsta lagi getum við séð að ég þarf að „ná“ brjóstinu í gegnum athafnir eins og sog o.s.frv. Enn fremur þarf brjóstið að ná til mín. Ekki er um hlut að ræða sem slíkan, sem ekki þarf að ná til mín til að ég geti höndlað hann sem slíkan. (Þegar ég tala um hlut er ég ekki eingöngu að hugsa um efnislega hluti, heldur um hvaða hlut eða hvaða nærveru sem verða vill). Ég þarf einnig að nálgast eigin líkama, og hann mig. Reyndar er það rétt að fjarlægð hans er frábrugðin öðrum fjarlægðum, hann hefur sinn sérstaka máta sem gerir fjarlægð hans frábrugðna öðrum fjarlægðum. Nokkuð sem er trúlega frumorsök aðgreiningar hins „innra“ og hins „ytra“.

— Leiðarþráðinn!, leiðarþráðinn!

— Fyrirgefðu, en brjóstið þarf þannig að nálgast mig (móðirin er fjarverandi, en nú birtist hún fyrst agnarlítil, en svo stækkar hún o.s.frv.) og ég þarf að ná til þess. Nú skulum við spyrja okkur: hvenær hef ég náð brjóstinu? Á hvaða augnabliki nálgunarinnar og sogsins hef ég brjóstið? Einhver gæti sagt, þegar ég snerti það og sýg það, þá hef ég höndlað brjóstið. En í raun og veru er málið ekki svo einfalt. Vissulega hafa snertingin og bragðskynið afar mikilvæg nálgunaráhrif á hlutinn, þau tengja hann þeirri sérstöku fjarlægð sem fólgin er í „mínum eigin“ líkama (eins og við sjáum, þá var ég ekki að fara út fyrir efnið áðan, jafnvel þó ég geti játað að mér var það ekki ljóst þá). Það er engin tilviljun að skynnæmið, líkaminn og hinir efnislegu hlutir, séu stöðug viðfangsefni heimspekinnar. En það að öðlast meiri nánd felur ekki í sér afnám allrar fjarlægðar. Við getum í þessu skyni horft til hinnar kynferðislegu nálgunar í gegnum samfarir: hvenær hef ég „höndlað“ hina elskuðu konu? Án þess að móðga nokkurn, þá öðlast ég mesta nálgun með inntakinu (penetrazione). Engu að síður er það út frá óbrúanlegri fjarlægð. Hér getur nautnin fengið mig til að loka augunum: ég einbeiti mér að snertingunni. Þá finn ég sársaukann af því að „sjá ekki“. Þessi yfirtaka mín á viðfanginu er ófullkomin. Því opna ég augun og í fyrstu eykur það á skynnæmið og mér finnst ég hafa nálgast Viðfang mitt enn meir (sem sjálfsvera (soggetto), ég hef ekki gleymt því…). En ég sé í nærsýni og kannski ekki það sem ég einmitt vildi sjá. Staðreyndin er sú að jafnvel þó ég væri umkringdur speglum myndi ég aldrei sjá allt. Og ef ég einbeiti mér of mikið að áhorfinu glata ég snertingunni, lyktarskyninu og umfram allt þeim fortakslausa spuna (spontaneità) sem felst í hnattrænni og taumlausri leiðslu. Það sama myndi gerast í sérhverjum þeim erótíska leik sem mér kynni að hugkvæmast: alltaf gerir fjarlægðin vart við sig, sama hvað ég leitast við að tæma hana.

— Ég verð að játa að þessi samlíking kemur mér á óvart;  ég vissi ekki að heimspekingar gætu hugsað svona „jarðneska“ hluti; eða öllu heldur að þeir hefðu minnstu hugmynd um þá í því heimsveldi skýjanna sem er þeirra höfuðból.

— Rangt! Það er engin tilviljun að heimspekin varð til í Aþenu, en ekki í Jerúsalem eða Róm. Grikkirnir vissu mætavel að eros og heimspekin eru ekki fjarskyld, auk þess sem þeirra uppáhaldsfrásögn var sagan af Ixíoni sem hafði fengið þá flugu í höfuðið að serða Heru, eiginkonu Seifs og húsmóðurina á Olympstindi. Sjálfur var Seifur oftar en ekki með hugann bundinn við getnaðinn og þá ekki alltaf með Heru, en hann fann hins vegar aðferð til að fullnægja löngun vesalings Ixíons með þeirri einu aðferð sem hæfði dauðlegum manni: hann sendi honum ský sem var í mynd Heru, og fullur hamingju höndlaði hann hana og sarð og átti með henni, ef ég man rétt, einstök afkvæmi. Þetta mætti skýra með eftirfarandi hætti, sem nú kemur okkur vel: aðeins guðirnir eru þess megnugir að yfirtaka konuna (hlutina) í raun og veru. Mennirnir geta nálgast hana í seilingarfjarlægð í gegnum skýin, það er að segja í gegnum merkin.

En eins og Nietzsche skrifaði (og Hölderlin hafði uppgötvað á undan honum) þá eru „allir guðirnir dauðir“. Þess vegna verðum við að vekja okkur af draumi Ixions (kannski er ofsagt að segja „við verðum“, nægir að segja „við getum“): við getum vel verið án þess að telja okkur trú um að skýið sé Hera, það er að segja hið altæka Viðfang, sem við eigum að höndla. Þannig höfnum við því að merkin séu ský, það er að segja staðgenglar og tvífarar hinna algildu Viðfanga. Þessi í stað meðtökum við hið altæka Viðfang  og hina frumlægu grundvallar-fjarvist þess sem tiltekinn veruhátt og framboðsmáta merkjanna, eins og áður var sagt, og þar með nærveru hlutanna. En snúum okkur nú að okkur sjálfum.

Það sem hér hefur verið sagt um kynmökin og hinn kynferðislega maka á líka við um brjóstið, og reyndar um alla hluti, þar sem við getum byrjað á mér sjálfum. Einnig ég „yfirskyggi“ mig (eins og Husserl komst að orði, en þá var hann aðeins að hugsa um efnislega hluti, því hann trúði á innsæið og taldi þar af leiðandi að „das Erlebnis“ færi ekki í felur, heldur gæfi sig í holdi og blóði, nokkuð sem er ekki satt.): einnig ég „yfirskyggi“ sjálfan mig fyrir mér sjálfum.

Þessi þráður leiðir okkur fullkomlega eðlilega að „lestinni“: flóknu merki sem er fullt af bergmáli og „sögnum“. Hugsum okkur hvernig Carducci (ítalskt skáld 1837-1907) upplifði lestina sem merki framfaranna og síðar, skömmu fyrir dauða sinn, í stuttu ljóði (sem ber lítil höfundareinkenni hans og hefur þess vegna að mínu mati yfirburði yfir „miðlungs bókmenntaafrek“ hans) þar sem hann sér lestina sem tákn vélvæðingar og merkingarleysu nútíma mannlífs, tómar brottfarir og kveðjuköst og órjúfanlegar fjarlægðir frá viðföngum ástar okkar. Eðli þess að vera merki „lestar“ eða hvaða hlutar sem er, er fólgið í boðun þess, sem er um leið vísun út í óendanleikann. Sérhver nærvera gefur í skyn og er staðgengill annarra nærvera: hún geymir runu endalausra merkja, það er að segja óendanlega Túlkendur á undan sér og á eftir sér. Sérhver nærvera kallar á að við sundurgreinum hana („decodifichiamo“ eins og nútíma merkingarfræðingar myndu segja), en það felur í sér að við virkjum aðild okkar að henni á meðvitaðan hátt. En það merkir, eins og Peirce komst að orði, aðild okkar að alheimi merkjanna, þar sem sérhver hlutur er þar sem hann virkar (það er að segja hvernig hann virkar sem merki).

Fortunato Depero: Járnbrautalestin (málverk í anda fútúrismans) 1926

Þrátt fyrir þessa endalausu framvísun hefur sérhvert merki sína merkingu og á sama tíma þetta sama: það er að segja fjarveru hins altæka Viðfangs, fjarlægðina sem er innbyggð í sérhverja nálægð. Ef við viljum orða það þannig, þá er sérhver aðild okkar að örlögum þess Túlkanda sem í okkur býr (og í gegnum þetta aðildin að heild hinnar óendanlegu raðar Túlkendanna), og um leið aðildarleysi okkar að örlögum eignarhaldsins (ómennsk örlög eða ef við viljum heldur: örlög handan hins mannlega). Þegar við látum sem hlutirnir séu merki og skiljum þá í veru þeirra sem merki, þá felur það ekki í sér afneitun hlutanna, „raunveruleika“ þeirra (eins og sagt er gjarnan): raunveruleiki þeirra er einmitt fólginn í þessari virkni skilaboðanna. Þegar við segjum að lestin sé merki, þá erum við ekki að hafna „efnislegum gæðum“ hennar, að hún hafi til að bera hörku og þyngd og að hún geti keyrt á mig og að ég geti stigið um borð, að hún geti verið í seinkun (auðvitað ekki!) eða jafnvel að hún komi aldrei á áfangastað fyrir tilverknað einhvers atburðar sem er „utan“ hugsana minna, óska minna og túlkana. Þetta felur hins vegar í sér að mæta henni sem hluta af merkingunum sem hafa mótað mig og minn heim, og jafnframt að taka eftir því að birting hennar, eins og sérhver birting, er upprunalegur atburður (evento originario): alltaf þessi sama birtingarvirkni, að láta sig birtast í fjarveru sem ab origini (frá örófi alda); hún hefur birst okkur sem merki og „merkir okkur“ (ci assegna) tilsvarandi örlögum (en ég vil ekki ennþá tala um atburðinn).

Að gangast undir þessa reynslu (eins og hún er, og hvernig við erum merkt þeim örlögum að túlka hana í gegnum hlutdeild okkar í tilteknum Túlkanda) merkir ekki að hún sé „afskiptalaus“ (indifferente), þessi reynsla segir okkur að „lestin“ skipti máli, að ekki séu til hrein tól án tilgangs eða hreinir líkamar aðskildir frá sálinni. Við og lestin deilum sameiginlegum örlögum. Það kann að hljóma sem einfeldnisleg spurning, en hversu oft skyldum við í rauninni hafa lagt traust okkar á lestina og treyst henni fyrir lífi okkar? Ef lestin er tákn framfaranna, eins og okkar ágæti Carducci hélt fram, þá höfum við lagt traust okkar á þær, og þær lagt traust sitt á okkur. Lestin er ekki sinnulaus, enginn hlutur er sinnulaus að því marki sem hann er anghelos, boðberi skilaboða sem okkur varða, og hvetja okkur til túlkunar. Hins vegar má einnig segja, að sérhver hlutur sé „dif-ferente“ (eins og Derrida orðaði það), (hefur verið þýtt á íslensku sem „á skilafresti“). Sem sagt, enginn hlutur er hið altæka Viðfang. Að sinna viðfanginu, meðtaka boðskap þess, er ekki það sama og að „hafa skipti á því“ og hinu algilda Viðfangi, og gefa því þannig tilkall til altækrar yfirtöku (possesso totale). Listin að taka á móti hlutunum er líka um leið listin að innbyrða þá ekki (trattenerle). Það gerist mjög oft að við yfirstígum hluti, göngum yfir þá, til að ná öðrum hlut sem hefur í okkar augum ígildi eftirlíkingar hins algilda Viðfangs og hinnar algildu yfirtöku. Við meðhöndlum hlutina eins og meðöl eða tæki, við meðtökum þá ekki, heldur notum þá, jafnvel þó allir viti að hið endanlega viðfang verður aldrei höndlað. Eða þá að það breytist umsvifalaust eftir yfirtökuna í meðal til annars markmiðs. Mikilvægast er þó að með einfaldri notkun hlutanna (að notfæra sér þá), með því að nota þá sem meðul, meðtökum við aldrei boðskapinn sem þeir hafa að geyma, við gerum okkur ekki grein fyrir að þeir allir, hver fyrir sig, hafa sína tilvísun í hið altæka Viðfang sem við erum stöðugt en árangurslaust á höttunum eftir. Við sjáum ekki að hafandi hlutina við höndina höfum við líka við höndina þá fjarveru sem býr í hinum holdi klædda Túlkanda. Því er hið algilda Viðfang, eins og Heidegger myndi segja, bæði það sem stendur okkur næst og fjærst: það er hér, í sérhverri nærveru, og einmitt þess vegna sjáum við það ekki og leitum því langt yfir skammt. Reyndar er hér ekki við sérstaka sök okkar að sakast, þetta er hluti af merkiseðli okkar sem Túlkendur: því meiri nálgun sem merkið færir okkur við hlutinn, þeim mun skjótari verður hann á flótta sínum. Það merki sem færir okkur nærveru (áberandi) skapar líka (áberandi) fjarlægð. Ef lestin (eða flugvélin á okkar tímum) hefur dregið úr vegalengdum í rýminu, þá hefur hún einnig skapað fjarlægðir í öðrum skilningi, en Heidegger hefur skýrt þetta svo vel fyrir okkur að það er engin tilviljun að ég endurtaki það hér. Þannig óttast ég að áðurnefndur „frumspekingur“, sem talaði um að vera alls staðar og hvergi, yrði tekinn af meiri alvöru en þetta tiltekna dæmi gæfi tilefni til: kannski vildi hann tala um okkur, um okkar nútímalegu aðferð í hlutverki Túlkendanna. Ef hann hefði farið úr einni lest í aðra eða úr einni flugvél í aðra, til þess að breiða ráðstefnu sína út um heimsbyggðina að hætti margra meistara sem hafa af kaldhæðni hlotið viðurnefnið fullgildir áhafnarmeðlimir The Jet-Philosophy (þetta hef ég eftir amerískri vinkonu minni), þá hefði hann kannski viljað tala um einsemd sína og ógjörning virkrar háskólakennslu, án þess þó að losna undan þeim sameiginlegu örlögum okkar samtímamenningar sem kennd er við fjöldamenningu fjölmiðlanna, en þar er merkingarfræðin einmitt og ekki af tilviljun beinn þátttakandi.

— Hvað þá, ef engin er undankomuleiðin, til hvers er þessi umræða þá? Hvaða tilgangi þjónar það að velta fyrir sér eðli merkjanna í hlutunum og okkur sjálfum? Sem sagt, hverju þjónar umræðan þá?

— Nú skil ég, þú hefðir viljað færa þér umræðu mína í nyt, gera hana að meðali

— Ekki ég, í guðanna bænum! Ég hef hlýtt á „crescendo“ (vaxandi þunga) umræðu þinnar dágóða stund, þennan einleik, en um leið fannst mér að Carnap hefði haft rétt fyrir sér: þið heimspekingar eruð misheppnaðir tónlistarmenn; umræðunum breytið þið í sinfóníur með skellum málmgjallanna á hápunktinum og undiröldu strengjanna og viðarhljóðfæranna. Mér fannst líka áhugavert að sjá hvernig hin ídealísku fyrirheit enda hrapallega í dulspekilegum og þversagnafullum niðurstöðum (allt er alls staðar, eilífðartilvist mannsins er lokið o.s.frv.: auðvitað sagt með nútímalegra orðavali, en súpan er alltaf hin sama). Ég var einnig að hugsa um hversu snjallir þið eruð að vísa stöðugt í alþekkt dæmi, rétt eins og af tilviljun, og að nota þau síðan með leyndum hætti til að styðja orðræður ykkar og meintar sannanir (þetta skildi Kant líka mætavel þegar hann talaði um frumspekingana en ekki bara málefni heimspekinnar, sem er ekki stærðfræði o.s.frv.). Öll þessi orðræða sem ég hef mátt hlíða á, notaðist af rætinni illkvittni við dæmi barnsins í móðurkviði, rétt eins og það væri tilfallandi dæmi. Það er hins vegar mun meira en dæmi: ef við tækjum það út úr orðræðunni væru allir möguleikar á að vísa í hið algilda Viðfang og í glatað Viðfang og endurfundið úr sögunni. Ég spyr mig hvernig þessi samflétta ólíkra hluta, almennra reynslufyrirbæra, vísindakenninga sem beitt er með yfirborðskenndum og tilviljanakenndum hætti, grískra goðsagna, ólíkra heimspekikenninga frá ólíkum tímum  og svo framvegis, hvernig slík flétta geti gert tilkall til einhvers sannleiksgildis. Hvað getum við gert með orðræður á borð við þessar? Hvernig eigum við að setja þær undir gæðamat? Ég á ekki við að þær eigi að „þjóna“ einhverju í grófum og einfeldnislegum skilningi, en ég hef fullan rétt á að spyrja hvert sannleiksgildið sé… eða hvað?

— Við erum margir sem spyrjum okkur þessara spurninga í dag. Við spyrjum okkur hvaða orðræða sé heimspekileg (reyndar hefur heimspekin alltaf spurt sig þessarar spurningar). Ég held hins vegar að ekki sé hægt að heimfæra þessar orðræður (einmitt þessar fléttur ólíkra hluta) upp á einfaldan mælikvarða sannleikans. Sjáðu, ef við myndum spyrja okkur hvað við ættum við með „mælikvarða sannleikans“, þá efast ég ekki um að við værum tilneyddir að endurtaka einhverja af þessum orðræðum, fullum af óskyldum hlutum, og með engu móti gulltryggðar. Hvað það er sem heimspekingurinn er að leita að, og hvers vegna, er stórt vandamál, sem Nietzsche var fyrstur til að uppgötva. Hann grunaði að ekki væri allt með felldu, allar þessar rannsóknir og umræður; en þegar allt kemur til alls, þá er grunurinn líka orðræða. Vesturlönd virðast dæmd til orðræðna: þær eru aðferð þeirra til að nálgast hlutina og einnig til að gera þá fjarlæga, að finna þá og glata þeim. En ég ætlaði mér ekki að opna hér fyrir nýja orðræðu. Öllu heldur vildi ég stela nokkrum mínútum til að draga fram tvær niðurstöður af því sem sagt hefur verið, því þær kalla á mig og hvetja til útskýringa í formi niðurstöðu. Leyfist mér það?

— Við skulum líka hlusta á niðurstöðuna. Þannig verður þú ánægður.

­– Það var meira en ein niðurstaða, þær voru tvær eins og ég sagði. Semsagt: Við lögðum fram spurninguna hvenær við mætum hlutnum. Í raun og veru höfum við lagt megináhersluna á hvernig við mætum honum. Nú hefur spurningin um „hvenær“ sinn sérstaka áherslupunkt. Þar sem ég nálgast hlut sem boðar sig, og hann nálgast mig eða fjarlægist á móti, þá tímaset ég mig (mi temporalizzo). Betra væri að segja að merkið hafi tímasett mig, merkisafstaðan. Þar sem merkið hefur að geyma upprunalega fjarlægð í kjarna sínum sem merki, sem boðun, þar sem það er upprunaleg fjarlægð, þá vísar það einnig til tímasetningar, vegferðar, uppruna og tiltekinnar áttar. Það eru fortíð, nútíð og framtíð. Í boðun merkisins er til staðar annar staður (un altrove) sem er aldrei hér og nú í fullri merkingu, heldur nokkuð sem er háð hér og nú. Af þessu mætti draga margvíslegar mikilvægar ályktanir (til dæmis varðandi tímabundna leiðslu eða upphafningu (estasi), varðandi ekki-uppruna nándarinnar (presenza) eða núsins (presente)); en leikreglurnar þvinga okkur engu að síður til að leiða þessi atriði hjá okkur að svo stöddu, svo ekki upphefjist ný umræða um ólíka hluti og afskrifaða á forsendum hvaða sannleiksgildis sem vera kann.

Seinni niðurstaðan: Við höfðum greint á milli hugtaksins um heiminn í ontískum (hlutverulegum) skilningi og ontologískum (verufræðilegum) skilningi (eins og Heidegger gerði líka. (Aths.: hugtakið ontisch er nýyrði Heideggers sem vísar til beinnar og milliliðalausrar skynjunar, ólíkt ontologisch sem vísar til heimspekilegrar túlkunnar á verunni sem slíkri)). Ég ætla að víkja augnablik að dæminu sem þú dæmir sem rætið og illkvittnislegt og varðar barnið í móðurkviði (hin algjöra reynsla sem enginn getur sagst hafa upplifað, en enginn getur heldur neitað að hafa upplifað): sagt var að barnið væri með móðurinni, altekið af algjörri nærveru viðfangs síns. Við spyrjum (mig minnir að Fink hafi spurt sömu spurningar): hvernig er maðurinn með heiminum, ef heimurinn er hans upprunalega vera með? Hér merkir „heimur“ ekki þá ontísku heild „hluta“ sem við okkur blasa, heldur hina verufræðilegu (ontologica) vídd sem tekur til allrar veru heimsins (við gætum einnig sagt að þetta væri vandamál sköpunarsögu alheimsins (cosmologico). Er heimurinn altæk návist fyrir manninn (og þú manst hvað var sagt um það)? Er þá einnig um að ræða upprunalega fjarveru? Eiga orðræður okkar og mælikvarðar á sannleikann rætur sínar þarna? Í „atburði“ heimsins í túlkandanum? Hvernig er þá málunum háttað gagnvart dýrunum? Hvernig hafa þau heiminn? Og svo, með hvaða rétti tölum við um dýrin og heim þeirra? Að lokum: um hvaða rétt erum við að tala? Og hvers vegna viljum við tala út frá „rétti“? Sérhver orðræða er hringferli, sagði dvergurinn við Zaraþústra.

Sjáðu til, eitt hollráð að lokum: þú skalt fara núna, annars byrja ég á nýrri orðræðu.

___________________________________________

Forsíðumyndin er málverk Filippo Lippi: Kona og maður í glugga, 1435. Metropolitan Museum of Art.