HVAÐ ER Í PAKKANUM?

 

Franz Kafka og Ursula von der Leyen

Evrópusambandið í ljósi Franz Kafka

 

Það var áliðið kvölds þegar K. bar að garði. Þorpið var á kafi í snjó. Ekkert sást í hallarhæðina, hún var umlukin þoku og myrkri, ekki svo mikið sem ljósglæta gaf til kynna hvar höllin stóra væri. K. stóð lengi á trébrúnni sem lá frá þjóðveginum að þorpinu, og horfði upp í tómið sem þar virtist vera.

Síðan fór hann að leita sér að náttstað; fólk var enn vakandi í veitingahúsinu, vertinn hafði að vísu ekki herbergi til leigu, þessi síðbúna gestkoma hafði komið honum mjög á óvart og ruglað hann í ríminu en hann kvaðst geta leyft K. að sofa á hálmdýnu í veitingastofunni. K. féllst á það. Nokkrir bændur sátu enn við bjórdrykkju, en hann kærði sig ekki um að ræða við neinn, sótti sjálfur hálmdýnuna upp á háaloft og lagðist fyrir nálægt ofninum. Það var hlýtt, bændurnir höfðu hægt um sig, þreyttum augum virti hann þá svolítið fyrir sér enn um stund, síðan sofnaði hann.

En ekki leið á löngu uns hann var vakinn. Ungur maður, klæddur eins og borgarbúi, með leikaralegt andlit, píreygður, með kröftugar augabrúnir, stóð hjá honum ásamt vertinum. Bændurnir voru líka enn á staðnum, sumir höfðu snúið við stólum sínum til að sjá betur og heyra. Ungi maðurinn baðst afar kurteislega afsökunar á því að hafa vakið K., kynnti sig sem son hallarvarðarins og sagði síðan: „Þetta þorp er í eigu hallarinnar, sá sem býr hér eða gistir, býr eða gistir á vissan hátt í höllinni. Engum leyfist slíkt án samþykkis greifans. Þér hafið hinsvegar ekki slíkt leyfi eða hafið að minnsta kosti ekki framvísað því.“

K. hafði risið upp við dogg og strokið yfir hárið, hann horfði upp til mannanna og mælti: „Í hvaða þorp hef ég villst? Er þá höll hérna?“

„Já, reyndar,“ sagði ungi maðurinn seinlega, ýmsir í hópnum hristu höfuðið yfir K., „höll herra greifans Westwest.“

„Og verða menn að fá leyfi til að gista?“ spurði K., rétt eins og hann vildi fullvissa sig um að hann hefði ekki dreymt hinar fyrri tilkynningar.

„Leyfi verða menn að hafa,“ var svarið og ungi maðurinn hæddist gróflega að K. með því að rétta út handlegginn og spyrja vertinn og gestina: „Eða þarf annars ekki að hafa leyfi?“

„Þá verð ég að ná mér í slíkt leyfi,“ sagði K., geispaði og ýtti af sér ábreiðunni eins og hann hygðist rísa á fætur.

 

Þetta eru upphafsorðin í „Höllinni“, skáldsögu Frans Kafka frá árinu 1922 (hér í þýðingu þeirra feðga, Ástráðs Eysteinssonar og Eysteins Þorvaldssonar og útgáfu Forlagsins frá 2024). Það voru efasemdir mínar um yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi heimild  íslenskra stjórnvalda til fyrstu atlögu að aðildarumsókn að Evrópusambandinu sem leiddu hug minn að þessari síðustu og  ófullgerðu skáldsögu Kafka, sem ég mundi nú að ég hafði lesið sem ungur maður. Og viti menn, hún var enn í bókaskápnum, útkrotuð með léttum blýantsstrikum og athugasemdum, kyrfilega merkt ungum Ólafi Gíslasyni á árinu 1964. Ég hafði aldrei lesið hana aftur, en hún hafði fylgt flóknum búferlaskiptum þessa unga manns í 62 ár, en ekki verið opnuð eða lesin síðan þessi ungi og ráðvillti  maður las hana, þá staddur í Internationella studenthuset í Lundi í Svíþjóð. Loksins var kominn tími til að lesa hana á ný, í sænskri þýðingu Tage Aurell frá árinu 1963. Þetta reyndist engin hefðbundin lestraræfing, hún var ekki bara skemmtileg upprifjun sænskrar tungu, sem ég hef lesið sorglega lítið síðan ég kvaddi Svíþjóð fyrir margt löngu. Sú reynsla var eins og að klæða sig í eldgömul föt og fól í sér ákveðinn fiðring, en ég var ekki kominn langt í lestrinum þegar þessi fiðringur breyttist í tvöfalda og magnaðri reynslu, þar sem ég upplifði sjálfan mig í gervi þessa unga manns með þessa splunkunýju bók á milli handanna, sem hafði kostað hann 7 sænskar krónur og 50 aura, en um leið valdið tímamótum í lífi hans sem breyttu öllu. Þessi ungi maður var nýsloppinn úr menntaskóla á Íslandi, kominn út í heiminn til að takast á við hann á vettvangi akademíunnar – án þess að vita nákvæmlega hvað sá vettvangur byði upp á. Fullur af forvitni skráði hann sig í nám í félagsvísindum og mannfræði, í raun til undirbúnings fyrir veigameiri viðfangsefni. Fyrsta verkefnið sem hann fékk í akademíunni tengdist vísindalegri aðferðarfræði, og fyrsta kennslubókin sem hann keypti bar titilinn „Hur man ljuger med statistik“. Fullur bjartsýni fór þessi ungi maður að kynna sér þessa leyndardóma hinnar vísindalegu aðferðarfræði, en áhuginn dofnaði fljótlega og nú þegar ég við endurlestur Hallarinnar hrökk óvænt inn í tilvistarangist þessa unga manns árið 1964, þá minnist ég þess að þessar akademísku kennslubækur visnuðu smám saman  í höndum hans á meðan bækur lærimeistara eins og Albert Camus, Dostoyevsky, Gogol, Kierkegaard, Gunnars Ekelöv, Stendahl og Andre Gide heltóku huga hans æ meir. Af einhverjum ástæðum, sem trúlega eru ekki tilviljun ein, hafa flestar bækur þessara höfunda sem ásóttu huga og hendur  unga mannsins á þessum huglægu umbrotatímum í tilveru hans horfið úr bókaskánum eftir ítrekaða búferlaflutninga á þessum sex áratugum,  en „Slottet“ eftir Franz Kafka og ritsafn Kierkegaards hafa – eftir vonandi síðustu búferlaskiptin – ratað alla leiðina í splunkunýja  skrifstofukompu hans í Kópavoginum og endurlesturinn orðið að nýju leiðarljósi í örlagaspurningu íslenskra stjórnvalda um hvað felist í hinum leyndardómsfulla „pakka“ Evrópusambandsins.

Í stuttu máli varð endurlestur minn á „Slottet“ eftir 62 ára lestrarhlé eins og endurupplifun þeirrar örlagaríku stundar er ég lagði bókina síðast frá mér á Internationella studenthuset 1964 og ákvað að mæta ekki i háskólaprófið sem var á dagskrá morguninn eftir og átti að skila tölfræðilegri mælingu á  skilningi mínum á hvernig nota mætti tölfræðina til að sniðganga sannleikann. Endurlesturinn á Höllinni var ekki bara bókmenntaleg upprifjun eftir langt hlé, heldur nánast líkamleg endurupplifun þessarar stundar sem markaði krossgötur í lífi unga mannsins sem hafði skrifaði nafn sitt á saurblað bókarinnar. Héðan í frá skyldi tungumál þeirrar listar er talaði handan orðanna verða hans viðfangsefni.

Hvernig getur þessi aldargamla ófullgerða frásögn Kafka tengst yfirvofandi atkvæðagreiðslu um leyfi til  landsstjórnarinnar til að „kíkja í pakkann“  sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins  mun hugsanlega bjóða íslensku þjóðinni við fulla aðild hennar að þessu hagsmunafélagi sem hún er þegar með 75% aðild að samkvæmt tölfræðinni?

Til þess að skýra þessa afar persónulegu upplifun er nauðsynlegt að endursegja í örfáum orðum þessa sögu Kafka af landmælingamanninum K. sem fann sig skyndilega mættan einn snjóþungan vetrardag í bænum undir „höllinni“ þar sem hann taldi sig vera kallaðan til mælingarstarfs fyrir sjálft yfirvaldið sem bar nafnið West West greifi. Í rauninni er þetta frásögn um baráttu sem breytist í glímu við hið ósýnilega vald sem er handan þeirra laga er setja þessu samfélagi lög og reglur, en stýra því engu að síður með ósýnilegri hendi í afar stéttskipt og undirgefið samfélag er lýtur því valdi er býr við „lagasetningu án merkingar“, svo vitnað sé í annan lærimeistara minn, heimspekinginn Giorgio Agamben. Sú stéttaskipting sem þarna ríkir er ekki hin hefðbundna skipting launþega og vinnuveitenda sem við þekkjum úr hefðbundnum marxískum skilningi, heldur minnir hún kannski frekar á þau ósýnilegu lög sem ríktu á miðöldum þar sem „hertoginn“ var gjarnan jafn ósýnilegur og lögin sem skráð voru ófrávíkjanleg í loftinu einu. Enginn sem K. hitti í bænum undir Höllinni hafði séð West West greifa, en margir lýstu sig viljuga að þræða þann ósýnilega stiga sem til hans lá til að fá viðurkenningu á starfslýsingu landmæalingamannsins. Meðal þeirra var beiningastúlka á þorpskránni sem hét Frieda og hafði verið ástkona herra Klamm, sem var háttsettur embættismaður „hallarinnar“ sem fáir höfðu náð tali af og var innilokaður á kammesi sínu í þorpskránni. Þar lenti K. í ævintýralegum ástarfundi með Friedu undir barborðinu er leiddi til trúlofunar hennar og K. eftir að hún hafði leyft honum að sjá þetta undir-yfirvald í gegnum skrárgat sem hún ein gat opnað með tappa. Höllin er öðrum þræði ástarsaga K. og Friedu og sambandi þeirra við Barnabas boðbera og systur hans Olgu og Amalíu. Um leið er hún saga um starfsframa K. og Friedu sem þeim bauðst í biðinni eftir viðurkennigu „Hallarinnar“ á landmælingaembætti K. sem aldrei var staðfest. Sagan á sér í raun engan enda, enda ólokið skáldverk sem Kafka vildi láta brenna eftir sinn dag eins og skáldsögurnar um réttarhöldin og Ameríku. Höllin á það sammerkt með „Réttarhöldunum“ að höfuðpersónurnar eru K. og Josef K. Í Réttarhöldunum á Josef K. í beinum átökum sakborningsins við skilgrein og vel sýnilegt yfirvöld þar sem hann er á grundvelli falskra sakarefna dreginn fyrir rétt og á endanum dæmdur og tekinn af lífi. Í Höllinni er yfirvaldið ósýnilegt og því engin málsvörn í boði, – og á endanum enginn dómur heldur, Höllin er mynd af samfélagi sem lýtur ströngu en ósýnilegu lagavaldi þar sem hlutverk K. er ekki málsvörn sakborningsins, heldur eru allir sakborningar í þessu samfélagi þar sem ábyrgðin er yfirþyrmandi ósýnileg og hlutverk K. því lýsing á tilverustigi sem við getum í vissum skilningi séð sem það fjölþjóðlega yfirvald sem á sér ósýnilega þjóðhöfðingja er gegna yfirþjóðlegu valdi sem enginn getur kallað til ábyrgðar.

Hvernig gat ég fundið hliðstæðu í upphafsorðunum í sögu Franz Kafka, sem lýsa inngöngu hans í bæinn undir kastalanum og því ferli sem íslenska ríkisstjórnin hefur nú boðið þjóð sinni í, með kosningu um leyfi stjórnvalda til að opna samningaleið að inngöngu í ESB? Á þessi makalausa samfélagslýsing Kafka eitthvað skylt við Evrópusambandið?

Skilja má af merkilegri umræðu um þessi mál í tilefni kosninganna, að Íslendingar séu alls ókunnugir um út á hvað þetta samband gangi. Sagt er að kosningarnar nú snúist um að vita „hvað sé í pakkanum“, eins og um sé að ræða óvænta jólagjöf sem enginn viti hvað í sé falið. Stofnun ESB átti sér langan aðdraganda sem fólst í Kola- og Stálbandalaginu 1951, Rómarsáttmálanum frá 1957 (EEC) og Maastricht sáttmálanum frá 1992, sem var grundvöllur formlegrar stofnunar ESB 1. Nóvember 1993. Sameiginlegur gjaldmiðill ESB ríkja tók gildi 2002. Ísland gerðist aðili að Evrópska efnahagssvæðinu með sérstökum samningi sem tók gildi 1. Janúar 1994, og hefur því haft sérstakan viðskiptasamning við bandalagið í 32 ár, samning sem talinn er taka yfir ¾ hluta fullrar aðildar að bandalaginu. Upphaflegar grunnforsendur ESB felast í frjálsum flutningum á fjármagni, vörum og vinnuafi á milli aðildarríkjanna. Nú eru aðildarríki ESB 27 en þar við bætast EES-ríkin Ísland, Noregur og Lichtenstein og síðan hefur Sviss sérstakan tvíhliða samning við Bandalagið. Íslendingar eiga því að hafa fulla reynslu af þessu samstarfi, sem hefur að mati flestra verið til góðs og opnað ekki bara efnahagsleg, heldur líka menningarleg samskipti á milli Íslands og aðildarlandanna.

Aðdragandi stofnunar ESB á sér merkilega sögu, sem snerist ekki hvað síst um að koma í veg fyrir endurtekningu þess harmleiks sem síðari heimsstyrjöldin var, að tryggja frjáls viðskipti á milli þeirra ríkja sem höfðu barist á banaspjótum og lagt álfuna í rúst í 5 ára stríði. Þessi upphaflegu markmið skiluðu óumdeildum árangri í fyrstu, en brotalamir og brestir hafa komið í þetta samstarf, sem urðu áberandi í Grikklandskreppunni þegar í ljós kom að Evrópski Seðlabankinn og aðrir einkabankar höfðu skuldsett Grikkland umfram greiðslugetu og ríkisstjórn landsins voru settir afarkostir til að bjarga lánardrottnunum árið 2015. Síðan hafa hliðstæð vandamál komið upp, meðal annars í Portúgal, Ítalíu, Frakklandi og á Spáni, sem enn eru óleyst, og Bretland gekk úr sambandinu 2020. Tölfræðin um efnahagslegan árangur ESB samstarfsins segir ekki alla söguna, og stjórnkerfi bandalagsins hefur sætt vaxandi vagnrýni samfara vaxandi tilfærslu valds frá aðildarríkjunum til Ráðherranefndar og Framkvæmdastjórnar bandalagsins þar sem skipaður framkvæmdastjóri (Ursula von der Leyen) og stjórnandi utanríkismála (Kaia Kallas) hafa í vaxandi mæli gerst talsmenn aðildarríkjanna í utanríkismálum án þess að sæta ábyrgð annarra en ráðherranefndarinnar sem skipar í þessi embætti. Þá hefur Evrópuþingið sætt gagnrýni, en það hefur ekki löggjafarvald eins og þing aðildarríkjanna, heldur einungis ályktunarvald um reglugerðir ráðherranefndarinnar. Segja má að árekstrar fullveldis og sambandsveldis séu óumflýjanlegir í ríkjandi stjórnskipulagi ESB, en þar við bætist að sameiginleg mynt ólíkra hagkerfa án sameiginlegs fjárlagavalds skapi óhjákvæmilega árekstra fullveldis og samveldis í stjórnun efnahagsmála einstakra ríkja, þar sem stýrivextir og lánshæfni bitna á aðildarríkjunum með ólíkum hætti.

Þeir brestir í ESB samstarfinu sem hér hefur verið bent á, og bitna á aðildarríkjunum með ólíkum hætti, hafa tekið á sig alvarlegri mynd í kjölfar Maidan-uppreisnarinnar í Úkraínu 2014 og innrásar Rússlands í landið 2022. Yfirlýst tilefni uppreisnarinnar var ákvörðun Viktors Janúkovitsj forseta að hafna undirritun samstarfs- og viðskiptasamnings við Evrópusambandið, en mótmæli gegn þessari ákvörðun breyttust í blóðug átök um áramótin 2014, þar sem skotvopnum var beitt gegn lögreglu og almennum borgurum. Þessum átökum lauk með því að forsetinn flúði land og skipuð var bráðabirgðastjórn þar sem Viktoria Nuland, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna kom við sögu. Hún hafði tekið virkan þátt í Maidan-mótmælunum, og hljóðritað símtal vitnar um að hún hafi í raun tilnefnt Arseníj Jatsenjúk í embætti forseta landsins, íhlutun sem benti til ítrekunar þeirrar stefnu Bandaríkjastjórnar sem samþykkt var á NATO-fundi í Búkarest 2008, að stefna bæri að innlimun Úkraínu í NATO. En sú ákvörðun braut í bága við það samkomulag sem gert var á sínum tíma við Gorbatsjov Rússlandsforseta að „NATO yrði ekki stækkað um spönn til austurs“ eftir sameiningu Austur- og Vestur-Þýskalands 1990 og upplausn Varsjárbandalagsins. Þessir atburðir höfðu mótandi áhrif á framtíðarskipan mála í Evrópu, þar sem upphaflegu markmiði þessara varnarbandalaga var þar með lokið, en  Evrópusambandið orðið hluthafi í útþenslustefnu NATO að landamærum Rússlands.

Eins og allir vita þá leiddi þessi atburðarás til þess 2014 að Rússland tók yfir Krímskagann, þar sem þeir áttu flotastöð fyrir, og  borgarastyrjöld hófst í austurhluta Úkraínu sem stóð frá 2014 allt þar til Rússland gerði innrás í landið í febrúar 2022, stríð sem hefur staðið með vaxandi þunga síðan, með formlegri innlimun rússneskumælandi héraðanna Donbass og  Lutansk í Rússland.

Þessir atburðir hafa haft víðtæk áhrif á efnahag aðildarríkja ESB, þar sem sambandið hefur sett viðskiptabann á Rússland, lagt hald á rússneskar innstæður í evrópskum bönkum, bannað mikilvæg viðskipti með jarðgas og olíu og staðið óbeint að eyðileggingu á þýsk-rússneskum gasleiðslum um Eystrasaltið, kenndum við Nordstream.

Evrópusambandið hefur verið virkur þátttakandi í þessum hernaði með vopna- og fjárstuðningi, sem hefur stigmagnast á þessu ári upp í umtalsverðan lofthernað Úkraínuhers víðsvegar innan landamæra Rússlands í krafti beinnar tækniaðstoðar sem hefur að meginhluta komið frá Evrópuríkjum eftir að síðari Trump-stjórnin kom til valda. Segja má að Evrópuríkin og Bandaríkin hafi skipt með sér verkum í stríðsrekstrinum, þar sem Bandaríkin hófu stríð við Íran á þessu ári í samvinnu við Ísrael á meðan Evrópusambandið hefur beint og óbeint fjármagnað stríðsrekstur Úkraínu, sem er gjaldþrota land eftir 4 ára stríðsrekstur. Í apríl á þessu ári samþykkti Evrópuráðið að taka lán til að fjármagna stríðið í Úkraínu næstu 2 árin upp á 90 milljarða evra. Þessi samþykkt var gerð í nafni 24 af 27 aðildarríkjum ESB, og er að þessu leyti óvenjuleg, þar sem bæði Ungverjaland, Tékkland og Slóvakía skárust undan þessari skuldbindingu, og var þessi undanþága samþykkt á Evrópuþinginu. Þá segir í þingsályktun Evrópuþingsins um málið að endurgreiðslu lánsins eigi endanlega að fjármagna með stríðsskaðabótum sem Rússlandi yrði skylt að greiða í stríðslok.

Efnahagslegar afleiðingar stríðsins í Úkraínu hafa umturnað öllum efnahagsmálum í álfunni. Áhrifanna gætir ekki síst í Þýskalandi sem hefur verið efnahagslegur burðarás bandalagsins til þessa, með afgerandi forystu í iðnvæðingu og framleiðslu gæðavarnings á því sviði. Meginorsök þessara erfiðleika er rakin til hækkandi orkuverðs, sem magnast nú enn til muna með tilkomu stríðsins við Íran. Í fyrsta skipti frá stríðslokum er nú í gangi umtalsverður samdráttur í framleiðslu bíla og annars orkufreks varnings í evrópskum þungaiðnaði. Þá hefur hækkun á orkuverði áhrif á framboð og verð á áburði, og þar með á framboð og verð á landbúnaðarvörum. Stríðin í Íran og Úkraínu hafa samlegðaráhrif í þessum samdrætti og afleiddri verðbólgu, sem setur alla efnahagsþróun í Evrópu í algjöra óvissu, en segja má að bæði stríðin hafi samlegðaráhrif er veiki umtalsvert samkeppnisstöðu álfunnar gagnvart Kína og  Bandaríkjunum, þó efnahagslífið þar sé einnig í fullkominni óvissu.

Ekki er þörf á ýtarlegri greiningu á þessu ástandi til þess að sjá „hvað er í pakkanum“ hjá ESB. Það er fyrst og fremst sú staðreynd að bandalagið vinnur nú beinlínis gegn þeim markmiðum sem upphaflega voru sett með „Kola- og stál-bandalaginu“ 1951, og lengi vel var yfirlýst markmið efnahagssamvinnu Evrópuríkja eftir stríð. Meginmálið var að koma í veg fyrir stríð. Evrópusambandið hefur markvisst unnið gegn þessum markmiðum með hervæðingu viðskiptanna og samþjöppun yfirþjóðlegs valds í stofnanir sem enga ábyrgð bera gagnvart íbúum álfunnar. Það er með ólíkindum að hlutskipti ESB í þeirri deilu á milli Rússlands og Úkraínu sem Bandaríkin áttu stærstan hlut í að magna upp, hafi eingöngu falist í vígvæðingu og fjármögnun þessa stríða sem hefur í raun staðið ekki bara í þau 4 ár sem Rússar hafa herjað á landið, heldur allt frá árinu 2014 þegar ofsóknir og hernaður hófst gegn rússneskumælandi íbúum Úkraínu.

Það er í raun með ólíkindum að stríðsrekstur Vesturlanda á tveim vígstöðvum skuli nú háur á undirliggjandi forsendum þjóðernis og trúarbragða. Evrópusambandið hefur athugasemdalaust horft upp á þjóðarmorð Ísraelsríkis gegn Palestínumönnum á Gaza og Vesturbakkanum í yfirlýstu trúarbragðastríði gyðingdóms og íslam. Stríðið í Íran er framhald þess þjóðarmorðs. Rétt eins og stríðið í Úkraínu sem  hófst á ofsóknum gegn rússneskumælandi íbúum landsins og grísk-kaþólskum trúarhefðum þeirra er nú fjármagnað einvörðungu af þegnum ESB.

Ef horft er yfir sögu Evrópu á á hún sér vissulega fortíð sem nýlenduveldi er byggði á kynþáttahyggju, en ekki verður séð að leiðtogalið hennar hafi í heild sinni litið lægra í þessu sólsetri aftansins sem nú blasir við. Enginn evrópskur leiðtogi hefur lagt orð til friðar í því stríði sem nú vofir yfir álfunni allri. Enginn evrópskur leiðtogi hefur lagt fram marktæk orð til sáttar í þessu stríði. Við sem erum þegnar þessara lýðskrumara göngum villt í þokunni eins og K. í þorpinu undir Höllinni þar sem herra West West greifi býr í ósýnilegum kastala sínum. Augljóst er að Evrópa er þetta þorp og West West greifi á sinn vopnabróðir í Washington. Ég sagði einu sinni við róttæka skoðanabræður mína í deilum um stjórnmál að ég liti fyrst á sjálfan mig sem Evrópubúa, svo sem Íslending. Það vakti þá nokkra hneykslun. Ég er enn sama sinnis, en ég hef haft augu til að horfa í Evrópupakka Þorgerðar og Kristínar og ég segi nei við honum. Hann geymir vopnabúr West West greifa.

DELEUZE: FRÁ MOLDVÖRPUNNI TIL SNÁKSINS

DELEUZE ÁN MÁLALENGINGA

Ég hef undanfarið verið að lesa Gilles Deleuze. Það er ekki áreynslulaust. Það er nokkuð langt síðan ég gerði fyrstu atlögurnar, en gafst oftast fljótlega upp. Leið hans að kjarna málsins er sjaldnast greiðfær og á sér óteljandi krókaleiðir og hliðarspor. Ég tel mig þó vera að komast á sporið þessa dagana, og langar af því tilefni að birta nýja endursögn mína á afar skeleggri og skilmerkilegri greinargerð hans um "eftirlitssamfélag" okkar tíma, og hvernig það spratt upp af "agasamfélaginu".  Lesandanum til skemmtunar kennir hann agasamfélagið við moldvörpuna og eftirlitssamfélagið við snákinn, en þessi samlíking nær ekki lengra: hér er tekið skýrt og afdráttarlaust til máls án annarra myndlíkinga eða krókaleiða. Eins konar eftirmáli við höfuðrit hans um "Mismun og endurtekningu" annars vegar og "Rökfræði skynvitsins" hins vegar. Þessi "Eftirmáli" var skrifaður 1992, þrem árum fyrir andlátið, og er því með því síðasta sem hann lét frá sér fara. Textinn er enn  eins og talaður inn í samtíma okkar, hér birtur lesendum hugruna til fróðleiks og skemmtunar.
Gilles Deleuze:

Eftirmáli um Eftirlitssamfélagið

 

1.

Sagan

Foucault staðsetti agasamfélögin á átjándu og nítjándu öld og þau ná hámarki sínu í upphafi þeirrar tuttugustu. Þau áttu frumkvæði að skipulagningu afgirts rýmis og svæða í stórum skala. Þar hættir einstaklingurinn aldrei að fara frá einu lokuðu umhverfi til annars, þar sem hvert hefur sín lögmál: fyrst fjölskyldan; síðan skólinn („þú ert ekki lengur í fjölskyldu þinni“); síðan vinnubúðirnar („þú ert ekki lengur í skólanum“); síðan verksmiðjan, þá af og til sjúkrahúsið og hugsanlega fangelsið, sem er  skýrasta dæmið um hið lokaða umhverfi. Það er fangelsið sem þjónar sem hliðstæð fyrirmynd í kvikmynd Rosselini „Evrópa ‘51″‚ Þar sem kvenhetjan gat ekki annað en hrópað: „Ég hélt að ég væri að sjá fanga!“ þar sem hún sá hóp verkamanna að störfum.

Foucault hefur með snilldarlegum hætti greint hlutverk þessara afmörkuðu rýma sem verða sýnilegust í verksmiðjunni:  hið fullkomna hlutverk þessara lokuðu og skýrt afmörkuðu rýma til samþjöppunar, til afmarkaðra tímasetninga, til skipulagningar vinnuaflsins þannig að afköstin verði meiri en fjöldinn gefur tilefni til. En Foucault gerði sér líka grein fyrir hverfulleika þessa líkans: það var arftaki höfðingjaveldisins (societies of sovreignity) sem átti sér allt annað markmið og hlutverk (að skattleggja frekar en að skipuleggja framleiðsluna, að ríkja yfir dauðanum frekar en að stjórna lífinu). Þessi umskipti tóku sinn tíma, en Napóleon virtist framkvæma þessa umbreytingu í stórum stíl frá einu samfélagi til annars. En agakerfin gengu í gegnum sína kreppu og viku fyrir nýjum öflum er fóru á skrið í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar: við vorum ekki lengur agasamfélag skýrt afmarkaðra rýma.

Við búum nú við almenna kreppu er nær til allra skilgreindra og afmarkaðra rýma: hvort sem um er að ræða fangelsi, sjúkrahús, verksmiðju, skóla eða fjölskyldu. Fjölskyldan er „innrými“ í kreppu, ekki síður en önnur athafnarými mannsins, menntastofnanirnar, fagfélögin o.s.frv. Stjórnvöld linna engum látum í að boða nauðsynlegar umbætur: endurbæta á skólakerfið, endurskipuleggja atvinnulífið, sjúkrahúsin, herþjónustuna og fangelsin. En allir vita að þessar stofnanir hafa runnið sitt skeið, hversu langur sem líftími þeirra verður.  Þetta er aðeins spurning um að halda í hinstu helgisiði þeirra, og halda fólki við vinnu þar til nýju verktakarnir banka á dyrnar.

Þetta eru eftirlitssamfélögin, sem eru í því ferli að leysa af hólmi agasamfélögin. „Control“ er nafnið sem Burroughs leggur til sem hugtak yfir þetta nýja skrímsli, og Foucault hefur horfst í augu við sem nánustu framtíð okkar. Paul Virilio hefur einnig verið iðinn við að rannsaka þróun þess frjálsfljótandi eftirlitskerfis, sem hefur leyst gömlu agakerfin af hólmi, er störfuðu innan lokaðs ramma.  Óþarft er að nefna sérstaklega til sögunnar hinn hraða vöxt lyfjaframleiðslunnar, öreindafræðanna og erfðavísindanna, þótt þessar greinar eigi augljóslega eftir að setja mark sitt á þessa þróun. Það er engin ástæða til að takast á um hvaða stjórnvöld séu skjótvirkust, því alls staðar eiga sér stað átök frelsandi og bælandi afla.

Við getum tekið sem dæmi kreppu sjúkrahússins sem lokað rými. Heilsugæslustöðvarnar, hjúkrunarrýmin og daggöngustofurnar, sem í fyrstu gátu státað af áunnu frelsi, en hafa síðan verið felld inn í eftirlitskerfi sem jafnast á við harðasta heraga. Það er ekkert tilefni vonar eða ótta, einungis tilefni leitar að nýjum vopnum.

2.

Rökfræðin

Mismunandi vistanir á innilokunarrýmum sem einstaklingurinn má þola eru sjálfstæðar breytur: í hvert skipti er einstaklingnum sagt að byrja á núlli, og þó að sameiginlegt tungumál sé til fyrir alla þessa staði, byggir það á hliðstæðum. Hins vegar eru ólík eftirlitskerfi óaðskiljanleg tilbrigði, sem mynda kerfi breytilegrar rúmfræði er byggir á tölfræðilegu tungumáli (sem þarf ekki að fela í sér tvíþættingu). Hólfin eru mót, aðgreind steypumót, en stýringarnar felast í mótun, rétt eins og sjálfsaðlögunarsteypa sem mun stöðugt breytast frá einu augnabliki til annars, eða eins og gatasigti þar sem götin umbreytast frá einum punkti til hins næsta.

Þetta verður augljóst þegar litið er til launagreiðslanna: verksmiðjan var stofnun sem hélt innri kröftum sínum í jafnvægi, hæsta mögulega hvað varðar framleiðslu, lægsta mögulega hvað varðar laun. En í eftirlitssamfélaginu hefur samsteypan (corporation) komið í stað verksmiðjunnar og samsteypan er loftkenndur andi eða gas. Auðvitað var verksmiðjan þegar kunnug bónuskerfinu, en samsteypan vinnur dýpra að því að koma launaskalanum í kerfi ævarandi yfirkyrrstöðu sem virkar í gegnum áskoranir, samkeppni og mjög kómískan anda hópfunda. Ef fávitalegustu sjónvarpsþættirnir eru svona vel heppnaðir, þá er það vegna þess að þeir tjá aðstæður samsteypunnar af mikilli nákvæmni. Verksmiðjan myndaði hóp einstaklinga sem saman stuðlaði að tvöföldum framgangi yfirmannsinns, sem hafði umsjón með sérhverjum þætti innan fjöldans, og stéttarfélaganna sem virkjuðu mótspyrnuna. Samsteypan heldur uppi vakandi athygli á innri samkeppni sem heilbrigðu hvatningarmeðali er kallar á innbyrðis átök einstaklinganna og sundrar hverjum og einum innra með sér. Mótandi meginregla um „laun samkvæmt verðleikum“ hefur læst sig inn í sjálft menntakerfi þjóðarinnar. Rétt eins og samsteypan hefur komið í stað verksmiðjunnar, þá hefur símenntunin tilhneigingu til að koma í stað skólans, og stöðugt eftirlit kemur í stað prófsins. En það er markvissasta leiðin til að flytja skólann inn á verksvið samsteypunnar.

Í agasamfélögunum þurfti alltaf að byrja á fyrsta reit, (fyrst í skólanum, svo í vinnubúðunum og aftur í verksmiðjunni), en í eftirlitssamfélögunum er aldrei neinu lokið – samsteypan, menntakerfið og herinn eru grundvallatstærðir sem lifa saman í einu og sama mótinu, rétt eins og alheimskerfi afmenntunar. Í skáldsögunni Réttarhöldunum lýsti Kafka því hvernig hann staðsetur sjálfan sig á þröskuldinum milli tveggja gerða félagslegrar mótunar, þar sem hann lýsir því  sem virtist syndakvittun agasamfélagsin (á milli tveggja fangelsa) sem hinni ógnvænlegustu  gerð réttarfars.  Á milli tveggja fangelsa mætum við tveim gjörólíkum hliðum réttarfarsins: augljósri sýknun agasamfélagsins og hinum endalausa skilafresti eftirlitssamfélagsins (með óteljandi tilbrigðum), og ef lög okkar eru hikandi og sjálf í kreppu, þá er það vegna þess að við erum að yfirgefa annað svæðið til að flytjast yfir í hitt.

Agasamfélögin eiga sér tvo póla: undirskriftina sem tilgreinir einstaklinginn og kennitöluna sem gefur til kynna stöðu hans innan fjöldans. Þetta er vegna þess að regluverkin sáu aldrei neinn ósamrýmanleika milli þessara tveggja valkosta, og vegna þess að valdið framkallar einstaklingsvæðingu um leið og það virkjar fjöldann, það er að segja setur þá einstaklinga sem undir það eru settir í eina fjöld og mótar einstaklingseðli sérhvers aðila samkvæmt hópmynduninni. (Foucault sá uppruna þessarar tvöföldu aðferðar í hirðisvaldi prestsins – safnaðarhjörðinni og sérhverjum sauði hennar – en hið borgaralega vald beitir öðrum aðferðum til að breyta sér í „prest“. ) Í eftirlitssamfélaginu skipta undirskriftin eða kennitalan hins vegar ekki máli, heldur hinn rafræni kóði sem er lykilorðið. Agasamfélögin notast hins vegar við eftirlitsorð (watchwords) (jafnt frá sjónarhóli samþættingar og andófs). Tölfræðilegt tungumál eftirlitsins  er gert úr kóðum sem veita eða hafna  aðgangi að upplýsingum. Við erum ekki lengur að fást við parið fjöldinn/einstaklingurinn. Einstaklingar eru orðnir „tvístaklingar“ (dividuals)  er mynda úrtak, sýnishorn, gögn, markhóp eða „gagnabanka“. Kannski eru það peningarnir sem lýsa best greinarmuninum á þessum tveimur samfélögum, þar sem aginn vísaði alltaf til sleginnar myntar sem á sér gull sem tölulegan staðal, á meðan eftirlitið vísar til fljótandi gengis á skiptimarkaði, mótað út frá stöðu staðlaðra gjaldmiðla.  Gamla peningamoldvarpan er dýr hins afgirta rýmis agasamfélagsins, en snákurinn er dýr eftirlitssamfélagsins. Við höfum fært okkur um set frá einu dýri til annars, frá moldvörpunni til snáksins, en það gerist einnig í lifnaðarháttum okkar og samskiptum við aðra. Agamaðurinn var tímabundinn framleiðandi orku, en sá sem lifir í eftirlitskerfinu er bylgjóttur, á sporbraut, í samfelldu neti. Alls staðar hefur brettabrunið þegar komið í stað eldri íþrótta.

Vélbúnaðurinn aðlagast samfélagsgerðinni auðveldlega – ekki þannig að vélarnar verði stjórntækið, heldur vegna þess að þær tjá þau félagslegu form sem geta búið þær til og notað þær. Hin gömlu samfélög konungsvaldsins notuðu einfaldar vélar – stangir, trissur, klukkur. Nýlegri  agasamfélög komu sér upp vélbúnaði er byggði á orkunotkun er fól í sér óbeina hættu á óreiðu og virka hættu á skemmdarverkum. Eftirlitssamfélögin starfa hins vegar með vélar af þriðju gerð, en það eru tölvur þar sem dulin hætta felst í kerfistruflunum og augljós hætta birtist í sjóræningjastarfsemi og veirusmitun.

Þessi tækniþróun hlýtur að fela í sér jafnvel enn dýpri stökkbreytingu kapítalismans, vel þekkta stökkbreytingu sem hægt er að draga saman á eftirfarandi hátt: nítjándu aldar kapítalismi er kapítalismi samþéttingar á framleiðslu og eignum. Þess vegna reisti hann verksmiðjur sem voru afmörkuð lokuð rými, þar sem kapítalistinn var eigandi framleiðslutækjanna en einnig, smám saman, eigandi annarra rýma sem hugsuð eru með hliðstæðum hætti (fjölskylduhús verkamannsins, skólinn).

Hvað aðgengi að markaði varðar, þá er þess aflað stundum með sérhæfingu, stundum með landvinningum og nýlendustefnu, stundum með því að lækka framleiðslukostnað. En við núverandi aðstæður er kapítalisminn ekki lengur þátttakandi í framleiðslu, sem hann framvísar oftar en ekki til þriðja heimsins, jafnvel flóknum framleiðsluformum  vefnaðarvöru, málmvinnslu eða olíuvinnslu. Þetta er kapítalismi á æðra framleiðslustigi. Hann kaupir ekki lengur hráefni og selur ekki lengur fullunnar vörur: hann kaupir fullunnar vörur eða setur saman aðkeypta hluta framleiðslunnar. Það sem hann vill selja er þjónusta, en það sem hann vill kaupa eru hlutabréf. Þetta er ekki lengur framleiðslukapítalismi heldur sölukapítalismi, þar sem markaðsstarfsemin er í fyrirrúmi. það er að segja starfsemi sem byggir á sölu og markaðsöflun. Þannig byggir starfsemin fyrst og fremst á dreifingu og verksmiðjan víkur fyrir samsteypunni. Fjölskyldan, skólinn, herinn, verksmiðjan eru ekki lengur aðgreind hliðstæð rými sem beinast sameiginlega að hagsmunum eigandans, ríkisins eða einkarekstursins, heldur kóðaðar einingar, meðfærilegar breytur sem nú tilheyra samsteypu sem er mynduð af hluthöfunum.

Jafnvel listin hefur yfirgefið rými girðingarhólfsins til að komast inn í opnar samskiptarásir bankans. Landvinningar markaðsins eru gerðir með yfirtöku eftirlits, en ekki lengur með agaþjálfun; með því að festa markaðsgengið miklu frekar en með því að lækka tilkostnað, með umbreytingu vörunnar frekar en með sérhæfingu framleiðslunnar. Þannig öðlast spillingin ný völd. Markaðssetning er orðin miðja eða „sál“ samsteypunnar. Okkur er kennt að samsteypurnar hafi sál, sem eru einhverjar ógnvænlegustu fréttir samtímans. Markaðsstarfsemi er nú orðin að tækni hins félagslega eftirlits, og myndar nýja og ósvífna tegund húsbænda okkar. Eftirlitsstjórnin er skammvirk og með miklum veltuhraða, en jafnframt samfelld og takmarkalaus, á meðan agastjórnin var langvarandi, óendanleg og ósamfelld. Maðurinn er ekki lengur rýmislega innilokaður, heldur lokaður í ævarandi skuld.  Það er rétt að kapítalisminn hefur haldið þeirri breytu stöðugri, að þrír fjórðu hlutar mannkyns búi við algjöra fátækt, þessi hluti er of fátækur fyrir skuldafjötra og of fjölmennur fyrir innilokun. Eftirlitið þarf ekki bara að snúast um útþurrkun landamæra, heldur líka fólksfjölgunarsprengju fátækrahverfa og gettóa heimsins.

3.

Dagskráin

Hugmyndin um eftirlitskerfi er ráði við hvers konar umhverfi innan tiltekins svæðis (hvort sem um er að ræða dýr á tilteknu verndarsvæði, mannfólkið innan samstæðunnar eða notkun rafræns hálsbands) er ekki endilega eitthvað sem tilheyrir vísindaskáldskap. Felix Guttari hefur ímyndað sér borg, þar sem menn gætu yfirgefið íbúð sína, götu sína og borgarhverfi með rafrænu korti (tvístaklingskorti) er setji viss ytri mörk. En slíkt kort mætti  jafn auðveldlega taka úr gildi einn góðan veðurdag, eða á tilteknu tímabili dagsins. Það sem hér skiptir máli er ekki hin efnislegu landamæri, heldur tölvan sem hefur eftirlit með hreyfingum sérhvers einstaklings -með lögmætum eða ólögmætum hætti – og framvæmir þannig hnattræna kerfismótun.

Félagstæknileg rannsókn á eftirlitsaðferðum, sem gripið var til við upphaf þeirra, hefði þurft að vera afdráttarlaus og lýsa því sem þegar var í gangi varðandi þróun staðgengils fyrir hin afmörkuðu yfirráðasvæði agasamfélagsins, sem þá voru þegar orðin alræmd. Það kann að vera að eldri aðferðir, fengnar að láni frá fyrri samfélögum kóngaveldisins, stingi aftur upp kollinum í örlítið breyttri mynd. Það sem hér skiptir máli er að við erum stödd við upphaf einhvers.

Fyrir fangelsiskerfið: tilraunir til að finna aðstæður „staðgengilsrefsingar“, að minnsta kosti fyrir smáglæpi, og notkun rafrænna armbanda sem neyða dæmdan einstakling til að vera heima á ákveðnum tímum.

Fyrir skólakerfið: samfellt eftirlitskerfi og áhrif símenntunar á skólann, samsvarandi brotthvarf allra háskólarannsókna, innleiðing „samsteypunnar“ á öllum skólastigum.

Fyrir heilbrigðiskerfið: nýja heilsugæslan „án læknis eða sjúklings“ sem skilgreinir hugsanlegt veikt fólk og einstaklinga í áhættuhópi, sem á engan hátt vísar til hins einstaklingsbundna – eins og sagt er – heldur kemur í staðinn fyrir einstaklingsbundinn eða  tölumerktan kóða „tvístaklingsins“ (dividual) sem er undir eftirliti.

Í samsteypukerfinu: nýjar leiðir til að meðhöndla peninga, hagnað og menn, sem fara ekki lengur í gegnum gamla verksmiðjuformið.

Þetta eru mjög lítil dæmi, en þau munu auðvelda betri skilning á hvað átt er við með kreppu stofnananna, það er að segja stigvaxandi og dreifð uppsetning nýs yfirráðakerfis. Ein mikilvægasta spurningin mun varða getuleysi verkalýðsfélaganna: hafa þau burði til að aðlaga sig nýjum veruleika, þar sem þau eru þegar bundinn langri sögu réttindabaráttu innan agakerfisins og innan hinna lokuðu rýma, eða munu þau finna nýjar andspyrnuleiðir gegn eftirlitssamfélaginu?

Getum við nú þegar áttað okkur á grófum útlínum komandi samfélagsforma, sem geta ógnað gleði markaðssetningarinnar? Margt ungt fólk stærir sig nú undarlega af því að vera „áhugasamt“; það óskar aftur eftir iðnnámi og fastri fagþjálfun. Það er undir því komið að uppgötva hverju því er ætlað að þjóna, rétt eins og þegar forfeður þess uppgötvuðu markmið starfsgreinanna, ekki sársaukalaust. Greni snáksins  eru jafnvel flóknari en holur moldvörpunnar.

 

Upphaflega birt í L’Autre Journal 1 (maí 1990), endurprentað í Pourparlers (París: Minuit, 1990) og þýtt á ensku í tímaritinu OCTOBER 59, Cambridge  MA MIT Press 1992). Hér er stuðst við þessa ensku þýðingu.

AGAMBEN UM DYR ÓUMFLÝJANLEGRAR EINSEMDAR MANNSINS

Þegar ég hafði fylgst með áhugaverðum umræðum um einsemdina í RUV í kvöld fann ég að umræðan snerti textabrot eftir ítalska heimspekinginn Giorgio Agamben sem birtist í nýasta ritgerðakveri hans, "Quando la casa brucia" (Þegar húsið brennur) frá árinu 2020, kveri sem ég eignaðist nýverið og náði ekki að lesa fyrr en í heimfluginu frá Verona, lestur sem fékk mig blessunarlega til að gleyma stað og stund á miðri loftbrúnni milli Veróna og Keflvíkur. Þetta eru textar sem tala ekki bara til okkar úr staðleysu þröskuldarins á milli þessara höfuðborga sem loftbrúin yfirstígur, heldur tala þeir til okkar frá þröskuldi tungumálsins, heimspekinnar og ljóðlistarinnar með óði þess sem upplifir hús sitt í ljósum loga svo að orðin vega salt á logandi röftunum sem hrynja yfir okkur. í ótrúlegri greiningu sinni á gömlum klausturdyrum í innsetningu arkitektsins Carlo Scarpa við inngang arkitektaskólans í Feneyjum fær hann okkur til að skynja þann óyfirstíganlega þröskuld sem vatnið hylur og skilur á milli orðanna og hlutanna, á milli höfundarins og lesandans, á milli okkar og náungans í samtíma sem í flaumi orða sinna og mynda hefur afhjúpað óhjákvæmilega einsemd mannsins andspænis þeim himni sem speglast í vatninu er hylur láréttar dyrnar að klaustrinu í fremstu arkitektamiðstöð Evrópskrar menningar. Það tók mig tíma að meðtaka orð Agambens, og ritgerðin um dyrnar og þröskuldinn kallaði á þessa tilraun mína til að skilja þau orð á íslensku. Ég lauk þessati þýðingu í dag. Textanum fylgdu engar frekari skýringar eða neðanmálsgreinar, þær eru allar minn tilbúningur fyrir íslenska lesendur.

Giorgio Agamben:

DYR OG ÞRÖSKULDUR

Að endanlega uppgötva

hvernig nautnirnar eiga sér engar dyr,

og hefðu þær slíkar stæðu þær opnar,

þannig gætum við báðar tvær verið utandyra

í jöfnu falli án unaðs í leiknum

ég með dyrnar og þú með lykilana

Patrizia Cavalli[1]

 

Við hönnun inngangsins að Arkitektaskólanum í Feneyjum (IUAV), sem Carlo Scarpa[2] var falin á sjöunda áratug síðustu aldar af háskólaráðinu, var hann beðinn um að nýta til verksins dyrabúnað úr Istría-kalksteini er hafði fundist við endurreisn Tolentina-klaustursins sem nú hýsir skólann. Scarpa ákvað að leggja dyrabúnaðinn í lárétta stöðu á jörðina og fylla hann með vatni. Þannig sjá allir sem nú eiga leið inn í þetta gamla klaustur frá torginu sem við það er kennt, – sér til nokkurrar furðu – hvernig þessum dyraumbúnaði var komið fyrir í láréttri stöðu af arkitektinum Sergio Los eftir andlát Scarpa.

Þessi lárétta framsetning dyraumbúnaðarins, sem á sér eðiliega lóðrétta stöðu,  verður vart afgreidd án frekari umhugsunar.

Dyraumgjörð Tolentina-klaustursins í Feneyjum sem  arkitektinn Carlo Scarpa lagði lárétta undir vatn við nýja innganginn í klausturbygginguna sem nú hýsir arkitektaskólann í borginni.

Hugtakið dyr (porta) á sér tvær ólíkar merkingar sem oft ruglast saman í daglegu tali. Annars vegar felur hugtakið í sér opnun, aðgang (adito), hins vegar lásbúnaðinn sem opnar þær og lokar. Í fyrra tilfellinu eru dyrnar fyrst og fremst umgangur og skil, í seinna tilfellinu er öllu heldur um að ræða strúktúr sem lokar og skilur á milli tveggja ólíkra rýma. Aðgangs-dyrnar eru tómt rými er afmarkast frá báðum hliðum af þili, af þröskuldi að neðan og þverbita að ofan. Lásdyrnar eru fyrirbæri gerð úr ólíkum efnum og yfirleitt festar við hliðarveggina með hjörum sem þær snúast á við opnun og lokun sem loka eða opna fyrir aðgengi.

Þar sem þröskulds-dyrnar eru nánast alltaf tengdar lásdyrum, þá eru fyrirbærin svo nátengd, að Simmel[3]gat skilgreint dyrnar með samanburði við brúna, einmitt út frá möguleikanum á lokuninni. „Út frá skyldleika aðskilnaðarins og samtengingarinnar birtist áherslan á hið síðarnefnda í brúnni sem yfirstígur fjarlægðina frá brúarsporðunum og gerir hana bæði sjáanlega og mælanlega, á meðan dyrnar sýna með afgerandi hætti hvernig sameining og aðskilnaður eru ekki annað en tvær ásjónur eins gjörnings… Einmitt vegna þess að þær geta líka verið opnar, þá gefur lokun þeirra sterkari tilfinnigu fyrir viðskilnaði gagnvart því sem er utan dyra en einfaldur múrveggur myndi gera“.

Í hinum klassíska heimi voru láréttar dyr þekkt fyrirbæri. Ein þeirra var samkvæmt öllum lýsingum það sem kallað var mundus, hringlaga hol sem Rómúlus lét grafa við stofnsetningu Rómaborgar og kom á sambandi á milli heims lifenda og undirheima hinna látnu. Þetta rými var opnað þrisvar á ári, á dögum sem upp frá því voru taldir „religiosi[4].  „Það sem var falið og hulið leynd í átrúnaði Manes[5] var leitt í ljós og opinberað“ og opinber starfsemi samtímis aflögð. Fornir vitnisburðir lýsa mundus eins og gröf (ít. Fosso, gr. Bothros) eða mjög djúpu holrými (altissimus puteus) er lokað var með steinloki, kallað manalis lapis eða steinn Mana-andanna, sem lyft var af opinu á tilteknum dögum, þar sem sagt var að heimurinn væri opinn (mundus patet).

Aðrar heimildir geta þess að hugtakið mundus[6]hafi einnig verið notað um það þrönga op sem Prosperínu var rænt í gegnum niður í Hadesarheima. Hinar „svörtu dyr  Dite[7]“ voru einnig til staðar í Averno-vatni[8] en þar var sagt að Eneas hafi hafið ferð sína til undirheima. Þar var opið dag og nótt (noctesque atque dies patet atra ianua Ditis – vi, 127). Um var að ræða dyr og/eða mörk, sem sagt var að auðvelt væri að yfirstíga einu sinni (facilis descensus Averno[9]), en bakaleiðin þeim mun erfiðari og áhættusamari (sed revocare gradum… hoc opus, hoc labor est – 128).

Við höfum þannig vanist að telja þessar tvær gerðir dyra óaðskiljanlegar, en gleymum þar með að þær eru ekki bara ólíkar, heldur gegna í raun tveim gagnstæðum hlutverkum.  Aðgengisdyrnar byggja á því að yfirstíga þröskuld, í læsingardyrunum felst hins vagar möguleikinn á að loka eða opna fyrir umferð. Þannig má segja að lokudyrnar séu uppfinning til eftirlits með þröskuldsumferð í þeim tilgangi að takmarka þá skilyrðislausu umferð sem þær annars bjóða upp á. Þaðan er einnig runnin hinn endalausi skari dyravarða, allra þeirra engla eða útkastara, lyklavarða og stafrænna lykilorða, er eiga að tryggja að lokudyrnar virki með tilætluðum hætti og hleypi engum inn í leyfisleysi.

Fullkomnari og háþróaðri aðferðum hefur einnig verið beitt til að tryggja óheimilan yfirgang þröskuldsins. Ein þeirra er „la sanzione[10]“ eða bannið, sem samkvæmt Rómarréttinum beitti þann er yfirsteig bannaðan þröskuld dauðarefsingu í samræmi við frægt fordæmi  morðsins á Remusi[11] er hafði yfirstigið borgarmörkin. Eins og hugtakið „sancito“[12] gefur til kynna var borgarmúrinn þar með orðinn sanctus[13]s, eða samkvæmt orðum Ulipanusar[14]: ab iniuria hominum defensum atque munitum, varinn og forvarinn gagnvart ágengni mannanna. Þetta var í raun sú fyrirmynd og það fordæmi sem lögspekingarnir litu til, þegar þeir byrjuðu að skilgreina löggjöfina sem heilaga (sancta). Þannig varð fordæmi lögbannsins til, er skilgreindi í upphafi lögreglurvald (regime) þröskuldarins. Lögin eru þær dyr og það haft er banna eða leyfa umferð um þröskuldana er marka samskipti mannanna. Rétt eins og dæmisaga Kafka[15] segir hreint og klárt,  þá samsvara þau eigin dyrum, eru ekki annað en dyr.

Það er út frá þessum skilningi sem Scarpa rýfur hefðina ótvírætt með framsetningu sinni. Þessar liggjandi dyr eru ekki læsingardyr, og vatnið sem liggur yfir þeim felur í sér að þær geta aldrei verið lokaðar. (Reyndar eru dyr Scarpa ímynd Feneyja, og þannig eins konar ákall (invocazione), dyr Feneyja, en borgin hefur ekki þörf fyrir neinar dyr: til þess að komast inn í borgina þarf að yfirstíga einn þröskuld, sem er vatn Feneyjalónsins, rétt eins og við þurfum að dýfa fætinum í vatn til að komast í dyr Scarpa). En þetta eru engar dyr þröskuldanna, þar sem lárétt staða þeirra virðist koma í veg fyrir slíkt. Við sjáum vissa hliðstæðu í innsetningu Scarpa í Altabellis-höllinni í Palermo, þar sem hann hafði staðsett gotneskt op með tröppum upp á miðjum vegg, þar sem engin umferð var möguleg. Ef dyrnar teljast ekki vera staður, heldur aðgengi á milli tveggja staða, þá virðast þær hér verða sjálfar að stað – kannski hinn fullkomni staður, en notagildi hans er hins vegar ekki enn ljóst. Hvað sem öðru líður, þá afmarkar þessi lárétta dyraumgjörð hér svæði, sem hægt væri að ganga á, staðnæmast við og hugleiða, janvel dvelja við, – en hvorki er hægt að loka þeim né einfaldlega ganga í gegnum þær.   Aðgengið (l‘adito) er orðið að ambito: leiðarsmuga frá einum stað til annars, tjáð með forskeytinu ambi[16]sem liggur í hring um tiltekið svæði og fylgir inntaki þess með þolinmæði.

Kjörstað lásdyranna má finna í ævintýrunum. Allir þekkja söguna af hinni ungu brúði Bláskeggs (Barbablu) þar sem hann hafði á brúðkaupsnóttinni veitt brúði sinni heimild til að opna allar vistarverur hallarinnar nema eina, einmitt þar sem hún stakk lyklinum í skráargatið til þess að uppgötva það sem hún hafði hvorki vilja né leyfi til að sjá, það er að segja lík sex fyrri eiginkvenna brúðgumans. Til er trúarlegt afbrigði þessarar sögu, Dóttir Guðsmóðurinnar, þar sem sú sem fremur brotið og opnar forboðna herbergið er dóttir trésmiðsins sem Guðsmóðirin hafði tekið með sér í Paradís. Í stað herbergjanna 12 sem henni hafði verið heimilað að opna í Paradís þráaðist hún til að opna þrettándu vistarveruna, þar sem hún blindaðist af að horfast í augu við heilaga þrenningu. Hvort sem leyndarklefinn hefur að geyma dásemdina (ljóma heilagrar þrenningar) eða hryllinginn (lík eiginkvennanna), þá var í báðum tilfellum um það að ræða sem ekki mátti sjá eða vita um. Lásdyrnar eru þannig einkenni yfirgangsins og sektarinnar, og rétt eins og Páll sagði um boðorðin í Torah, þá eru dyrnar til þess að syndirnar dafni[17].

„Í þjóðháttafræðunum eru þær kallaðar „Rites de passage“ hátíðar- og sorgarathafnirnar er tengjast dauðanum, fæðingunni, fullorðinsfermingunni o.s.frv. Í samtímanum hafa þessi tímamót sífellt verið að missa mikilvægi sitt og viðhöfn. Við erum orðin mun fátækari af reynslu tímamótanna“  Ekki virðist þörf á athugasemdum við þessa samfélagsgreiningu Walters Benjamins. En setningin sem kemur í kjölfarið skiptir ekki minna máli: „gera verður skýran greinarmun á þröskuldinum (die Schwelle“) og landamærunum (Grenze). Þröskuldurinn er tiltekið svæði, í orðinu schwellen (að vaxa, þenjast út) felast stigbreytingar, umbreytingar, sjávarföll (Wandel, Űbergang, Fluten), merkingar sem orðsifjafræðin ætti ekki að láta framhjá sér fara“. Staðareðli þröskuldarins (Zone, sem felur í sér umtalsverða rýmisvídd, sambærilega við rjóður) er hér undirstrikað með skyldleika við sögnina schwellen, sem orðsifjameistararnir hafna, þröskuldurinn verður rými þar sem eiga sér stað umbreytingar, umskipti og jafnvel breytingar frá flóði til fjöru. Í öllu falli rými á borð við „svæðið“ (zona) sem Scarpa skapaði, svæði sem hefur til að bera eiginleika sem veita því sérstöðu, en er ekki bara markalínu sem þarf að yfirstíga.

Sú tilgáta að nútíminn hafi glatað reynslunni af þröskuldinum kallar í raun á frekari greiningu. Vissir helgisiðir tímamótanna, sem afmörkuðu þætti í æviskeiði einstaklinga og samfélagshópa í hefðbundnum samfélögum, glata æ meir mikilvægi sínu. Þetta felur hins vegar ekki í sér að þröskuldarnir hafi verið afskrifaðir. Öllu heldur mætti segja að með fjarveru hátíðahaldanna sem gerðu þröskuldana sýnilega hafi þeir útþynnst fram úr hófi. Þannig hefur það gerst með unglingsárin sem í iðnaðarsamfélaginu hafa framlengst út í hið óendanlega, allt þar til þau fylla endanlega allt æviskeiðið.

Þar fyrir utan höfum við svið þar sem reynsla þröskuldsins hefur ekki bara varðveist sem minning, heldur þvert á móti vakið sérstaka athygli. Hér erum við að tala um svið listanna. Frá tilteknum tímamótum er falla saman við tíma framúrstefnuhópanna við upphaf 20. aldar, virðist sem listamennirnir beini orku sinni ekki lengur að framleiðslu listaverka, heldur að þeirri þversagnarkenndu tilraun sem felst í staðfestingu þess þröskuldar, þar sem hin listræna sköpun fær þrifist sem slík, óháð verkum sínum. Þetta á jafnt við um dadaistana og súrrealistana, þar sem jafnframt var um það að ræða að staðsetja listamanninn á því efnislausa bili sem í senn sameinar og aðskilur líf og list, listmuninn og iðnvarninginn, vitundina og meðvitundarleysið. Engu að síður hafa listamennirnir viljað staðsetja sig á þessum ótrygga þröskuldi sem þeir varðliðar er standa umfram allt vörð um þá sjálfsmynd listamannsins sem ekki hefði lengur neina merkingu. Þannig hafa aðgangsdyrnar á nýjan leik breyst í lásdyrnar, dyr listasafnsins sem þeir töldu sig hafa sagt skilið við, og þær dyr hafa nú lokast á nýjan leik að baki þeirra.

Í latneskri tungu er að finna í það minnsta fjögur hugtök um dyr: foris (eða fores) sem hefur glatast í latnseskum tungumálum og einungis lifað af í mynd atviksorðsins sem foris, foras eða „fuori“ (á ítölsku sem „úti“ eða „fyrir utan“, „utangátta“). Þetta orð merkti ekki fyrst og fremst dyrnar sem efnislegt fyrirbæri, heldur innganginn í domus, sem ekki er skilið sem bygging, heldur sem heimili fjölskyldunnar. Atviksorðið foris var þannig andstæða orðsind domi, og merkir þannig það sem á sér stað fyrir utan svið og rými fjölskyldunnar. Latneska orðið porta (sbr. grísku peiro,= þversum) vísar hins vagar frekar til hugmyndarinnar um inngöngu, á meðan ostium, sem ítalska orðið „uscio“ er dregið af, vísar einfaldlega til ops eða útgangs (sbr. ísl.: ós, á ítölsku: munnur eða op). Að lokum er orðið ianua (sem tengist fyrst og fremst guðanafninu Janus með andlitin tvö er snúa fram og aftur. Orðið vísar þannig til dyra sem opnast í báðar áttir, og var notað um yfirbyggða hliðið í Róm, þar sem þeir er stóðu í peningaviðskiptum áttu gjarnan leið um. Enn og aftur snýst hugmyndin um umgang, um aðgengi sem einungis virðist með orðinu foris öðlast merkingu aðskilnaðar þess sem er innan (incluso) og þess sem er utan (escluso). Aðalatriðið er þó að hugmyndin um „fuori“ sé tjáð með orði er merki bókstaflega „utandyra“ (alla porta, foris, foras). Þetta „fuori“ (úti) er ekki annað rými sem skilmerkin greina skilmerkilega frá innrýminu: útlendingurinn (il forestiero) og „il forastico“ eru upprunalega staðsettir á þröskuldinum og upplifa reynsluna af útiveru dyranna.

Þannig opnast möguleiki á að hugsa dyrnar hvorki sem aðgengi er leiði til annars staðar, né heldur sem svið er hægt sé að umgangast (percorrere il contorno). Þær eru öllu heldur atburður tiltekinnar útivistar sem felur ekki í sér annan stað, heldur rými sem, samkvæmt skilgreiningu Kants á hlutnum í sjálfum sér, felur í sér svið er verði að vera fullkomlega tómt, hreinræktuð útivist sem öðlast sína fullkomnu skilgreiningu í hinum láréttu dyrum Arkitektaskólans í Feneyjum (IUAV): Það svið sem augun skynja fullkomlega sem yfirstíganlega markalínu, en einnig aðgengi er ekki leiðir til neins tiltekins staðar, heldur vísi til himins, íverustaður hinnar hreinu íveru, staður sem sýnir hinn nákomnu útvísun (foraneità) allra dyra.

Þegar Alexander frá Afrodisíu tjáir sig um þann aðskilda skilning sem Aristóteles fjallar um í De Anima (Um sálina, HÍB, 1993 í þýðingu Sigurjóns Björnssonar), þá skilgreinir hann skilningsgáfuna með staðaratviksorðinu thyraten, utandyra (úr grísku, thyra = dyr). Þetta felur í sér að einnig hugsunin tilheyri eins konar dyrum er sá sem hugsar upplifi fyrst og fremst sem tiltekna utanveru eða útivist. Þessi þröskuldur verður fyrir Alexander svæðið þar sem einstaklingurinn sameinast hinni virku skilningsgáfu sem yfirstígur hann og leiðir til handanveru. En eins og Hannah Arendt bendir á í bók sinni um Eichmann, þá verður þetta fyrir okkur eins og tímabundin aflýsing (sospenzione) þar sem linnulaus framvinda viðtekinna mynda og viðtekinna orða verður skyndilega rofin. Það er eins og svið frelsis verði mögulegt við stöðvun hugsunarinnar í þessu framandlega tómarými útiverunnar.

Samkvæmt hebreskri hefð þá er orðið Maqom (= staður) jafnframt eitt af nöfnum Guðs. Í trúarlegri villukenningu frá miðöldum segir að Guð sé ekki annað en tilvist allra hluta, að hann sé jafnt í steininum sem orminum, englinum sem manninum. Þessa trúvillu þekkjum við einungis í gegnum vitnisburð guðfræðinganna sem dæmdu á bálköstinn þá fylgjendur hennar sem tóku bókstaflega þá fullyrðingu Páls postula[17] sem segir að við lifum og hrærumst í Guði og hann sé í raun ekki annað en tilvist hlutanna. Hið guðdómlega er orms-tilvist ormsins, steinstilvist steinsins, og það er rétt og gott að heimurinn sé þannig , að eitthvað geti birst og átt sér ásýnd í endanleika sínum og sínum guðdómlega stað.

Við erum ekki að snúa út úr orðum Amalríks[18] þegar við segjum að á þeim punkti sem við skynjum veruna í Guði í þessum ormi eða þessum steini, þá birtast okkur þessi fyrirbæri  eins og dyr er leiða okkur ekki á tiltekinn stað eða til einhvers, heldur opni þau fyrir okkur þann stað allra staða sem er Guð. Rétt eins og við megnum hvorki að opna þær né loka þeim, þá getum við heldur ekki gengið í gegnum þessar dyr. Rétt eins og himininn speglast í kaffærðum dyrum Scarpa sem verða himneskar, þannig verður dyraveran einungis utan sjáfrar sín í hinu opna, farsællega undanskilin lögum lyklanna jafnt og lögum þröskuldanna.

 

[1] Patrizia Cavalli (1947  2022) var merk skáldkona er hafði áhrif á ítalska ljóðagerð á 20. öld.

[2] Carlo Scarpa (1906 – 1978) var einn af fremstu atkitektum evrópsks módernisma um miðbik 20. aldar.

[3] Georg Simmel (1858-1918) var þýskur félagsfræðingur og heimspekingur sem lagði áherslu á form mannlegra samskipta í ritum sínum sem höfðu áhrif á mótun félagsfræðinnar.

[4] Latneska hugtakið religio er talið koma af sögninni ligare, sem merkir að tengja saman og „religione“ á ítölsku merkir þá upprunalega „það sem tengir saman“

[5] Mani (Manes á latínu) voru andar hinna framliðnu samkvæmt fornum rómverskum átrúnaði.

[6] Mundus er latneska og merkir „heimur“, af því er dregið ítalska orðið „mondo“.

[7] Dite (á latínu „Disitis“ eða „Dispater“ stendur fyrir „föður fjársjóðsins“ og er annað nafn undirheimaguðsins Plútons sem var staðgengill Hadesar, guðs undirheimanna í rómverskum átrúnaði.

[8] Stöðuvatn í eldgýg í Campi flegrei eldstöðvunum í nágrenni Napoli.

[9] „Auðveld er niðurleiðin í Averno“

[10] sanzione getur bæði þýtt bann og blessun eða leyfisveiting á ítölsku

[11] Remus var bróðir Rómulusar, stofnanda Rómaborgar, drepinn af bróður sínum vegna vanhelgunar á landamærunum sem bræðurnir mörkuðu sér við stofnun borgarinnar.

[12] Sagnorðið „sancire“ merkir að undirrita, staðfesta eða votta og er samstofna orðunum „sacer“ og „sacro“ sem vísa til hins heilaga.

[13] Sanctus á latínu merkir heilagur.

[14] Ulipanus var rómverskur lögspekingur (170 e.Kr – 228 e.Kr) kunnur af framlagi sínu við ritun Rómarréttarins sem markaði lög Rómverska heimsveldisins.

[15] Franz Kafka: Vor demGesetz, dæmisaga

[16] „ambito“ merkir afmarkað rými, dregið af latnesku sögninni „ambire“ sem merkir að ganga í kringum. Agamben vísar hér jafnframt til forskeytisins ambi-, sem vísar á „báða bóga“ sbr grísku: amphi-, t.d. í ambiguo sem merkir tvíræður og anffora = vasi með tveim höldum.

[17] Sbr. Bréf Páls postula til Rómverja, 7-12: …en satt er það, ég þekkti ekki syndina nema fyrir lögmálið.Því að eg hefði ekki vitað um girndina hefði ekki lögmálið sagt: Þú skalt ekki girnast. En er syndin hafði tekið tilefni af boðorðinu kom hún til leiðar í mér alls konar girnd, því að án lögmáls er syndin dauð…“

[18] Ekki er minnst frekar á orð Amalríks í þessum texta Agambens nema hér, og því ekki ljóst hvaða orð er átt við, en Amalrík frá Bena var franskur guðfræðingur og heimspekingur (dáinn í París 1204-07) sem talinn var haldinn trúvillu sambærilega við þá sem kemur fram í ljóði Megasar: „En Guð býr í garðslöngunni, amma…“ Hann myndaði söfnuð Amalrikana sem Marteinn Lúther taldi forvera mótmælenda gagnvart kirkjuvaldinu í Róm..

KAFKA, BENJAMIN OG AGAMBEN ANDSPÆNIS LÖGUNUM

Hér er birt íslensk endursögn mín á dæmisögu Franz Kafka, Vor dem Gesetz, um sveitamanninn sem stóð bæði utan og innan laganna.
Franz Kafka:

ANDSPÆNIS LÖGUNUM

 

(Endursagt úr Franz Kafka Sämtliche Werke, Schurkap Verlag 2008, Vor dem Gesetz, bls. 853)

Dyravörður stendur  fyrir framan Lögin. Sveitamaður kemur til dyravarðarins og biður um aðgang að Lögunum.  En dyravörðurinn  segir að hann geti ekki veitt honum aðgang núna. Maðurinn hugsar sig um  stundarkorn, en spyr svo hvort hann geti komist inn seinna. „það er hugsanlegt“, sagði dyravörðurinn, „en ekki sem stendur“.

Þar sem inngangurinn að Lögunum stendur opinn eins og alltaf, og dyravörðurinn stígur til hliðar, þá beygir maðurinn sig, til þess að fá innsýn. Þegar dyravörðurinn sér þetta fer hann að hlæja og segir: „Ef þú ert svo heillaður af því sem er innan dyra, hvers vegna freistar þú þess ekki að ganga inn, þó ég banni það? Þú verður hins vegar að gæta þín, því ég er valdamikill. Og ég er einungis hin lægst setti af öllum dyravörðunum. Það er dyravörður við sérhvern sal, sérhver valdameiri en sá síðasti. Þegar ég sé hinn þriðja í röðinni get ég ekki einu sinni horfst í augu við hann“.

Sveitamaðurinn hafði ekki átt von á þessum erfiðleikum, lögin ættu jú að vera hverjum og einum aðgengileg hvenær sem er, hugsaði hann. En eftir því sem hann virti dyravörðinn nánar fyrir sér í loðfeldinum sínum, með sitt hvassa nef og langa, svarta og þunna tataraskegg, þá ákvað hann með sjálfum sér að betra væri að bíða átekta þar til inngönguleyfið kæmi.

Dyravörðurinn færði honum lítinn skemil til að setjast á til hliðar við innganginn. Hann situr þar dögum og árum saman. Hann gerir margar tilraunir til að fá inngönguheimild og truflar dyravörðinn með inngöngubænum sínum. Dyravörðurinn setur hann oft í smá yfirheyrslur, spyr hann um heimilisfang og ýmislegt fleira, en það reynast engu að síður innihaldslausar yfirheyrslur í ætt við þær spurningar sem háttsettir menn spyrja mann, og í lokin gefur hann honum sama svarið, að hann geti ekki enn hleypt honum inn.

Maðurinn sem hafði nestað sig vandlega undir ferðalag sitt, notaði allt sem hann fann í taski sínu, án tillits til verðmætis, til að múta dyraverðinum. Hann tók við öllu, en sagði um leið: „Ég tek einungis við þessu frá þér til þess að þú haldir ekki að þú hafir vanrækt eitthvað“.

Í gegnum árin horfði maðurinn nánast viðstöðulaust á dyravörðinn.  Hann gleymdi hinum dyravörðunum og honum fannst þessi fyrsti vera eina hindrunin fyrir inngöngu sína í Lögin. Hann bölsótast yfir óheppni sinni, í fyrstu hástemmt og vægðarlaust, seinna þegar hann tók að eldast muldraði hann í gaupnir sér. Hann varð barnslegur, og þegar hann var eftir áralangt áhorf sitt á dyravörðinn farinn að bera kennsl á flærnar í loðkraga hans, bað hann einnig flærnar um hjálp við að kalla fram sinnaskipti dyravarðarins.

Að síðustu dapraðist honum sjón, og hann vissi í raun ekki hvort myrkrið væri að hellast yfir hann, eða hvort það væri augum hans að kenna. Hann sér engu að síður bjarma koma úr fjarska, bjarma sem augljóslega kemur út um dyr Laganna. Nú átti hann skammt eftir ólifað. Fyrir dauðastundina safnast nú allar reynslustundirnar úr lífinu saman í huga hans og kristallast í einni spurningu, sem hann hafði ekki lagt fyrir dyravörðinn til þessa. Hann vinkar til hans, þar sem stirður líkaminn megnaði ekki lengur að halda sér uppréttum. Dyravörðurinn þurfti að beygja sig djúpt niður að honum, þar sem stærðarmunurinn hafði snarlega breyst, manninum í óhag. „Hvað langar þig nú til að vita?“, spurði dyravörðurinn, „þú ert óseðjandi“. „Þar sem allir vilja fylgja Lögunum“, sagði maðurinn, „hvernig stendur þá á því að í öll þessi ár hafi enginn nema ég komið hingað til að biðja um inngang?“ Dyravörðurinn áttar sig á því að maðurinn á skammt eftir, og til þess að ná til daufra eyrna hans hrópar hann: „Hér gæti enginn annar fengið aðgang, því þessi inngangur var einungis hugsaður fyrir þig. Nú fer ég og loka honum.“

Giorgio Agamben, Franz Kafka og Walter Benjamin

Form laga án merkingar

og útlegðardómur Homo sacer

Íslensk þýðing á 4. kafla bókarinnar Homo sacer eftir Giorgio Agamben, sem hefur að geyma greiningu hans á Dæmisögu Franz Kafka um Sveitamanninn andspænis lögunum. Þýðingin er ekki fullfrágengin, og ég hef víða sett inn í sviga orð úr frumtextanum sem ekki bjóða upp á fullkomna þýðingu á íslensku og þurfa hugsanlega endurskoðunar við. Dæmi um þetta eru ítölsku orðin „bando“ og „abbandono“, en að þýða „bando“ sem bannsetningu vísar til hins gamla útlegðardóms á Íslandi. Þá er sögnin „vigere“ og nafnorðið sem af henni er dregið (vigenza) þýtt sem „gilding“ þeirra laga sem ekki hafa merkingu samkvæmt Agamben. Vitnanir Agambens í heimildarmenn koma víða fyrir innan sviga, og vísa í heimildaskrá í bókarlok, sem ekki er birt hér. Þessi útgáfa þýðingarinnar er enn í vinnslu, og telst ekki fullfrágengin.

Giorgio Agamben:
Form laga

4.1.  Í frásögninni Vor dem Gesetz hefur Kafka dregið upp dæmigerða skissumynd af formgerð hinnar fullvalda bannsetningar (bando).

Ekkert – og vissulega ekki neitun dyravarðarins – stendur í vegi fyrir bóndanum að ganga inn um dyr laganna, nema ef vera skyldi sú staðreynd að dyrnar standa alltaf opnar og að lögin hafa ekkert um það að segja. Tveir nýlegir túlkendur sögunnar, Jacques Derrida og Massimo Cacciari, hafa báðir, með ólíkum hætti þó, lagt áherslu á þetta atriði. Derrida skrifar: „La Loi se garde sans se garder, gardée par un gardien qui ne garde rien, la porte restante ouverte et ouverte sur rien“ (Derrida I, bls. 356). Og Cacciari undirstrikar þetta með aukinni áherslu á að vald Laganna felist einmitt í ómöguleika þess að ganga inn í það sem þegar er opið, að komast inn á þann stað sem maður er þegar staddur á: „Hvernig getum við vonast til að geta „opnað“ ef dyrnar standa þegar opnar? Við erum í hinu opna, hlutirnir eru fyrir hendi, ekki er um aðgengi að ræða… Við getum eingöngu gengið inn í það sem hægt er að opna. Hið þegar opna lamar okkur… Bóndinn getur ekki gengið inn, því innagangan er verufræðilega ómöguleg þar sem allt er þegar opið“ (Cacciari, bls. 69).

Frá þessu sjónarhorni sýnir frásögn Kafka hið hreina form laganna, þar sem það staðfestir form sitt skilmerkilegast einmitt á þeim punkti þar sem frásögnin fyrirskipar ekkert lengur, það er að segja í hreinni bannsetningu (bando). Bóndinn er undirsettur valdi laganna vegna þess að þau krefjast einskis af honum, þau færa honum ekkert nema eigin opnun. Samkvæmt reglu hinnar fullvalda undantekningar framfylgja lögin sjálfum sér með aftengingu, halda bóndanum í eigin bannsetningu (bando) með því að afskrifa hann (abbandonandolo). Þarna sjáum við einmitt hátind og frumrætur sérhverrar lagasetningar. Þegar presturinn í Réttarhöldunum dregur saman kjarna dómstólsins í formúlunni: „Dómstóllin væntir einskis frá þér. Hann tekur á móti þér þegar þú kemur, lætur þig fara þegar þú ferð“,  þá er hann með orðum sínum að lýsa frumgerðinni af nómos.

₹ Með hliðstæðum hætti heldur tungumálið manninum í sínu banni (bando), því í hlutverki sínu sem hinn talandi er hann þegar staddur inn í því, án þess að gera sér grein fyrir því. Allt það sem við gerum tilkall til frá tungumálinu (í formi hins ekki-tungumálslega, hins óáþreifanlega o.s.frv.) er ekki annað en tilkall tungumálsins, en sem slíkt er því viðhaldið í  slíkum tengslum einungis í gegnum útilokunina. Mallarmé tjáði þetta sjálfgefandi tilkall tungumálsins (natura autopresupponente) þegar hann skrifaði samkvæmt hegelskri formúlu að „logos er lögmál sem raungerir sig í gegnum afneitun sérhvers lögmáls“. Sem hið hreina lögmál sambandsins er tungumálið (eins og hin fullvalda bannsetning (bando)),  það sem gefur sjálft sig fyrirfram sem frumforsendu í mynd hins tengslalausa (irrelato), og hvorki er möguleiki á tengslamyndun eða tengsla-aflausn fyrir tilverknað þess sem tilheyrir sjálfu formi tengslanna. Þetta felur ekki í sér að hinn talandi maður sé útilokaður frá því sem ekki tilheyrir tungumálinu, heldur eingöngu að hann muni aldrei öðlast það í formi forsendu sem er afskrifuð og ósegjanleg, heldur öllu fremur í tungumálinu sjálfu (samkvæmt orðum Benjamins þá getur einungis „hin hreinasta útilokun hins ósegjanlega í tungumálinu“ leitt til „þess sem afsalar sér orðinu“ (Benjamin, 2, bls. 127).

4.2. En getum við litið á þessa túlkun á formgerð laganna sem tæmandi túlkun á erindi Kafka? Í bréfi til Benjamins frá 20. september 1934, skilgreinir Scholem þau tengsl við lögin sem Kafka lýsir í Réttarhöldunum sem „tómi opinberunarinnar“ (Nichts der Offenbarung), og leggur þar þann skilning í málið að það „sé ástand er staðfesti enn einu sinni sjálft sig í krafti þess að það sé í gildi (gilt) en merki (bedeutet) ekkert. Þegar auður merkingarinnar hverfur og það sem birtist er þar með smækkað niður í núllpunkt inntaks síns, án þess að hverfa (Opinberunin er eitthvað sem birtist), þá kemur tómið í ljós“ (Bemjamin 3, bls. 163). Samkvæmt Scholem eru lög er finna sig í slíku ástandi, ekki einfaldlega fjarverandi, heldur kynna þau sig öllu heldur í formi sinnar ómögulegu eftirfylgni. Hann andmælir vini sínum og segir „stúdentarnir sem þú talar um eru ekki stúdenar sem hafa glatað skriftinni,.. heldur námsmenn sem geta ekki lesið út úr henni“ (sama rit, bls. 147).

Gilding án merkingar (Geltung ohne Bedeutung); ekkert skilgreinir betur bannsetninguna (il bando) sem okkar samtími stendur ráðþrota gagnvart, en þessi skilgreining Scholems á stöðu laganna í skáldsögu Kafka. Hver er í raun og veru innri formgerð hinnar fullvalda bannsetningar (bando) annað en lög sem gilda (vige) en merkja (significa) ekki? Hvarvetna á jörðinni þar sem menn lifa á okkar tímum undir bannsetningu (bando) laga og hefðar, sem er viðhaldið einungis sem “núllpunkti“ inntaks síns og innifalið í fullkomnu afskriftar-sambandi (relazione di abbandono). Öll þjóðfélög og öll menningarsamfélög (án tillits til hvort um er að ræða alræði eða lýðræði, íhald eða framsókn) hafa á okkar tímum ratað í kreppu lögmætis, þar sem lögin (með þessu hugtaki á ég við allan texta hefðarinnar hvað varðar regluverk, hvort sem um er að ræða gyðinglegt Torha eða íslamskt Shariah, kristilega trúarsetningu eða veraldlegt nómos (lögsaga), í öllum þessum samfélögum ríkir nú hið hreina „tóm Opinberunarinnar“. En þetta er einmitt hin upphaflega formgerð hins fullvalda sambands (relazione sovrana), og tómhyggjan sem við lifum í er frá þessum sjónarhóli ekki annað en birting þessa sambands sem slíks.

4.3. Hið hreina form laganna sem „gilding án merkingar“ (vigenza senza significato) birtist í fyrsta skipti í nútímanum hjá Kant. Það sem hann í Kritik der praktischen Vernuft  kallar „hið „einfalda form laganna“ (die bloß Form des Gesetzes, Kant I, bls. 28) er í raun lagasetning smættuð niður í núllpunkt merkingar sinnar, en er engu að síður í gildi sem slík.

Kant skrifar: „Ef allt efnislegt er dregið frá tiltekinni lagasetningu, það er að segja sérhvert viljaákvæði (sem afgerandi markmið), þá stendur ekki annað eftir en einfalt form algildrar lagasetningar“ (Sama rit, bls. 27). Hreinn vilji, það er að segja vilji sem ákvarðast einungis af formi slíkrar lagasetningar, er „hvorki frjáls né ófrjáls“, rétt eins og bóndinn í sögu Kafka.

Takmörk, og um leið ríkidæmi hinnar kantísku siðfræði, felast einmitt í því að hafa látið form laganna ríkja sem innantóma reglu. Slíkt gilding án merkingar á siðferðilegu sviði á sér samsvörun á sviði þekkingarinnar sem hið yfirskilvitlega viðfang. Hið yfirskilvitlega (trascendentale) viðfang er í raun ekki raunverulegt viðfang, heldur „einungis hugmynd um samband“ (bloß eine Idee des Verhaltnisse) er tjáir einungis tengsl verunnar við fullkomlega óskilgreinda hugmynd (Kant 2, bls. 671).

En hvað felst í slíku „formi laganna“? Og ekki síst, hvernig ber mönnum að haga sér gagnvart lögunum, frá þeirri stundu þegar ásetningurinn er ekki staðfestur með neinu tilteknu inntaki? Hvað er því það form lífs er samsvarar þessu formi laganna? Verða hin siðferðilegu lög kannski ekki „óskilgreinanlegur eiginleiki“ (facoltà imperscrutabile)? Kant kallar þær aðstæður „aðgát“ (Achtung) sem bíða þess er býr við löggjöf án merkingar, löggjafar sem bannar hvorki né fyrirskipar neitt tiltekið markmið („ásetningur sem maður getur haft áður en tiltekið markmið er honum tilskipað, getur augljóslega ekki orðið annað en sjálf lögin í gegnum þá virðingu sem þau kalla á (án þess að ákvarða hvaða tilgang menn gætu haft eða öðlast við löghlíðnina). Þannig eru lögin það eina sem eftir stendur í tengslum við hinn formlega þátt frjálsrar dómgreindar (libero arbitrio) eftir að tilefni frjálsrar dómgreindar hafa verið afnumin.“: Kant 3, bls. 282).

Það er nánast ótrúlegt að sjá, hvernig Kant hefur lýst með þessum hætti, með nærri tveggja alda fyrirvara og með hástemmdri „siðferðiskennd“, aðstæðum sem áttu eftir að verða daglegt brauð í kjölfar fyrri heimsstyrjaldarinnar í fjöldasamfélögum alræðisríkja okkar samtíma. Því líf undir lagasetningu án merkingar líkist lífinu í aðstæðum undantekningarinnar, þar sem sakleysislegasta atvik eða minnsta gáleysi gátu haft hinar öfgafyllstu afleiðingar. Það er einmitt í lífi af þessari tegund sem lögin verða þeim mun yfirgengilegri sem inntaki þeirra glatast, þar sem jafnvel kæruleysislegt bank á útihurð getur framkallað óviðráðanleg réttarhöld á borð við þau sem Kafka lýsir.

Rétt eins og hin hreini formlegi eðlisþáttur siðferðislaganna leggur fyrir Kant grunninn  að algildri forsendu beitingar þeirra í öllum kringumstæðum, þá gerist það í þorpi Kafka, að hið tóma vald laganna öðlast þann ofurmátt að verða óaðgreinanlegt frá lífinu. Tilveran og sjálfur líkami Josefs K. verða á endanum eitt með Réttarhöldunum, þau eru Réttarhöldin. Það er þetta sem Benjamin hefur af glöggskyggni séð í gegnum, þegar hann andmælir skilningi Scholems á gildingu (vigenza) án merkingar, og segir að lög, er hafi glatað innihaldi sínu, glati tilveru sinni og samlagist lífinu: „að nemendurnir hafi glatað rithöndinni eða hæfileikanum til að lesa hana er endanlega það sama, því skrift án lykils er ekki skrift, heldur líf, lífið eins og því er lifað í þorpinu undir fjallshlíðinni þar sem kastalinn rís“. (Benjamin 3, bls. 155). Scholem gerir sér ekki grein fyrir að vinur hans hefur skilið fullkomlega mismuninn, og segist alls ekki geta deilt þeirri skoðun „að það sé sami hluturinn að nemendurnir hafi glatað skriftinni og að þeir geti ekki lesið úr henni, þvert á móti þá finnst mér þetta vera versta villan sem menn geta lent í. Það er einmitt munurinn á þessum tveim aðstæðum sem ég átti við, þegar ég tala um „tóm Opinberunarinnar““ (sama rit, bls 163).

Ef við erum samkvæm fyrri greiningu okkar sjáum við grundvallar-eðli undantekningarástandsins birtist í ómöguleika þess að greina lögin frá lífinu – það er að segja því lífi sem lifað er í þorpinu undir fjallshlíðinni þar sem kastalinn rís – því sjáum við hér tvær ólíkar túlkanir á þessu ástandi mætast: annars vegar höfum við afstöðu Scholem, sem sér í þessu ástandi gildingu (vigenza) án merkingar, viðhald hins hreina forms laga handan alls innihalds, hins vegar höfum við afstöðu Benjamins, þar sem undantekningarástandið umbreytt í reglu felur í sér meðtöku laganna, þar sem þau verða óaðskiljanleg frá lífinu sem þau eiga að skipuleggja.

Andspænis ófullkominni tómhyggju, er lætur tómið viðgangast ófyrirsjáanlega í formi gildingar án merkingar, höfum við hina messíönsku tómhyggju Benjamins, sem núllstillir einnig núllið og lætur form laganna ekki gilda umfram inntak þeirra.

Hver svo sem hin nákvæma merking þessara tveggja túlkana kann að vera, og hvert svo sem nálgun á túlkun þeirra á texta Kafka kann að leiða, þá fer ekki á milli mála að sérhver rannsókn á sambandi lífs og lagaréttar á okkar tímum kemst ekki hjá því að takast á við þær.

₹ Reynslan af gildingu (vigenza) án merkingar liggur til grundvallar hreyfingar í nútímahugsun sem skiptir máli. Orðspor afbyggingarinnar (decostruzione) á okkar tímum felast einmitt í að hafa skilið allan texta hefðarinnar sem gildingu án merkingar, sem gildir fyrst og fremst í ósegjanleika sínum. Jafnframt hafa orðsporin sýnt fram á að slík gilding sé, rétt eins og dyr laganna í dæmisögu Kafka, fullkomlega óyfirstíganleg. En það er einmitt um merkingu þessarar gildingar (og merkingu undantekningarástandsins sem hún boðar) sem skoðanirnar skiptast.

Okkar samtími stendur nú frammi fyrir tungumálinu eins og bóndinn í dæmisögu Kafka stendur frammi fyrir dyrum Laganna. Áhættan fyrir hugsunina felst í að hún finni sig dæmda til óendanlegrar og óleysanlegrar þrætubókar við dyravörðinn, sem án þess að varna inngangs í raun og veru, stendur engu að síður vörð um tómið sem hliðið opnar. Samanber evangelíska áminningu, sem Origene vitnar í, varðandi túlkun guðspjallanna: „Vei yður, þér lögvitringar, því að þér hafið tekið burt lykil þekkingarinnar; sjálfir hafið þér ekki gengið inn, og þeim hafið þið tálmað, sem ætluðu inn að ganga“ (sem mætti umrita með þessum orðum: „Vei sé ykkur, sem hafið ekki viljað ganga inn um dyr Laganna, og hafið ekki einu sinni leyft að þeim yrði læst“).

4.4. Sú einstaka „stefnubreyting“ sem Benjamin setur fram í ritgerðinni um Kafka varðandi gildingu án merkingar, og einnig í áttundu grein Über den Begriff der Gesichte, (Heimspekilegar hugleiðingar um söguna), þar sem íað er að tilveru „virks“ undantekningarástands, verða að lesast frá þessu sjónarhorni. Þar líkir hann vissu Torah, sem hefur glatað lykli sínum og hefur því tilhneigingu til að verða óaðgreinanlegt frá lífinu, við líf er umbreytist alfarið í Skrift: „ég sé í mörgum myndlíkingum Kafka merkingu tilraunarinnar til að breyta lífinu í Skrift“ (Benjamin 3, bls. 155). Með sambærilegum hætti teflir hann undantekningarástandinu sem við lifum í, og er orðið að reglu, á móti „virkilegu“ (wirklich) undantekningarástandi, sem okkur ber að raungera: „hefð hinna kúguðu kennir okkur að „undantekningarástandið“ sem við hrærumst í, sé reglan. Við þurfum að tileinka okkur sögulegt hugtak er samsvarar þessari staðreynd. Þar stöndum við frammi fyrir því verkefni að framkalla hið virkilega undantekningarástand“ (Benjamin 4, bls. 697).

Við höfum séð með hvaða hætti lög sem eru orðin hrein formsatriði sem einskær gilding án merkingar, hafa tilhneigingu til að samsamast lífinu. Hins vegar gerist það í eiginlegu undantekningarástandi að þegar lögin viðhalda sér áfram sem hreint form, þá láta þau hið nakta líf blákalt þrífast fyrir eigin sjónum (líf Jósefs K. eða það líf sem lifað var í þorpinu undir kastalanum). Í hinu virkilega undantekningarástandi gerist það hins vegar, að lögin sem mæta lífinu með óljósum hætti (s‘indetermina in vita), mæta lífi sem samhverfu er með öfugu móti umbreytir sjálfu sér alfarið í lög. Andspænis ógreinanlegri skrift, sem er orðin ólæsileg, kynnir lífið sig nú sem líf er samsvarar fullkomlegum óskiljanleika þess lífs sem hefur umbreyst í skrift. Það verður einungis á þessum punkti sem hugtökin tvö er héldust sameinuð og aðgreind í gegnum bannsetningarsambandið (relazione di bando) (hið nakta líf og form laganna) afskrifa hvort annað og ganga inn í nýja vídd.

4.5. Það er dæmigert að allir túlkendur dæmisögu Kafka leggja endanlega þá greiningu og þann skilning í söguna, að hún lýsi ósigri, óbætanlegum ósigri bóndans andspænis því ómögulega verkefni sem lögin höfðu lagt honum á herðar. Það er engu að síður heimilt að spyrja hvort þessi texti Kafka bjóði ekki upp á annars konar lestur. Túlkendurnir virðast reyndar hafa gleymt því sem lokaorðin segja: „Hér gat enginn annar farið inn, því þessi inngangur var þér einum ætlaður. Nú fer ég og loka honum (ich gehe jetzt und schliesse ihn)“. Ef rétt er að einmitt opnunin hafi, eins og við höfum séð, falið í sér hið ósigrandi vald laganna, hinn sérstaka „mátt“ þeirra, verður þá gerlegt að hugsa sér að öll breytni (contegno) bóndans  hafi ekki verið annað en flókin og þolinmóð herstjórnarlist er beindist að því að mæta lokuninni og afskrifa þar með gildinguna? Jafnvel þótt það hafi endanlega kostað hann lífið (sagan segir ekki að hann hafi raunverulega dáið, heldur að hann hafi verið „nálægt dauðanum“ (schon an seinem Ende)), þá tókst bóndanum að ná vilja sínum framgengt, honum tókst að láta ljúka endanlega dyrum laganna (sem voru reyndar opnar „eingöngu fyrir hann“). Í túlkun sinni á dæmisögunni hefur Kurt Weinberg lagt til að sjá í hinum óttaslegna en þrautseiga bónda mynd hins „tálmaða kristna Messíasar“ (Weinberg, bls 130-131). Við getum þá einungis meðtekið þessa tillögu, ef við gleymum því ekki að Messías er ímyndin sem hin miklu trúarbrögð eingyðistrúarinnar hafa notað til að komast til botns í lögunum, og að tilkoma hans merkir, jafnt í gyðingdómi, kristindómi sem scita-íslam, fullnustu og heildarframkvæmd laganna. Innan eingyðistrúarbragðanna er messíanisminn ekki bara ein af mörgum greinum hinnar trúarlegu reynslu, heldur felur hann í sér endamörk hennar, punktinn þar sem hin trúarlega reynsla yfirstígur og setur spurningu við sjálfa sig sem lög (þess vegna höfum við hinar messíönsku mótsagnir laganna, sem við getum fundið bæði í Rómverjabréfi Páls postula og í helgidaga-reglunni (dottrina sabbatiana) í Torah, og reglubroti á henni.

Ef þetta væri satt, hvað ætti sá Messías að taka til bragðs, er stæði eins og bóndinn frammi fyrir lögum er fælu í sér gildingu án merkingar? Hann getur vissulega ekki framfylgt lögum sem eru þegar úr gildi tekin um ótiltekinn tíma, né heldur einfaldlega sett önnur í staðinn (uppfylling lagaskyldunnar felst aldrei í nýjum lögum).

Gyðingleg handritslýsing frá XV öld sem hefur að geyma Haggadoth (dimbilvikufrásögn) um „þann sem kemur“, sýnir okkur komu Messíasar til Jerúsalem. Hér ríður Messías hesti (hefðin segir okkur að reiðskjótinn hafi verið asni) og kynnir sig fyrir opnum dyrum borgarinnar helgu, en innan hennar glittir í mann í glugga, sem gæti verið dyravörður. Fyrir framan Messías er drengur er stendur teinréttur frammi fyrir opnum dyrunum . Hver svo sem þessi mannsmynd er (gæti eins verið Elía spámaður) þá væri hægt að líta á hann sem hliðstæðu við bóndann í dæmisögu Kafka. Verkefni hans virðist vera að undirbúa og greiða fyrir inngöngu Messíasar -en það er þversagnakennt verkefni þar sem dyrnar standa galopnar.

Ef sú herstjórnarlist er talin til ögrunar sem þvingar vald laganna til að yfirfæra sig í gjörning (tradursi in atto), þá verður gjörningur hans þversagnarkennt form ögrunar, sú eina er hæfir lögum sem gilda án þess að merkja, um dyr sem ekki má ganga um því þær eru of opnar. Hið messíanska hlutverk bóndans (og unga piltsins í myndinni sem stendur fyrir framan dyrnar) gæti þá einmitt falsit í því að virkja hið tilbúna undantekningarástand, að þvinga dyravörðinn til þess að loka dyrum laganna (borgarhliði Jerúsalemborgar). Því Messías getur þá aðeins gengið inn í borgina eftir að hliði hennar hefur verið lokað, það er að segja eftir að gildingu laganna án merkingar hefur verið aflétt.

Þetta er merking hinna dularfullu orða Kafka í Quaderni in ottavo þar sem segir að „Messís kemur fyrst þá, þegar engin þörf verður fyrir hann, hann kemur ekki fyrr en daginn eftir komu sína, hann kemur ekki á hinsta degi, heldur hinum lang-síðasta“. Endanleg merking dæmisögunnar felst þannig ekki samkvæmt orðum Derrida í „atburði er nær að verða ekki“ (eða sem gerist með því að verða ekki: „un avenèment qui arrive a nes pas arriver“: Derrida I. Bls. 359), heldur þveröfugt, sagan segir okkur hvernig nokkuð hafi í raun og veru gerst, þar sem það virðist ekki hafa gerst, og að messíanskar þversagnir (aporie) bóndans tjái nákvæmilega erfiðleika okkar tíma í viðleitninni að komast til botns í hinni fullvalda bannsetningu (bando sovrano).

₹ Ein af þversögnum undantekningarástandsins felur í sér að ekki sé hægt að greina á milli framfylgni og brots á lögunum, þannig að það sem samræmist reglunni og það sem brjóti hana falli saman án eftirstöðva (ekki sé um meira lögbrot að ræða hjá þeim sem bregður sér í göngutúr í útgöngubanni en hjá hermanninum sem drepur hann). Þetta eru einmitt aðstæðurnar sem koma í ljós samkvæmt hinni gyðinglegu hefð (og allri raunverulegri messíanskri hefð) með tilkomu Messíasar. Fyrsta afleiðing þessa atburðar er einmitt framkvæmd og virkjun laganna (samkvæmt kabbalistunum, samkvæmt Torah Beriah, laganna sem gilda frá sköpun mannsins til daga Messíasar). Þessi framkvæmd merkir hins vegar ekki að gömlu lögin víki fyrir nýjum, samhljóma hinum gömlu, en með breyttri forskrift og breyttum bönnum, (Atziuth Torah, hin upprunalegu lög sem Messías á að endurreisa samkvæmt kabbalistunum, fela ekki í sér forskriftir og bönn, heldur eru þau einungis óreglulegur hrærigrautur af bókstöfum). Atburðurinn felur öllu heldur í sér að fullnusta Torah falli saman við brot þess. Þetta er það sem róttækustu hreyfingar messíasarsinnanna halda blákalt fram, eins og til dæmis hreyfing Sabbatai Zevi, (en kjörorð hennar voru: „fullusta Torah felst í að yfirstíga hana“)

Frá pólitísku-lögfræðilegu sjónarhorni er massíanisminn þannig fólginn í kenningunni um undantekninguna: munurinn er einungis sá, að það er ekki ríkjandi yfirvald sem tilskipar, heldur Messías sem kollvarpar því.

₹ Eitt af hinum sérkennilegu  einkennum dæmisagna Kafka er að þær hafa að geyma einmitt í endalokum sínum möguleikann á umbyltingu er kollvarpar fullkomlega merkingu þeirra. Þannig býður þrjóska bóndans upp á vissa hliðstæðu við kænsku Oddyseifs í viðleitninni að standast heillasöng sírenanna. Rétt eins og sagt er í lofsöngnum um lögin, að þau séu óyfirstíganleg, einmitt vegna þess að þau fyrirskipi ekkert, þá á það sama við um sírenurnar, að hættulegasta vopn þeirra er ekki söngurinn, heldur þögnin („það gerðist aldrei, en var alls ekki óhugsandi, að einhverjum tækist að bjarga sér undan söng þeirra, en undan þögn þeirra alls enginn“) og nánast ofurmannleg snilli Odysseifs fólst einmitt i að hafa áttað sig á að sírenurnar þögðu, og með því að hafa mætt þeim með leiksýningu sinni „einungis undir yfirskyni skjaldarins“, rétt eins og bóndinn gerir gagnvart dyraverði Laganna. Hlið Laganna má lesa, rétt eins og „hlið Indlands“ í Nuovo avvocato, sem tákn þeirra goðsögulegu afla sem maðurinn þarf umfram allt að komast til botns í, rétt eins og hesturinn Bucefalo.

4.6. J.-L. Nancy er sá heimspekingur sem hefur hugsað af mestri dýpt þá reynslu af Lögunum sem fólgin er í gildingu án merkingar. Í afar efnismiklum texta dregur hann fram verufræðilega formgerð þessarar reynslu sem viðskil (abbandono) og reynir þar af leiðandi að hugsa ekki bara út frá okkar tíma, heldur allrar sögu Vesturlanda sem tímaskeið „viðskilanna“. Formgerðin sem hann lýsir býr engu að síður innan forms laganna, og skilin eru hugsuð sem viðskilnaður við hina fullvalda bannsetningu án þess að nokkur útgönguleið opnist handan hennar:

Viðskilnaður við eitthvað (abbandonare) felur í sér að fela eða treysta tilteknu fullveldi fyrir því og skila, fela eða færa það í sína bannsetningu (bando), það er að segja í umsjón og forsjá og undir dómsvald þessa fullveldis. Viðskilnaðurinn felur ávallt í sér að fela í vald tiltekinna laga. Sú svipting þess er sætir viðskilnaði mælist við takmarkalausan strangleika laganna sem það er undirsett. Viðskilnaðurinn myndar ekki tilskipun um að vera falinn í vald tiltekinnar refsilöggjafar. Hann felur í sér algilda tilskipun um að hlíða lögunum, að gangast undir lögin sem slík í  allri sinni mynd. Með sama hætti felur það að vera bannsettur (bandito) ekki í sér að vera undirsettur tiltekinni lagasetningu, heldur að vera falinn í vald laganna í heild sinni. Með því að vera falinn á vald hinna algildu laga er hinn bannsetti líka yfirgefinn handan alls lögsagnarumdæmis…  Viðskilnaðurinn virðir löginn, hann á ekki annan valkost (Nancy, bls. 149-150).

Verkefnið sem samtími okkar setur hugsuninni getur ekki falist einfaldlega í því að viðurkenna ítrasta og ófrávíkjanlegasta form laganna sem gildingu (vigenza) án merkingar. Sérhver hugsun sem takmarkar sig við þetta gerir ekki annað en að endurtaka þá verufræðilegu formgerð sem við höfum skilgreint sem þversögn fullveldisins (eða hinnar fullvalda bannsetningar (bando sovrano). Fullveldið felur einmitt í sér þessi „lög handan laganna sem við höfum verið falin á vald“, það er að segja hið sjálfskipaða vald nómos, og einungis ef okkur tekst að hugsa veru hins yfirgefna (abbandonato) handan allra hugmynda um lög (jafnvel í tómu formi gildingar án merkingar) getum við talað um að hafa losnað undan þversögn fullveldisins og nálgast þá pólitík sem er laus undan sérhverri bannsetningu (bando). Hreint lagaform er eingöngu hið tóma form sambandsins, en hið tóma form sambandsins er ekki lengur lög, heldur svæði óaðgreinanleika á milli laga og lífs, það er að segja undantekningarástand.

Vandamálið sem við stöndum hér frammi fyrir er það sama og Heidegger fjallar um í Beiträge zur Philosophie undir yfirskriftinni Seinverlossenheit, þar sem veran yfirgefur verundina [og gerandinn og viðfangið verða eitt og hið sama -innskot olg.] en þar er um að ræða ekki minna vandamál en einingu -mismun verundar og veru á tímaskeiði fullnustu frumspekinnar (metafisica). Það sem málið snýst um í þessum viðskilnaði er reyndar ekki að eitthvað (veran, l‘essere) láti vaða og segi sig frá einhverju öðru (verundinni, l‘ente). Þvert á móti: Veran er hér ekkert annað en hin yfirgefna vera sem er falin sjálfri sér sem verund [rimesso a se stesso dell‘ente], veran er ekki annað en bannsetning (bando) verundarinnar:

Hvað er hér yfirgefið af hverju? Það er verund verunnar sem bæði tilheyrir henni og tilheyrir ekki. Verundin (l‘ente) birtist því svona, birtist sem viðfang og sem eitthvað meðfærilegt, rétt eins og veran (l‘essere) væri ekki… Þannig sjáum við þetta: að veran yfirgefi verundina merkir: að veran feli sig (si dissimula) í birtingu sinni sem verund. Og sjálf veran skilgreinist fyrst og fremst sem þessi undanskots-feluleikur ((sottraentesi dissimularsi)… Viðskilnaður (abbandono) verunnar: að veran segi skilið við verundina, að hún sé falin sjálfri sér og verði viðfang vélvæðingarinnar (macchinazione). Þetta felur ekki bara í sér „fall“, heldur er það fyrsta saga verunnar sjálfrar (Heidegger I, bls. 115).

Ef veran er í þessum skilningi ekki annað en að vera í bannsetningu (essere a bandono) verundarinnar, þá sjáum við hér verufræðilega formgerð fullveldisins afhjúpaða í þversögn sinni. Það er samband viðskilnaðarins (abbandono) sem nú þarf að hugsa með nýjum hætti. Þegar við skiljum þetta samband sem gildingu (vigenza) án merkingar, það er að segja að vera í senn yfirgefinn og falinn á vald laga er ekki fyrirskipi neitt annað en sig sjálf, þá felur það í sér að dvelja innan tómhyggjunnar, það er að segja að láta ekki reyna til hins ýtrasta á reynslu bannsetningarinnar (abbandono). Einungis þar sem viðskilnaðurinn losar sig undan sérhverri hugmynd um lög og örlög (þar með talið hið kantíska form laga og gildingar án merkingar) verður viðskilnaðurinn rannsakaður sem slíkur. Þetta kallar á að vera opinn gagnvart þeirri hugmynd að samband viðskilnaðarins sé ekki samband, að samsemd veru og verundar hafi ekki form sambands. Þetta felur ekki í sér að þær skiljist nú að, og haldi hvor sína leið fyrir eigin reikning: öllu heldur að þær samanstanda (consistono) nú án sambands. En þetta felur ekkert minna í sér en það að reyna að skilja hina félagslegu-pólitísku staðreynd (factum) ekki lengur í formi sambands.

₹ Kenning Kojève um endalok sögunnar, og þar af leiðandi myndun einsleits alheimsríkis, á sér margar hliðstæður við þær sögulegu aðstæður sem við höfum lýst hér sem gildingu án merkingar (þetta skýrir tilraunir í samtímanum til að endurtúlka Kojève undir merki frjálslynds kapítalisma). Hvað getur það Ríki verið, sem lifir af söguna, fullvalda ríkisvald er viðheldur sjálfu sér handan sinna sögulegu markmiða (telos), ef ekki lög sem gilda án þess að merkja? Það er jafn ómögulegt að hugsa framvindu og fullnustu sögunnar, þar sem eftir stendur hið tóma form fullveldisins, eins og að hugsa útþurrkun Ríkisins án þess að hafa uppfyllt hinar sögulegu ímyndir þess, því hið tóma form Ríkisins hefur tilhneigingu til að geta af sér sögulegar afleiðingar, og þessar afurðir reyna með sínum hætti að finna sér ríkisbundna formgerð sem er orðin ómöguleg (það er þetta sem er að gerast í fyrrum Sovétríkjunum og fyrrverandi Júgóslavíu).

Einungis sú hugsun veldur þessu verkefni, sem megnar að hugsa í senn endalok Ríkisins og endalok sögunnar og að tefla þeim hvort gegn öðru.

Við getum fundið þessa hreyfingu bæra á sér -með enn ófullburða hætti – í síðustu verkum Heideggers, það er að segja með hugmyndinni um atburð eða endanlega tileinkun (Ereignis), þar sem hið tileinkaða er veran sjálf, það er að segja reglan sem hafði fram til þessa verið tileinkuð verundum ólíkra söguskeiða og sögupersóna.  Þetta merkir að með Ereignis (eins og í hinu hegelska Algildi hjá Kojève) nær „saga verunnar endalokum sínum“ (Heidegger 2, bls. 44) og þar af leiðandi öðlast samband verunnar og verundarinnar sína „sakaruppgjöf“ („assoluzione“). Þess vegna getur Heidegger skrifað að hann sé með Ereignis að reyna að hugsa „veruna án tillits til verundarinnar“, en það jafngildir engu minna en því að freista þess að hugsa hinn verufræðilega mismun ekki lengur sem samband, hugsa veru og verund handan allra mögulegra sambanda.

Við ættum að staðsetja rökræðuna á milli Bataille og Kojève út frá þessu sjónarhorni, þar sem málið snýst einmitt um ímynd fullveldisins á tímaskeiði fullnustu mannlegrar sögu. Hér eru ólíkar sviðsmyndir mögulegar. Í athugasemd sem Kojève bætir við aðra útgáfuna á Introduction, tekur hann afstöðu gegn tilgátu sem hann setti fram í fyrstu útgáfunni, en samkvæmt henni falla endalok sögunnar saman við það að maðurinn verði aftur að dýri, -þar sem hann hverfi sem maður í eiginlegri merkingu orðsins (það er að segja sem þolandi neikvæðra gjörninga (soggetto dell‘azione negatrice)).  Á ferðalagi sínu um Japan árið 1959 hafði Kojève uppgötvað möguleika menningar er væri handan hins sögulega, þar sem menn halda áfram að viðhalda formunum aðskildum frá inntaki sínu, þótt þeir segi skilið við neikvæða gjörninga í þröngum skilningi, ekki í þeim tilgangi að umbreyta forminu og inntakinu, heldur til að iðka hreinræktaða snobb-hegðun (með te-serímoníum og líkum siðum). Hins vegar gerist það í umsögn hans um skáldsögur Queneau, að hann sér í persónum Sunnudagur lífsins, sérstaklega í voyou desœuvre (Kojève, bls. 391) hina fullgerðu ímynd hins sátta vitrings við endalok sögunnar. Gegn Þessum hegelska vitringi, sem er sáttur og fullur sjálfsvitundar og þessu  voyou desœuvre  (skilgreindu af fyrirlitningu sem homo quenellensis), teflir Bataille hins vegar aftur ímynd fullveldis er uppfyllir sig fullkomlega í augnablikinu („la seule innocence possible: cellede l‘instant“) og samsvarar „formunum sem maðurinn gefur sjálfum sér… hlátrinum, erótíkinni, baráttunni, lúxusnum“.

Þetta þema aðgerðarleysisins (desœuvrement),  sem ímynd fyllingar mannsins við endalok sögunnar, sem birtist í fyrsta skipti í bókmenntarýni Kojève á Queneau, er tekið aftur til umfjöllunar hjá Blanchot og J.-L. Nancy, sem gerði það að meginefni bókarinnar Comunità inoperosa (Iðjulausa samfélagið). Allt fer hér eftir því hvaða skilning menn leggja í „inoperosità“ (iðjuleysi). Það getur hvorki falist í einfaldri óvirkni né (eins og hjá Bataille) í fullvalda formi án beitingar neikvæðisins. Eina samkvæma aðferðin til að skilgreina óvirknina væri sú, að skilgreina hana sem almennan tilvistarmáta getunnar (potenza) sem tæmir sig ekki (eins og einstaklingsbundin eða félagsleg virkni, skilin sem summa einstaklingsbundinna athafna) í tilteknu trasitus de potentia ad actum.

 

 

 

 

Pálmasunnudagur og Hlið laganna

PÁLMASUNNUDAGUR

HLIÐ LAGANNA

AGAMBEN, KAFKA, BENJAMIN og fleiri…

 

Um innreið Messísar í hús laganna, messíanisma kristni, gyðingdóms og íslams, sveitamann Franz Kafka andspænis lögunum, um Form laganna samkvæmt Agamben og Walter Benjamin, hlið Laganna í Gaza og „International rule based order“ sem „gildingu laga án merkingar“ samkvæmt Agamben.

 

Undanfarnar vikur hef ég verið að lesa og þýða á íslensku bók ítalska heimspekingsins Giorgio Agambens, Homo sacer, frá árinu 1995. Þessi vinna hefur kallast á við ógnvænlega atburði í samtímanum, sem hafa ekki bara truflað athygli mína í þessari vinnu, heldur líka skerpt á henni og opnað augu mín fyrir nýjum hliðum á veruleikanum, sem ekki blasa við í amstri og fréttaaustri daganna.

Í dag fannst mér tilefni til að opna svolitla gátt inn í þessa hugmyndavinnu, vegna þess að það er Pálmasunnudagur, þar sem kristnir menn minnast innreiðar Jesú í Jerúsalem á þessum degi.

Sá atburður er stranglega tengdur Messíasarátrúnaði, sem er sameiginlegur eingyðistrúarbrögðunum þrem, gyðingdómi, kristni og islam, en túlkaður með ólíku móti. Segja má að með innreiðinni í Jerúsalem hafi Jesú gengið inn í Messásarhlutverk sitt sem frelsari mannkynsins: hann vissi að með innreið sinni gekk hann á móti örlögum hins krossfesta: „Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig!“ Messíasarhlutverkið kallar á fórn hins yfirgefna, sem í þessari umfjöllun er „hlutskipti útlagans“.

Í umfjöllun sinni um Messíasarhlutverkið beinir Agamben ekki síst sjónum sínum að hinum gyðinglega skilningi þessa hlutverks, og hvernig það hefur óbeint verið túlkað af merkum rithöfundum af gyðingaættum eins og Franz Kafka og Walter Benjamin. Kafka verður Agamben tilefni til djúphugsaðrar greiningar á „formi laganna“, ekki bara með skáldsögunni Réttarhöldin, heldur einkum með stuttri dæmisögu hans, vor dem Gesetz, sem segir frá tilraun fátæks sveitamanns til að komast inn um hlið laganna. Snilldarleg og djúphugsuð greining Agambens á þessari dæmisögu verður honum tilefni til að greina „form laganna“ með aðstoð Walter Benjamins, sem fjallaði ýtarlega um Kafka, en minnist einnig á efnið með athyglisverðum hætti í Heimspekilegum hugleiðingum um söguna, sem ég hef birt hér á vefsíðunni í íslenskri þýðingu (Sjá: https://wp.me/p7Ursx-FN).

Í stuttu máli kemst Agamben að þeirri niðurstöðu með hjálp Kafka og Benjamins, að lögin sem við búum við á okkar tímum tilheyri „undantekningarástandinu“ er feli í sér „lög sem gilda en merkja ekki“. Undantekningarástandið er samkvæmt Agamben það ástand þegar fullvalda ríki afnemur stjórnarskrárbundin lög í nafni stjórnarskrárbundins fullveldis sjálfs sín. Þar með eru þegnarnir undirsettir banni er jafnast á við útlegðardóm í gömlum íslenskum rétti, og verður þá til hugtakið Homo sacer, sem er hlutskipti útlagans, og Agamben vill heimfæra upp á hlutskipti nútímamannsins í kjölfar sinnar djúpu greiningar sem ekki verður frekar farið út í hér.

Agamben sér í dæmisögu Kafka úthugsaða greiningu á „formi laganna“ og leiðir okkur í gegnum hugleiðingar fræðimanna um þetta efni, allt frá Carl Schmitt til Benjamins, Scholems, Derrida, Nancy, Kojève, Heideggers og fleiri hugsuða. Niðurstaða Agambens er sú, að sveitamaðurinn í dæmisögu Kafka sé líkt og útlaginn Grettir Ásmundsson og aðrir „bannsettir“ þegnar í nafni laganna, dæmi um virkni þeirra laga sem eru í gildi án merkingar. Þetta form laga án merkingar sé orðið viðtekið í samtímanum á hnattræna vísu (sem „rule based order“), og hafi leitt af sér manngerðina Homo sacer, sem er eins og útlaginn, réttdræpur en frjáls, því hann er í raun utan laganna, en innan þeirra þó, rétt eins og sveitamaðurinn í dæmisögu Kafka. Um leið er hann réttdræpur og heilagur eins og nafnið gefur til kynna, því latneska orðið „sacer“ felur þetta tvennt í sér.

Greining Agambens á þessum vanda kostaði hann yfyr 200 þéttskrifaðar og djúphugsaðar blaðsíður, þannig að þeim verða ekki gerð skil hér. Ég hef hins vegar endursagt djúphugsaða örsögu Franz Kafka í tilefni dagsins, og birti hér með henni langan og djúphugsaðan kafla Agambens um þessa sögu, hvernig hún skýrir fyrir okkur „form laganna“ sem „gildingu án merkingar“.

Agamben vitnar í texta sínum í lýsingu úr gyðinglegu Haggadoth-handriti frá 14. öld um dimbilvikuna, þar sem sýnd er óvenjuleg mynd af Messíasi er kemur ríðandi á hesti, en ekki asna, inn í ríki laganna innan Jerúsalemborgar. Því miður hef ég ekki getað fundið þessa handritslýsingu, en birti með þessari umfjöllun mósaíkmynd frá 12. öld úr hallarkapellu Normannakonunganna á Sikiley. Samkvæmt helgisögninni mætti Kristur ekki líkamlegri mótstöðu við innreiðina í Jerúsalem, heldur var hún af andlegum toga, þar sem hann gekk á vit útlagans sem „guð yfirgaf“. Til hliðar birti ég hins vegar annað hlið, sem heimsbyggðin hefur haft fyrir augunum á sjónvarpsskjám sínum undanfarna mánuði, sem er inngangurinn að Rafah-borg á Gaza-svæðinu. Á okkar tímum er þetta hlið réttlætisins dæmi um form laga án merkingar. Innan þess eru meira en 2 miljónir Gazabúa, sem býða hungurdauðans. Fyrir utan eru langar biðraðir flutningabíla hlöðnum matvælum og lyfjum. Allt fer þetta fram samkvæmt þeim lögum, sem allir frjálslyndir fræðimenn hafa kallað „international rule based order“. Innan hliðsins er þjóð sem samkvæmt lögunum er útlæg úr samfélagi þjóðanna. Utan hliðsins eru alþjóðlegar hjálparstofnanir sem fylgja þeim lögum að það sé glæpur að svelta fólk til dauða. Þessi mynd er gleggsta dæmið sem við höfum úr samtímanum um „Lög án merkingar“ og um „bannsetningu“ og „útlegð“ í hinni alþjóðlegu lagareglu samtímans.

 

 

Agamben um engla Durers og Klee

Giorgio Agamben:

Maðurinn án innihalds

TÍUNDI KAFLI

DAPRI ENGILLINN

Tilvitnanirnar í verkum mínum eru eins og göturæningjar sem ræna vegfarendur með vopnum og svipta þá sannfæringu sinni”.

Höfundur þessarar tilvitnunar, Walter Benjamin, var kannski fyrsti evrópski menntamaðurinn sem gerði sér grein fyrir þeirri stökkbreytingu er hafði átt sér stað í miðlun menningar milli kynslóða og hvaða afleiðingar þessi breyting hafði óhjákvæmilega á samband okkar við fortíðina.

Samkvæmt Benjamin verður hið sérstaka vald tilvitnanna ekki til vegna getu þeirra til að miðla fortíðinni og endurvekja hana til lífsins, heldur þvert á móti vegna þess að þær „skapa hreint borð, taka úr samhengi og eyðileggja“i.
Með því að taka tiltekið brot úr fortíðinni með valdi, og slíta það úr samhengi sínu, sviptir tilvitnunin það samstundis eðli sínu sem trúverðugur vitnisburður um sinn samtíma, um leið og hún öðlast vald til framandgervingar sem veitir henni ofbeldisfullan kraft.ii
Allt sitt líf var Benjamin að glíma við það verkefni að skrifa verk er væri eingöngu búið til úr tilvitnunum. Hann vissi að valdið sem tilvitnunin gerir tilkall til byggist einmitt á eyðileggingu þess sönnunargildis sem vissum textum eru eignaðir vegna tengsla þeirra við sögu menningarinnar. Sannleiksgildi slíks texta er dregið af því einstaka sem felst í birtingu tilvitnunarinnar þar sem hún hefur verið aftengd sínu lifandi samhengi í því sem Benjamin kallaði „une citation à l‘ordre du jour“ (ein tilvitnun samkvæmt tilskipun dagsins), þar sem hver dagur er dómsdagur. [Sjá W. Benjamin: Hugleiðingar um heimspeki sögunnar – https://wp.me/p7Ursx-FN]. Hið liðna getur einungis öðlast festu í þeirri augnabliksmynd sem birtist í eitt skipti fyrir öll á augnabliki aftengingar hennar, rétt eins og endurminning birtist okkur eins og í leiftursmynd á hættustund.iii

Þessi sérstaka aðferð við að setja sig í samband við hið liðna liggur einnig til grundvallar allri starfsemi manngerðar sem Benjamin fann alltaf til skyldleika við: manngerð safnarans. Það er líka aðferð safnarans að „vitna til“ hlutarins utan við samhengi hans, og þar með að eyðileggja reglu þeirra merkingatengsla sem gefa hlutnum gildi sitt og merkingu. Hvort sem um er að ræða listaverk eða algenga markaðsvöru sem safnarinn upphefur í stöðu ástríðusafngripsins, þá hefur hann í öllu falli tekið að sér ummyndun hlutanna með því að svipta þá í einu vetfangi notagildi sínu og því siðferðilega-félagslega gildi sem hefðin hafði lagt í þá.

Þessi frelsun hlutanna úr „þrældómi notagildisins“ er framkvæmd af safnaranum í nafni staðfestrar upprunasögu hlutanna, sem ein getur réttlætt innlimun þeirra í safnið. En þessi staðfesti uppruni er jafnframt að sínu leyti forsenda þeirrar aftengingar og firringar sem hefur gert þessa frelsun mögulega, þar sem gildi ástríðusafnarans hafa komið í stað notagildisins. Með öðrum orðum þá er upprunavottun hlutarins mælikvarði á firringargildi hans, og það er að sínu leyti sá eini grundvöllur sem safnið hvílir á.iv

Mynd safnarans er að því leyti skyld mynd byltingarmannsins að aftengingar- og firringarverknaður þeirra gagnvart fortíðinni hafa hliðstæð gildi, þar sem birting hins nýja verður aðeins möguleg með eyðileggingu hins gamla. Og það er væntanlega engin tilviljun að hinir stærstu safnarar hafa einmitt blómstrað á tímum rofsins á hefðinni og á tímum upphafningar hins nýja. Reyndin er sú að hvorki tilvitnanirnar né safnaástríðan eru hugsanleg í hinum hefðbundnu samfélögum, því þar er ógjörningur að slíta þau bönd hefðarinnar sem eru leiðararnir á milli fortíðarinnar og þess sem er.

Þótt Benjamin hafi skynjað hvernig farið var að fjara undan áhrifavaldi og hefðbundnu gildismati listaverksins, þá er merkilegt að hann skuli ekki hafa gert sér grein fyrir að sú „hnignun árunnar“ sem hann sá sem einkenni þessa ferlis, hafi ekki með neinum hætti leitt af sér „frelsun hlutarins úr menningarfjötrum sínum“, og að hann gæti frá og með þeirri stundu endurreist sig á grundvelli hins pólitíska starfs, í stað þess að leggja á sig endursköpun nýrrar „áru“. Með þessari endursköpun og upphafningu í æðsta veldi á upprunagildi sínu á nýju plani var hluturinn endurhlaðinn með nýjum gildum, fullkomlega hliðstæðum þeim firringargildum sem við höfðum þegar fundið í heimi safnanna.

Möguleikarnir á tæknilegri endurgerð listaverkanna, sem Benjamin sá sem fremsta tæringarvaldinn í hinum hefðbundna valdastóli listaverksins, voru langt frá því að frelsa listmuninn undan upprunagildi sínu. Þvert á móti: þessir möguleikar marka þau tímamót þegar upprunavottunin verður sjálfur gjaldmiðill hins óhöndlanlega í gegnum margföldun frumritsins.

Listaverkið glatar þannig valdastöðu sinni og þeim tryggingum, sem fylgt höfðu stöðu þess innan þeirrar hefðar sem listin hafði sinnt með uppbyggingu staðanna og hlutanna þar sem fram fór óslitin tenging á milli fortíðarinnar og samtímans. En í stað þess að segja skilið við upprunagildi sitt til þess að verða endurgeranleg (og framkvæma þannig áheit Hölderlins um að skáldskapurinn snéri aftur til þess að verða eitthvað sem hægt væri að reikna út og kenna) þá skapaði listin þess í stað það nýja rými sem varð vettvangur hinna óræðustu leyndardóma: fagnaðarerindi hinnar fagurfræðilegu fegurðar.

Þetta fyrirbæri verður sérstaklega áberandi hjá Baudilaire, en hann var einmitt skáldið sem Benjamin tengdi helst við hnignun árunnar, skáldið þar sem hún birtist með skýrustum hætti.

Baudilaire er skáldið sem þurfti að takast á við valdastöðu hefðarinnar í hinni nýju siðmenningu iðnaðarsamfélagsins. Hann býr þannig við þær aðstæður að hann þarf að finna upp nýja valdastöðu. Hann leysti þetta verkefni með því að smíða nýtt gildi úr ómiðlanleik (intransmissibilità) menningarinnar og gera áhrif áfallsins (sjokkáreitisins) að þungamiðju sinnar listrænu framleiðslu.
Áfallið (chock) er sú orka árekstursins sem hlutirnir taka til sín þegar þeir glata miðlunargetu sinni og skiljanleika sínum innan tiltekinnar menningarlegrar reglu.

Baudelaire skildi að ef listin ætti að lifa af á rústum hefðarinnar, þá þyrfti listamaðurinn að leitast við að endurgera í verki sínu þá sömu eyðileggingu á möguleikum miðlunar sem finna mátti í reynslunni af sjokkáreitinu.
Með þeim hætti myndi honum takast að gera listaverkið sjálft að burðarvagni ómiðlanleikans. Með kenningarsmíðum um hið fagra sem hina óhöndlanlegu kraftbirtingu (un eclair… puis la nuit!), smíðaði Baudilaire úr hinni fagurfræðilegu fegurð gjaldmiðil ómöguleikans á miðluninni. Þannig erum við í stakk búin til að skilgreina hvað felist í aftengingargildinu sem við höfum séð liggja bæði til grundvallar tilvitnanna og starfsemi ástríðusafnarans, en þetta firringargildi hefur orðið meginviðfangsefni nútíma listamanna: í því felst ekki annað en eyðilegging á miðlunargetu menningarinnar.

Endurgerð upplausnarinnar á miðlunarmöguleikunum í gegnum sjokkáreitið verður þannig síðasta mögulega uppspretta merkingar og gildis fyrir hlutina sjálfa, og listin síðasta hálmstráið sem tengir manninn við fortíð sína.

Svarið við þeirri spurningu hvernig fortíðin lifi af á því óræða augnabliki þegar hin fagurfræðilega kraftbirting er á fullu, verður samkvæmt síðustu greiningu okkar lesið úr þeirri aftengingu sem listaverkið framkvæmir, og þessi aftenging er í sjálfu sér ekki annað en mælikvarðinn á eyðileggingu miðlunargetunnar, það er að segja hefðarinnar.

***

Í hefðbundnu kerfi er listin ekki til nema í sjálfri miðluninni, það er að segja í hinum lifandi verknaði eigin hefðar. Ekki er um neitt vandamál að ræða varðandi samfellu á milli fortíðar og nútíðar, á milli hins gamla og hins nýja, vegna þess að sérhver hlutur miðlar stöðugt og án afláts átrúnaðarkerfum og skilningi sem hafa fundið tjáningu sína í þessum hlut. Í raun réttri er ekki hægt að tala um menningu í slíku samfélagi sem eitthvað aðskilið frá miðluninni, því ekki er til að dreifa hugmyndabönkum eða regluverkum er myndi sjálfstæðar einingar aðskildar frá hefðarmiðluninni, en tilvera hennar er gildi í sjálfu sér. Í kerfi sem er goðsögulegt og hefðbundið er um algjöra einingu að ræða á milli miðlunar hefðarinnar og hlutarins sem miðlað er, þannig að ekki er um önnur gildi að ræða,
hvorki trúarleg, siðferðileg né fagurfræðileg, er standi utan við sjálfan miðlunarverknaðinn.

Misræmis sem birtist í misvægi milli miðlunarinnar og þeirra hluta sem þarf að miðla, eða í gildismati hlutarins án tillits til miðlunar hans, gætir þá fyrst þegar hefðin glatar lífsstyrk sínum. Slíkt misræmi er grunnurinn að fyrirbæri sem einkennir óhefðbundin samfélög og felst í uppsöfnun menningar.

Andstætt því sem ætla mætti við fyrstu sýn, þá merkir rof hefðarinnar engan veginn glötun fortíðarinnar eða gengislækkun hennar. Þvert á móti er líklegra við slíkar aðstæður að fortíðin geri þá fyrst vart við sig sem slík og af áður óþekktum þunga.
Glötun hefðarinnar felur hins vegar í sér að fortíðin hefur glatað miðlunargetu sinni, og á meðan ekki hefur fundist ný aðferð til að nálgast hana og tengjast henni getur hún héðan í frá einungis orðið viðfangsefni uppsöfnunar.

Við þessar aðstæður varðveitir maðurinn menningararf sinn í heild sinni, og verðmæti hans eykst með ógnvekjandi hraða. Maðurinn glatar hins vegar getunni til að lesa úr þessum arfi mælikvarða á gerðir sínar og heilsu sína og þar með glatar hann einnig þeim hlutlæga stað þar sem honum er gert kleift að leggja grunn að nútímanum sem sambandi fortíðar og framtíðar með því að spyrja sig spurninga um eigin uppruna og eigin örlög.

Í raun er það miðlunargetan sem gerir manninum kleift, með því að leggja merkingu og milliliðalaus gildi í menninguna, að horfast frjáls í augu við framtíðina án þess að vera íþyngt af eigin fortíð.
Þegar tiltekin menning glatar hins vegar eigin fararskjótum finnur maðurinn sig sviptan viðmiðunarmerkjum þar sem hann er klemmdur á milli fortíðar sem hleðst á herðar honum með síauknum þunga og hamlar honum með sínu margbrotna inntaki, sem hann er ekki lengur læs á, og framtíðar sem hann hefur ekki enn höndlað og veitir honum ekkert leiðarljós í baráttu sinni við fortíðina.

Þetta rof hefðarfinnar, sem þegar hefur átt sér stað í okkar samfélagi, opnar fyrir tímaskeið þar sem engin tengsl eru lengur möguleg á milli fortíðar og framtíðar, nema í formi óendanlegrar uppsöfnunar hins gamla í eins konar yfirþyrmandi ofursafni eða í þeirri aftengingu sem framkvæmd verður af því sama meðali sem átti að hafa miðlunina með hendi.

Hin uppsafnaða menning hefur glatað lifandi merkingu sinni og vofir yfir manninum eins og ógn sem hann getur alls ekki fundið sjálfan sig í, rétt eins og höllin í skáldsögu Kafka, sem grúfir yfir þorpinu yfirskyggð af tilskipunum sínum og óteljandi skrifstofuherbergjum.

Manninum hefur verið kastað inn í tímann eins og hann væri eitthvað framandlegt sem gengur honum stöðugt úr greipum en dregur hann engu að síður linnulaust áfram þar sem hann hangir í tóminu á milli hins gamla og hins nýja, á milli fortíðar og framtíðar, án þess að geta nokkurn tímann fundið eigin viðspyrnu.

***

klee-angelus-novus-1920

Paul Klee: Angelus novus, 1920

Í einni af Hugleiðingum Walters Benjamin um heimspeki sögunnar lýsir hann á sérlega snjallan hátt þessari stöðu mannsins sem hefur glatað tengslunum við eigin fortíð og getur ekki lengur fundið sjálfan sig í sögunni. Benjamin skrifar:

Til er málverk eftir Klee sem heitir „Angelus Novus“. Það sýnir okkur engil sem virðist í þann veginn að hverfa á braut frá einhverju sem heldur augum hans föstum. Þau eru galopin, munnurinn líka, og vængirnir þandir. Þannig hlýtur engill sögunnar að líta út. Hann snýr andliti sínu að fortíðinni. Þar sem við sjáum keðju atburða sér hann aðeins eina skelfingarógn sem hrannast upp í rústum fyrir fótum hans. Engillinn vildi gjarnan staldra við, vekja hina dauðu til lífs og skeyta saman rústabrotunum. En stormur blæs frá Paradís, og hefur fest sig í vængjum hans af slíkum krafti að engillinn getur ekki lengur lokað þeim. Þessi stormur feykir honum miskunnarlaust á vit framtíðarinnar, sem hann snýr bakinu við, á meðan ruslahaugurinn andspænis honum vex honum til höfuðs.
Þessi stormur er það sem við köllum framfarir.

Albrecht Durer: Melancholia I, Koparstunga 1514

 

Til er koparstunga eftir Dürer sem sýnir vissa hliðstæðu við þá túlkun, sem Benjamin leggur í mynd Klee. Hún sýnir okkur vængjaða sitjandi veru í hugleiðslu með vökul augu. Í kring um hana sjáum við á víð og dreif ríkulegt safn af verkfærum daglegs lífs, myllustein, hefil, nagla, hamar, vinkil, naglbít og sög. Fagurt andlit engilsins er hulið skugga, það eina sem endurvarpar birtunni eru fellingarnar í síðum klæðum hans og hreyfingarlaus kúla sem liggur við fætur hans. Á bak við hann sjáum við stundaglas með rennandi sandi, turn, vogaskál og töfratöflu talnanna, og yfir haffletinum sem sést í baksýn sjáum við halastjörnu sem lýsir án ljóma. Yfir öllu sviðinu er rökkurstemming sem virðist undistrika sérstöðu sérhvers smáatriðis í myndinni.

Ef Angelus Novus eftir Klee er engill sögunnar, þá höfum við ekkert sem betur gæti túlkað engil listarinnar en þessa vængjuð veru í koparstungu Dürers. Á meðan engill sögunar beinir augum sínum til fortíðarinnar án þess að geta stöðvað hinn linnulausa bakflótta sinn til framtíðarinnar, þá horfir hinn dapri engill í koparstungu Dürers fram fyrir sig. Sá stormur framfaranna sem hafði fest sig í vængjum engils sögunnar hefur nú hljóðnað og engill listarinnar virðist horfinn inn í tímalausa vídd, rétt eins og eitthvað hefði rofið samfellu sögunnar og fest umlykjandi raunveruleika í eins konar messíanska kyrrstöðu. En rétt eins og atburðir hins liðna birtast engli sögunnar eins og vaxandi haugur óskiljanlegra rústa, þá hafa verkfæri hins virka lífs, sem liggja á víð og dreif umhverfis hinn dapra engil Dürers glatað þeirri merkingu sem dagleg nytsemd þeirra hafði veitt þeim, um leið og þau hafa magnast af mögulegri aftengingu sem gefur þeim eyrnamark einhvers óstöðvanleika.
Sú fortíð sem engill sögunnar er hættur að geta skilið endurgerir mynd sína fyrir augum engils listarinnar, en þessi vera er hin aftengda mynd sem getur einungis fundið sannleika sinn í fortíðinni á þeim forsendum að afneita henni, og þekking á hinu nýja verður einungis möguleg í ekki-sannleika hins gamla. Sú frelsun sem engill listarinnar býður fortíðinni með vísun í hana á hinsta degi hins fagurfræðilega Dóms er þannig ekki annað en dauði hennar (eða öllu heldur ómöguleiki dauða hennar) í listasafni fagurfræðinnar.
Depurð engilsins er fólgin í vitundinni um að hafa gert aftenginguna að sínum heimi og Jafnframt í fortíðarþránni eftir raunveruleika sem hann getur ekki höndlað öðruvísi en með því að gera hann óraunverulegan.v

Þannig gegnir fagurfræðin með vissum hætti sama hlutverki og hefðin fyrir tíma hefðarrofsins. Hennar hlutverk er að leysa átökin á milli hins gamla og nýja og hnýta afur þann slitna streng sem tengir okkur við fortíðina. Maðurinn sem hefur tapað sjálfum sér í tímanum þarf því nauðsynlega að endurheimta sjálfan sig aftur í sérhverju augnabliki, því fortíð hans og framtíð eru í veði. Án slíkrar sáttar getur maðurinn ekki lifað.

Með því að eyðileggja möguleika eigin miðlunar endurheimtir fagurfræðin fortíðina í neikvæðri mynd og gerir hið ómiðlanlega að gildi í sjálfu sér sem hin fagurfræðilega fegurð.
Þannig opnar hún fyrir manninn svæði á milli fortíðar og framtíðar, þar sem hann getur grundvallað störf sín og þekkingu.

Þetta svið er hið fagurfræðilega svið. En það sem þar er til miðlunar er einmitt ómöguleiki miðlunarinnar og sannleikur þessa sviðs er einmitt afneitun á sannleika inntaksins. Siðmenning sem hefur ásamt með miðlunargetu sinni glatað einu tryggingunni fyrir eigin sannleika stendur nú frammi fyrir ógninni af samfelldri og óstöðvandi uppsöfnun eigin merkingarleysu. Nú felur hún listinni þetta tryggingarstarf.

Þannig stendur listin frammi fyrir þeim vanda að tryggja það sem ekki verður tryggt án þess að hún glati sjálf eigin tryggingu. Nú víkur hið auðmjúka starf handverksmannsins (τεχνίτης /technitis) fyrir athafnasemi snillingsins. Hið auðmjúka starf handverksmannsins sem opnaði manninum rými verksins og byggði þá staði og smíðaði þá hluti þar sem hefðin framkvæmdi sína óslitnu sambræðslu á milli fortíðar og framtíðar, víkur nú fyrir þeirri athafnasemi snillingsins sem ber þá skyldu á herðum sér að framleiða fegurðina. Það er í þessum skilningi sem við getum sagt að fegurðin sem listlíkið (Kitsch) boðar í listaverkinu feli ekki í sér annað en eyðileggingu á miðlun þeirrar menningar sem byggir á fagurfræðinni.

Ef þetta reynist rétt, ef listaverkið er sá staður þar sem hið gamla og hið nýja leiða fram átök sín á núverandi vettvangi sannleikans, þá er vandamál listarinnar og örlaga hennar í samtíma okkar ekki bara eitt af þeim fjölmörgu vandamálum sem menning okkar býður upp á, heldur er hér tekist á um það hvort listin muni lifa af og eiga sér framtíð í þeirri klemmu sem hún nú býr við, á milli fortíðar og nútíðar, þar sem hún hefur fundið sína ýtrustu og brothættustu málamiðlun í sinni fagurfræðilegu framandgervingu.

Það er einungis listaverkið sem tryggir vofukennt framhaldslíf hinnar uppsöfnuðu menningar með sambærilegum hætti og það er einungis hin óþreytandi afhjúpunarviðleitni landmælingamannsins K sem tryggir höll West-West hertogans í sögu Kafka, það er hið eina yfirskyn raunveruleika sem hún getur gert kall til.

En höll menningarinnar er þegar orðin að safni, sem nútímamaðurinn getur með engu móti fundið sjálfan sig í. Þar er uppsafnaður menningararfurinn borinn fram fjöldanum til fagurfræðilegrar nautnar við aðstæður þar sem nautnin verður einungis möguleg í gegnum þessa fagurfræðilegu framandgervingu sem útilokar áhorfandann frá beinni skynjun og frá eigin skapandi skáldskapargetu (capacita poietica) í viðleitninni að hasla sér völl til athafna og þekkingar á manninum.

Þannig er fagurfræðin ekki einungis sú forgangsvídd sem framfarasókn Vesturlandabúans á sviði skynjunarinnar hefur helgað listaverkinu sem þess heimaslóð. Hún felur einnig í sér sjálf örlög listarinnar á því tímaskeiði hefðarrofsins þar sem maðurinn getur ekki lengur fundið vettvang sinn í nútímanum á milli fortíðar og framtíðar, og þar sem hann glatar sjálfum sér í hinu línulega ferli sögunnar.

Þessi engill sögunnar sem hefur vængi sína fangna í stormi framfaranna og þessi engill fagurfræðinnar sem virða fyrir sér rústir fortíðarinnar í einhverri tímalausri vídd eru óaðskiljanlegir.
Á meðan maðurinn hefur ekki fundið aðra leið til að leysa á sinn einstaklingsbundna og samfélagslega hátt áreksturinn á milli hins gamla og hins nýja og finna sálfum sér sína sögulegu vídd, þá virðast harla litlir möguleikarnir á að maðurinn yfirvinni þá fagurfræði sem sér markmið sín og takmörk í sjálfum holskurðinum í sinni ýtrustu mynd.

***

Í stílabókum Kafka er að finna áhrifamikla mynd er lýsir þessum algjöra vanmætti mannsins andspænis því verkefni að endurheimta eigið athafnarými á spennusvæðinu milli sögu fortíðarinnar og sögu framtíðarinnar. Þar er dregin upp mynd af „hópi ferðamanna í járnbrautalest sem hefur orðið fyrir óhappi á þeim stað í jarðgöngum, þar sem hvorki sér til ljóss í inngangi né útgangi, nema þá svo daufa skímu að menn verða stöðugt að skima eftir henni án þess að átta sig á hvort um útgang eða inngang sé að ræða„.

Á tímum forngrísku harmleikjanna, -þegar hið hefðbundna goðsögulega kerfi var farið gefa sig og láta undan þrýstingi frá þeim siðfræðilega heimi sem var í fæðingu, – hafði listin þegar tekið að sér það hlutverk að miðla málum í átökunum á milli hins gamla og hins nýja. Listin hafði sett þessi átök fram í mynd hins seka – saklausa, í mynd hinnar harmsögulegu hetju er tjáir í öllum sínum mikilfengleik og í allri eymd sinni hina brothættu merkingu mannlegra athafna á því sögulega augnabliki sem ríkir milli þess
sem þegar er liðið og þess sem er óorðið.

Sá höfundur í okkar samtíma sem af hvað mestri eindrægni hefur tekið á sig þetta hlutverk er Franz Kafka. Andspænis algjörum getuleysi mannsins gagnvart því verkefni að meðtaka sínar sögulegu forsendur hefur Kafka reynt að gera þetta getuleysi að þeirri undirstöðu sem maðurinn gæti fótað sig á. Í þessum tilgangi hefur Kafka snúið við mynd Benjamins af engli sögunnar: samkvæmt því er engillinn þegar kominn í Paradís, hann var þar í raun frá upphafi vega, og stormurinn og þar af leiðandi flótti hans eftir hinum línulega tíma framfaranna eru ekki annað en ímyndanir sem hann býr sér til í viðleitninni að falsa eigin þekkingu og umbreyta því sem er hin eilífa og óumbreytanlega staða hans í enn óuppfyllt markmið.

Það er í þessum skilningi sem við lesum þá að því er virðist þversagnarkenndu hugsun sem Kafka setur fram í Hugleiðingum um syndina, sársaukann, vonina og hinn sanna veg:

Það er áfangastaður en enginn vegur, það sem við köllum veg er ekki annað en hik okkar„,

og:

það er einungis skilningur okkur á tímanum sem fær okkur til að tala um
Dómsdag sem hinn hinsta dóm: í raun og veru er um viðvarandi réttarhöld að ræða (Standrecht)“.vi

Maðurinn er þegar og stöðugt staddur á Dómsdegi, Dómsdagur er hin náttúrlega sögulega staða mannsins, það er einungis óttinn við að horfast í augu við hann sem fær hann til að ímynda sér að Dómsdagur sé enn ókominn.
Sú hugmynd að sagan sé endalaus og fylgi línulegum tómum tíma (þeim tíma sem þvingar Angelus Novus í sína óstöðvandi vegferð) víkur hjá Kafka fyrir hinni þverstæðufullu mynd af þeim sögulegu aðstæðum þar sem grundvallandi atburður allrar þróunar mannsins er stöðugt viðvarandi og línuleg framvinda tímans er rofin án þess að opna þar með nokkra glufu handan við sjálfa sig.vii

Það er af þessum ástæðum sem Kafka getur sagt að þær byltingarhreyfingar hafi rétt fyrir sér, sem lýsa því yfir að allt hið liðna sé tómið eitt, því ekkert hafi í raun og veru gerst.
Aðstæður mannsins sem hefur tínt sjálfum sér í sögunni enda þannig með því að líkjast aðstæðum mannanna frá Suður-Kína sem sagt er frá í Byggingu Kínamúrsins [eftir Kafka], en þeir „þjást af veikluðu ímyndunarafli og vantrú, og reynast því ófærir um að reisa heimsveldið upp frá pekingskri hnignun þess og að halda því lifandi og nákomnu í þegnahjörtum sínum, hjörtum sem þráðu ekki annað en að finna aðeins einu sinni þessi tengsl og deyja svo„, jafnvel þó „þessi veikleiki virðist vera mikilvægasta forsenda einingarinnar, eða öllu heldur ef nota mætti jafn bíræfin orð, sú jörð sem við stöndum á„.

Andspænis þessum þverstæðufullu aðstæðum jafngildir spurningin um viðfangsefni listarinnar því að spyrja sig þeirrar spurningar, hvað henni bæri að taka sér fyrir hendur á Dómsdegi, það er að segja við aðstæður (sem fyrir Kafka voru það sama og sögulegar aðstæður mannsins) þar sem engill sögunnar hefur numið staðar og maðurinn stendur andspænis ábyrgð sinni í hléinu á milli fortíðar og framtíðar.
Svar Kafka við þessari spurningu fólst í því að spyrja sjálfan sig hvort listin gæti orðið miðill miðlunarverknaðarins, hvort hún gæti meðtekið sem inntak sitt það verkefni að miðla, án tillits til þess hverju bæri að miðla. Snilligáfa Kafka andspænis þeim fordæmalausu sögulegu aðstæðum sem hann hafði skynjað, fólst að mati Benjamins í því, að hann hafði „fórnað sannleikanum fyrir ástina á möguleikum miðlunarinnar„viii.

Frá þeirri stundu þegar áfangastaðurinn blasir við, og ekki er lengur neinn vegur til sem leiðir okkur þangað, getur ekkert nema óendanleg og þrjóskufull töf boðberans sem hefur engu að miðla nema miðluninni sjálfri, endurfært manninum það staðfasta rými sem verður hlutlægur vettvangur athafna hans og þekkingar við aðstæður þar sem hann hefur glatað allri getu til sögulegrar aðlögunar.

Þegar listin hefur náð sínum fagurfræðilega endapunkti, þá gerist það að hún eyðir bilinu á milli inntaks og framkvæmdar miðlunarinnar og byrjar að nálgast það goðsögulega og hefðbundna svið þar sem þessir tveir þættir bjuggu áður í órjúfanlegri samsemd.

Listin getur þrengt sér að þröskuldi goðsögunnar með því að valta yfir hina fagurfræðilegu vídd í þessari „hinstu atlögu að endamörkum sínum„ix og sneiða þannig hjá þeim örlögum sem leiða hana að Listlíkinu (Kitsch), með því að smíða sér siðferðilegt kerfi sem er fullkomlega abstrakt og hefur miðlunina eina að markmiði, þannig getur listin þrengt sér að þröskuldi goðsögunnar án þess nokkurn tíman að yfirstíga hann.

Ef maðurinn gæti náð valdi á sínum sögulegu aðstæðum og gert út af við storminn sem feykir honum endalaust eftir tímalínunni, og þar með náð að losna úr sínum þverstæðufullu aðstæðum, þá myndi hann samstundis ná valdi á þeirri altæku þekkingu er gæti veitt nýrri sköpunarsögu heimsins líf og umbreytt sögunni í goðsögn.
En listin getur ekki framkvæmt þetta ein, því á sínum tíma frelsaði hún sig einmitt frá goðsögunni í þeim tilgangi að sætta hinn sögulega ágreining á milli fortíðar og framtíðar til þess að tengja sig sögunni.

Með því að umbreyta reglunni um frestun mannsins og töf andspænis sannleikanum í skáldlegt ferli og með því að hafna gulltryggingu sannleikans í skiptum fyrir ástina á miðlanleikanum tekst listinni enn einu sinni að umbreyta getuleysi mannsins til að komast út úr sínum sögulegu aðstæðum -þar sem hann er um ókomna tíð innilokaður mitt á milli hins gamla og nýja, fortíðar og ramtíðar, -í það eiginlega rými þar sem hann nær að höndla sinn upprunalega mælikvarða á eigin dvalarstað í núinu og endurheimta í sérhvert skipti merkingu gerða sinna.

Í samræmi við regluna að þá fyrst geti húsið leitt í ljós grundvallarvanda burðarverksins í byggingunni þegar það stendur í ljósum logum, þannig mun listin leiða í ljós hin upprunalegu áform sín þegar hún hefur náð endimörkum örlaga sinna.

Forsíðumyndin er koparstunga Albrechts Dürers, „Melancholia II“ frá 1514

————

i. Hanna Arendt fjallar um þetta í Men in Dark Times, New York, 1968, bls. 193.

ii. Auðveldlega má sjá að framandgervingarhlutverk tilvitnunarinnar er hliðstæð framandgervingu ready-made verka í Popplistinni. Einnig þar sjáum við hluti, sem draga merkingu sína af „sönnunargildinu“ sem þeir hafa dags daglega . Þessi merking þeirra hverfur umsvifalaust um leið og þeir öðlast ögrandi fælingarmátt.

iii. Það er fróðlegt að sjá hvernig Debord (La société du spectacle, París 1967, kafli VIII) hefur ekki áttað sig á mögulegum eyðingarmætti tilvitnunarinnar í rannsókn sinni á „stíl neikvæðisins“ sem undirróðurstungumáli byltingarinnar. Engu að síður gegnir sú notkun sem hann mælir með á „détournement“ og ritstuldi, sama hlutverki og Benjamin ætlaði tilvitnuninni, þar sem „hið jákvæða hlutverk ríkjandi hugtaka feli jafnframt í sér skilninginn sem fólginn er í endurheimtri fljótandi mælsku þeirra og nauðsynlegum eyðingarmætti þeirra, þannig að hugtökin tjái með þessum hætti yfirburði gagnrýni líðandi stundar yfir öllu sem er liðið… Það birtist í fjölmiðluninni sem veit að hún getur ekki látist gefa neina tryggingu… Þetta er tungumál sem engin gamaldags tilvísun getur staðfest.“

iv. Þó að aftengingar- og firringargildið öðlist smám saman efnahagslegt gildi og þar með skiptagildi, þá sýnir það ekki annað en að aftengingin/firringin gegni jákvæðu efnahagslegu hlutverki í okkar samfélagi.

v. Túlkun koparstungu Dürers frá íkonografískum sjónarhóli má finna í verki Panofsky-Saxl, Dürers Kupferstich „Melanconia I“ (1923) og hugleiðingar Benjamins í Ursprunng der deutschen Trauerspiel(1963). Bls. 161-71. Sú túlkun sem hér er sett fram útilokar ekki hina hreinu íkonografísku túlkun, en takmarkar sig við að skoða hana frá sögulegu sjónarhorni. Annars er sú typus acidae sem mynd Dürers er efnislega tengd (hin óvirka manngerð athafnaleysisins – olg) náskyld því sem í kristinni guðfræði kallast örvæntingin um status viatoris mannsins, það er að segja glötun sem ekki er fólgin í fullnustunni, heldur „veginum“ til fullnustunnar. Eftir að hafa grannskoðað miðaldalýsingarnar á
acedia (sálarástandi hins óvirka) í hlutlægri tímalegri og raunverulegri reynslu gerði Dürer þessa mynd af aðstæðum mannsins þar sem hann hefur glatað hefðinni og reynslunni af þeim tíma sem henni tilheyrir, og nær því ekki að höndla eigið svigrúm í nútíðinni á milli fortíðar og framtíðar og glatar þannig sjálfum sér í hinu línulega ferli sögunnar.

vi Sjá: Franz Kafka, „Reflections on Sin, Pain, Hope, and the True Way,“ in The Great Wall of China, trans. Willa Muir and Edwin Muir ( New York: Schocken, 1946), pp. 283, 287.

vii. Dýpstu greininguna á afstöðu Kafka til sögunnar er að finna í ritgerð Beda Alemann, Kafka e l’historieL’endurance de la pensée, París, 1968) þar sem einnig er að finna túlkun á Kafka-hugtakinu Standrecht sem „sögulega stöðu“. Hægt er að bera saman hugmynd Kafka um „sögulega stöðu“ við hugmynd Benjamins um Jetztzeit (nú-vera) sem hann skildi sem rof verðandinnar, sem hann skýrði einnig sem nauðsyn í Hugleiðingum um heimspeki sögunnar, hugsun sem átti að leiða til þess skilnings á sögunni aðundantekningarástandið sé í raun og veru reglan.
Í stað þess að tala um „stöðu sögunnar“ liggur kannski betur við að tala um „sögulega upphafningu“ (estasi storica, þar sem estasi merkir bókstaflega að vera frá sér numinn). Þar sem maðurinn er í raun og veru ófær um að meðtaka hinar sögulegu aðstæður sínar og er því í raun alltaf „utan við sjálfa sig“ í sögunni.

viii. W. Benjamin, Briefe, II, bls. 763.

ix. Kafka, Dagbækur, 16. janúar 1922.