
Evrópusambandið í ljósi Franz Kafka
Það var áliðið kvölds þegar K. bar að garði. Þorpið var á kafi í snjó. Ekkert sást í hallarhæðina, hún var umlukin þoku og myrkri, ekki svo mikið sem ljósglæta gaf til kynna hvar höllin stóra væri. K. stóð lengi á trébrúnni sem lá frá þjóðveginum að þorpinu, og horfði upp í tómið sem þar virtist vera.
Síðan fór hann að leita sér að náttstað; fólk var enn vakandi í veitingahúsinu, vertinn hafði að vísu ekki herbergi til leigu, þessi síðbúna gestkoma hafði komið honum mjög á óvart og ruglað hann í ríminu en hann kvaðst geta leyft K. að sofa á hálmdýnu í veitingastofunni. K. féllst á það. Nokkrir bændur sátu enn við bjórdrykkju, en hann kærði sig ekki um að ræða við neinn, sótti sjálfur hálmdýnuna upp á háaloft og lagðist fyrir nálægt ofninum. Það var hlýtt, bændurnir höfðu hægt um sig, þreyttum augum virti hann þá svolítið fyrir sér enn um stund, síðan sofnaði hann.
En ekki leið á löngu uns hann var vakinn. Ungur maður, klæddur eins og borgarbúi, með leikaralegt andlit, píreygður, með kröftugar augabrúnir, stóð hjá honum ásamt vertinum. Bændurnir voru líka enn á staðnum, sumir höfðu snúið við stólum sínum til að sjá betur og heyra. Ungi maðurinn baðst afar kurteislega afsökunar á því að hafa vakið K., kynnti sig sem son hallarvarðarins og sagði síðan: „Þetta þorp er í eigu hallarinnar, sá sem býr hér eða gistir, býr eða gistir á vissan hátt í höllinni. Engum leyfist slíkt án samþykkis greifans. Þér hafið hinsvegar ekki slíkt leyfi eða hafið að minnsta kosti ekki framvísað því.“
K. hafði risið upp við dogg og strokið yfir hárið, hann horfði upp til mannanna og mælti: „Í hvaða þorp hef ég villst? Er þá höll hérna?“
„Já, reyndar,“ sagði ungi maðurinn seinlega, ýmsir í hópnum hristu höfuðið yfir K., „höll herra greifans Westwest.“
„Og verða menn að fá leyfi til að gista?“ spurði K., rétt eins og hann vildi fullvissa sig um að hann hefði ekki dreymt hinar fyrri tilkynningar.
„Leyfi verða menn að hafa,“ var svarið og ungi maðurinn hæddist gróflega að K. með því að rétta út handlegginn og spyrja vertinn og gestina: „Eða þarf annars ekki að hafa leyfi?“
„Þá verð ég að ná mér í slíkt leyfi,“ sagði K., geispaði og ýtti af sér ábreiðunni eins og hann hygðist rísa á fætur.
Þetta eru upphafsorðin í „Höllinni“, skáldsögu Frans Kafka frá árinu 1922 (hér í þýðingu þeirra feðga, Ástráðs Eysteinssonar og Eysteins Þorvaldssonar og útgáfu Forlagsins frá 2024). Það voru efasemdir mínar um yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi heimild íslenskra stjórnvalda til fyrstu atlögu að aðildarumsókn að Evrópusambandinu sem leiddu hug minn að þessari síðustu og ófullgerðu skáldsögu Kafka, sem ég mundi nú að ég hafði lesið sem ungur maður. Og viti menn, hún var enn í bókaskápnum, útkrotuð með léttum blýantsstrikum og athugasemdum, kyrfilega merkt ungum Ólafi Gíslasyni á árinu 1964. Ég hafði aldrei lesið hana aftur, en hún hafði fylgt flóknum búferlaskiptum þessa unga manns í 62 ár, en ekki verið opnuð eða lesin síðan þessi ungi og ráðvillti maður las hana, þá staddur í Internationella studenthuset í Lundi í Svíþjóð. Loksins var kominn tími til að lesa hana á ný, í sænskri þýðingu Tage Aurell frá árinu 1963. Þetta reyndist engin hefðbundin lestraræfing, hún var ekki bara skemmtileg upprifjun sænskrar tungu, sem ég hef lesið sorglega lítið síðan ég kvaddi Svíþjóð fyrir margt löngu. Sú reynsla var eins og að klæða sig í eldgömul föt og fól í sér ákveðinn fiðring, en ég var ekki kominn langt í lestrinum þegar þessi fiðringur breyttist í tvöfalda og magnaðri reynslu, þar sem ég upplifði sjálfan mig í gervi þessa unga manns með þessa splunkunýju bók á milli handanna, sem hafði kostað hann 7 sænskar krónur og 50 aura, en um leið valdið tímamótum í lífi hans sem breyttu öllu. Þessi ungi maður var nýsloppinn úr menntaskóla á Íslandi, kominn út í heiminn til að takast á við hann á vettvangi akademíunnar – án þess að vita nákvæmlega hvað sá vettvangur byði upp á. Fullur af forvitni skráði hann sig í nám í félagsvísindum og mannfræði, í raun til undirbúnings fyrir veigameiri viðfangsefni. Fyrsta verkefnið sem hann fékk í akademíunni tengdist vísindalegri aðferðarfræði, og fyrsta kennslubókin sem hann keypti bar titilinn „Hur man ljuger med statistik“. Fullur bjartsýni fór þessi ungi maður að kynna sér þessa leyndardóma hinnar vísindalegu aðferðarfræði, en áhuginn dofnaði fljótlega og nú þegar ég við endurlestur Hallarinnar hrökk óvænt inn í tilvistarangist þessa unga manns árið 1964, þá minnist ég þess að þessar akademísku kennslubækur visnuðu smám saman í höndum hans á meðan bækur lærimeistara eins og Albert Camus, Dostoyevsky, Gogol, Kierkegaard, Gunnars Ekelöv, Stendahl og Andre Gide heltóku huga hans æ meir. Af einhverjum ástæðum, sem trúlega eru ekki tilviljun ein, hafa flestar bækur þessara höfunda sem ásóttu huga og hendur unga mannsins á þessum huglægu umbrotatímum í tilveru hans horfið úr bókaskánum eftir ítrekaða búferlaflutninga á þessum sex áratugum, en „Slottet“ eftir Franz Kafka og ritsafn Kierkegaards hafa – eftir vonandi síðustu búferlaskiptin – ratað alla leiðina í splunkunýja skrifstofukompu hans í Kópavoginum og endurlesturinn orðið að nýju leiðarljósi í örlagaspurningu íslenskra stjórnvalda um hvað felist í hinum leyndardómsfulla „pakka“ Evrópusambandsins.
Í stuttu máli varð endurlestur minn á „Slottet“ eftir 62 ára lestrarhlé eins og endurupplifun þeirrar örlagaríku stundar er ég lagði bókina síðast frá mér á Internationella studenthuset 1964 og ákvað að mæta ekki i háskólaprófið sem var á dagskrá morguninn eftir og átti að skila tölfræðilegri mælingu á skilningi mínum á hvernig nota mætti tölfræðina til að sniðganga sannleikann. Endurlesturinn á Höllinni var ekki bara bókmenntaleg upprifjun eftir langt hlé, heldur nánast líkamleg endurupplifun þessarar stundar sem markaði krossgötur í lífi unga mannsins sem hafði skrifaði nafn sitt á saurblað bókarinnar. Héðan í frá skyldi tungumál þeirrar listar er talaði handan orðanna verða hans viðfangsefni.
Hvernig getur þessi aldargamla ófullgerða frásögn Kafka tengst yfirvofandi atkvæðagreiðslu um leyfi til landsstjórnarinnar til að „kíkja í pakkann“ sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun hugsanlega bjóða íslensku þjóðinni við fulla aðild hennar að þessu hagsmunafélagi sem hún er þegar með 75% aðild að samkvæmt tölfræðinni?
Til þess að skýra þessa afar persónulegu upplifun er nauðsynlegt að endursegja í örfáum orðum þessa sögu Kafka af landmælingamanninum K. sem fann sig skyndilega mættan einn snjóþungan vetrardag í bænum undir „höllinni“ þar sem hann taldi sig vera kallaðan til mælingarstarfs fyrir sjálft yfirvaldið sem bar nafnið West West greifi. Í rauninni er þetta frásögn um baráttu sem breytist í glímu við hið ósýnilega vald sem er handan þeirra laga er setja þessu samfélagi lög og reglur, en stýra því engu að síður með ósýnilegri hendi í afar stéttskipt og undirgefið samfélag er lýtur því valdi er býr við „lagasetningu án merkingar“, svo vitnað sé í annan lærimeistara minn, heimspekinginn Giorgio Agamben. Sú stéttaskipting sem þarna ríkir er ekki hin hefðbundna skipting launþega og vinnuveitenda sem við þekkjum úr hefðbundnum marxískum skilningi, heldur minnir hún kannski frekar á þau ósýnilegu lög sem ríktu á miðöldum þar sem „hertoginn“ var gjarnan jafn ósýnilegur og lögin sem skráð voru ófrávíkjanleg í loftinu einu. Enginn sem K. hitti í bænum undir Höllinni hafði séð West West greifa, en margir lýstu sig viljuga að þræða þann ósýnilega stiga sem til hans lá til að fá viðurkenningu á starfslýsingu landmæalingamannsins. Meðal þeirra var beiningastúlka á þorpskránni sem hét Frieda og hafði verið ástkona herra Klamm, sem var háttsettur embættismaður „hallarinnar“ sem fáir höfðu náð tali af og var innilokaður á kammesi sínu í þorpskránni. Þar lenti K. í ævintýralegum ástarfundi með Friedu undir barborðinu er leiddi til trúlofunar hennar og K. eftir að hún hafði leyft honum að sjá þetta undir-yfirvald í gegnum skrárgat sem hún ein gat opnað með tappa. Höllin er öðrum þræði ástarsaga K. og Friedu og sambandi þeirra við Barnabas boðbera og systur hans Olgu og Amalíu. Um leið er hún saga um starfsframa K. og Friedu sem þeim bauðst í biðinni eftir viðurkennigu „Hallarinnar“ á landmælingaembætti K. sem aldrei var staðfest. Sagan á sér í raun engan enda, enda ólokið skáldverk sem Kafka vildi láta brenna eftir sinn dag eins og skáldsögurnar um réttarhöldin og Ameríku. Höllin á það sammerkt með „Réttarhöldunum“ að höfuðpersónurnar eru K. og Josef K. Í Réttarhöldunum á Josef K. í beinum átökum sakborningsins við skilgrein og vel sýnilegt yfirvöld þar sem hann er á grundvelli falskra sakarefna dreginn fyrir rétt og á endanum dæmdur og tekinn af lífi. Í Höllinni er yfirvaldið ósýnilegt og því engin málsvörn í boði, – og á endanum enginn dómur heldur, Höllin er mynd af samfélagi sem lýtur ströngu en ósýnilegu lagavaldi þar sem hlutverk K. er ekki málsvörn sakborningsins, heldur eru allir sakborningar í þessu samfélagi þar sem ábyrgðin er yfirþyrmandi ósýnileg og hlutverk K. því lýsing á tilverustigi sem við getum í vissum skilningi séð sem það fjölþjóðlega yfirvald sem á sér ósýnilega þjóðhöfðingja er gegna yfirþjóðlegu valdi sem enginn getur kallað til ábyrgðar.
Hvernig gat ég fundið hliðstæðu í upphafsorðunum í sögu Franz Kafka, sem lýsa inngöngu hans í bæinn undir kastalanum og því ferli sem íslenska ríkisstjórnin hefur nú boðið þjóð sinni í, með kosningu um leyfi stjórnvalda til að opna samningaleið að inngöngu í ESB? Á þessi makalausa samfélagslýsing Kafka eitthvað skylt við Evrópusambandið?
Skilja má af merkilegri umræðu um þessi mál í tilefni kosninganna, að Íslendingar séu alls ókunnugir um út á hvað þetta samband gangi. Sagt er að kosningarnar nú snúist um að vita „hvað sé í pakkanum“, eins og um sé að ræða óvænta jólagjöf sem enginn viti hvað í sé falið. Stofnun ESB átti sér langan aðdraganda sem fólst í Kola- og Stálbandalaginu 1951, Rómarsáttmálanum frá 1957 (EEC) og Maastricht sáttmálanum frá 1992, sem var grundvöllur formlegrar stofnunar ESB 1. Nóvember 1993. Sameiginlegur gjaldmiðill ESB ríkja tók gildi 2002. Ísland gerðist aðili að Evrópska efnahagssvæðinu með sérstökum samningi sem tók gildi 1. Janúar 1994, og hefur því haft sérstakan viðskiptasamning við bandalagið í 32 ár, samning sem talinn er taka yfir ¾ hluta fullrar aðildar að bandalaginu. Upphaflegar grunnforsendur ESB felast í frjálsum flutningum á fjármagni, vörum og vinnuafi á milli aðildarríkjanna. Nú eru aðildarríki ESB 27 en þar við bætast EES-ríkin Ísland, Noregur og Lichtenstein og síðan hefur Sviss sérstakan tvíhliða samning við Bandalagið. Íslendingar eiga því að hafa fulla reynslu af þessu samstarfi, sem hefur að mati flestra verið til góðs og opnað ekki bara efnahagsleg, heldur líka menningarleg samskipti á milli Íslands og aðildarlandanna.
Aðdragandi stofnunar ESB á sér merkilega sögu, sem snerist ekki hvað síst um að koma í veg fyrir endurtekningu þess harmleiks sem síðari heimsstyrjöldin var, að tryggja frjáls viðskipti á milli þeirra ríkja sem höfðu barist á banaspjótum og lagt álfuna í rúst í 5 ára stríði. Þessi upphaflegu markmið skiluðu óumdeildum árangri í fyrstu, en brotalamir og brestir hafa komið í þetta samstarf, sem urðu áberandi í Grikklandskreppunni þegar í ljós kom að Evrópski Seðlabankinn og aðrir einkabankar höfðu skuldsett Grikkland umfram greiðslugetu og ríkisstjórn landsins voru settir afarkostir til að bjarga lánardrottnunum árið 2015. Síðan hafa hliðstæð vandamál komið upp, meðal annars í Portúgal, Ítalíu, Frakklandi og á Spáni, sem enn eru óleyst, og Bretland gekk úr sambandinu 2020. Tölfræðin um efnahagslegan árangur ESB samstarfsins segir ekki alla söguna, og stjórnkerfi bandalagsins hefur sætt vaxandi vagnrýni samfara vaxandi tilfærslu valds frá aðildarríkjunum til Ráðherranefndar og Framkvæmdastjórnar bandalagsins þar sem skipaður framkvæmdastjóri (Ursula von der Leyen) og stjórnandi utanríkismála (Kaia Kallas) hafa í vaxandi mæli gerst talsmenn aðildarríkjanna í utanríkismálum án þess að sæta ábyrgð annarra en ráðherranefndarinnar sem skipar í þessi embætti. Þá hefur Evrópuþingið sætt gagnrýni, en það hefur ekki löggjafarvald eins og þing aðildarríkjanna, heldur einungis ályktunarvald um reglugerðir ráðherranefndarinnar. Segja má að árekstrar fullveldis og sambandsveldis séu óumflýjanlegir í ríkjandi stjórnskipulagi ESB, en þar við bætist að sameiginleg mynt ólíkra hagkerfa án sameiginlegs fjárlagavalds skapi óhjákvæmilega árekstra fullveldis og samveldis í stjórnun efnahagsmála einstakra ríkja, þar sem stýrivextir og lánshæfni bitna á aðildarríkjunum með ólíkum hætti.
Þeir brestir í ESB samstarfinu sem hér hefur verið bent á, og bitna á aðildarríkjunum með ólíkum hætti, hafa tekið á sig alvarlegri mynd í kjölfar Maidan-uppreisnarinnar í Úkraínu 2014 og innrásar Rússlands í landið 2022. Yfirlýst tilefni uppreisnarinnar var ákvörðun Viktors Janúkovitsj forseta að hafna undirritun samstarfs- og viðskiptasamnings við Evrópusambandið, en mótmæli gegn þessari ákvörðun breyttust í blóðug átök um áramótin 2014, þar sem skotvopnum var beitt gegn lögreglu og almennum borgurum. Þessum átökum lauk með því að forsetinn flúði land og skipuð var bráðabirgðastjórn þar sem Viktoria Nuland, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna kom við sögu. Hún hafði tekið virkan þátt í Maidan-mótmælunum, og hljóðritað símtal vitnar um að hún hafi í raun tilnefnt Arseníj Jatsenjúk í embætti forseta landsins, íhlutun sem benti til ítrekunar þeirrar stefnu Bandaríkjastjórnar sem samþykkt var á NATO-fundi í Búkarest 2008, að stefna bæri að innlimun Úkraínu í NATO. En sú ákvörðun braut í bága við það samkomulag sem gert var á sínum tíma við Gorbatsjov Rússlandsforseta að „NATO yrði ekki stækkað um spönn til austurs“ eftir sameiningu Austur- og Vestur-Þýskalands 1990 og upplausn Varsjárbandalagsins. Þessir atburðir höfðu mótandi áhrif á framtíðarskipan mála í Evrópu, þar sem upphaflegu markmiði þessara varnarbandalaga var þar með lokið, en Evrópusambandið orðið hluthafi í útþenslustefnu NATO að landamærum Rússlands.
Eins og allir vita þá leiddi þessi atburðarás til þess 2014 að Rússland tók yfir Krímskagann, þar sem þeir áttu flotastöð fyrir, og borgarastyrjöld hófst í austurhluta Úkraínu sem stóð frá 2014 allt þar til Rússland gerði innrás í landið í febrúar 2022, stríð sem hefur staðið með vaxandi þunga síðan, með formlegri innlimun rússneskumælandi héraðanna Donbass og Lutansk í Rússland.
Þessir atburðir hafa haft víðtæk áhrif á efnahag aðildarríkja ESB, þar sem sambandið hefur sett viðskiptabann á Rússland, lagt hald á rússneskar innstæður í evrópskum bönkum, bannað mikilvæg viðskipti með jarðgas og olíu og staðið óbeint að eyðileggingu á þýsk-rússneskum gasleiðslum um Eystrasaltið, kenndum við Nordstream.
Evrópusambandið hefur verið virkur þátttakandi í þessum hernaði með vopna- og fjárstuðningi, sem hefur stigmagnast á þessu ári upp í umtalsverðan lofthernað Úkraínuhers víðsvegar innan landamæra Rússlands í krafti beinnar tækniaðstoðar sem hefur að meginhluta komið frá Evrópuríkjum eftir að síðari Trump-stjórnin kom til valda. Segja má að Evrópuríkin og Bandaríkin hafi skipt með sér verkum í stríðsrekstrinum, þar sem Bandaríkin hófu stríð við Íran á þessu ári í samvinnu við Ísrael á meðan Evrópusambandið hefur beint og óbeint fjármagnað stríðsrekstur Úkraínu, sem er gjaldþrota land eftir 4 ára stríðsrekstur. Í apríl á þessu ári samþykkti Evrópuráðið að taka lán til að fjármagna stríðið í Úkraínu næstu 2 árin upp á 90 milljarða evra. Þessi samþykkt var gerð í nafni 24 af 27 aðildarríkjum ESB, og er að þessu leyti óvenjuleg, þar sem bæði Ungverjaland, Tékkland og Slóvakía skárust undan þessari skuldbindingu, og var þessi undanþága samþykkt á Evrópuþinginu. Þá segir í þingsályktun Evrópuþingsins um málið að endurgreiðslu lánsins eigi endanlega að fjármagna með stríðsskaðabótum sem Rússlandi yrði skylt að greiða í stríðslok.
Efnahagslegar afleiðingar stríðsins í Úkraínu hafa umturnað öllum efnahagsmálum í álfunni. Áhrifanna gætir ekki síst í Þýskalandi sem hefur verið efnahagslegur burðarás bandalagsins til þessa, með afgerandi forystu í iðnvæðingu og framleiðslu gæðavarnings á því sviði. Meginorsök þessara erfiðleika er rakin til hækkandi orkuverðs, sem magnast nú enn til muna með tilkomu stríðsins við Íran. Í fyrsta skipti frá stríðslokum er nú í gangi umtalsverður samdráttur í framleiðslu bíla og annars orkufreks varnings í evrópskum þungaiðnaði. Þá hefur hækkun á orkuverði áhrif á framboð og verð á áburði, og þar með á framboð og verð á landbúnaðarvörum. Stríðin í Íran og Úkraínu hafa samlegðaráhrif í þessum samdrætti og afleiddri verðbólgu, sem setur alla efnahagsþróun í Evrópu í algjöra óvissu, en segja má að bæði stríðin hafi samlegðaráhrif er veiki umtalsvert samkeppnisstöðu álfunnar gagnvart Kína og Bandaríkjunum, þó efnahagslífið þar sé einnig í fullkominni óvissu.
Ekki er þörf á ýtarlegri greiningu á þessu ástandi til þess að sjá „hvað er í pakkanum“ hjá ESB. Það er fyrst og fremst sú staðreynd að bandalagið vinnur nú beinlínis gegn þeim markmiðum sem upphaflega voru sett með „Kola- og stál-bandalaginu“ 1951, og lengi vel var yfirlýst markmið efnahagssamvinnu Evrópuríkja eftir stríð. Meginmálið var að koma í veg fyrir stríð. Evrópusambandið hefur markvisst unnið gegn þessum markmiðum með hervæðingu viðskiptanna og samþjöppun yfirþjóðlegs valds í stofnanir sem enga ábyrgð bera gagnvart íbúum álfunnar. Það er með ólíkindum að hlutskipti ESB í þeirri deilu á milli Rússlands og Úkraínu sem Bandaríkin áttu stærstan hlut í að magna upp, hafi eingöngu falist í vígvæðingu og fjármögnun þessa stríða sem hefur í raun staðið ekki bara í þau 4 ár sem Rússar hafa herjað á landið, heldur allt frá árinu 2014 þegar ofsóknir og hernaður hófst gegn rússneskumælandi íbúum Úkraínu.
Það er í raun með ólíkindum að stríðsrekstur Vesturlanda á tveim vígstöðvum skuli nú háur á undirliggjandi forsendum þjóðernis og trúarbragða. Evrópusambandið hefur athugasemdalaust horft upp á þjóðarmorð Ísraelsríkis gegn Palestínumönnum á Gaza og Vesturbakkanum í yfirlýstu trúarbragðastríði gyðingdóms og íslam. Stríðið í Íran er framhald þess þjóðarmorðs. Rétt eins og stríðið í Úkraínu sem hófst á ofsóknum gegn rússneskumælandi íbúum landsins og grísk-kaþólskum trúarhefðum þeirra er nú fjármagnað einvörðungu af þegnum ESB.
Ef horft er yfir sögu Evrópu á á hún sér vissulega fortíð sem nýlenduveldi er byggði á kynþáttahyggju, en ekki verður séð að leiðtogalið hennar hafi í heild sinni litið lægra í þessu sólsetri aftansins sem nú blasir við. Enginn evrópskur leiðtogi hefur lagt orð til friðar í því stríði sem nú vofir yfir álfunni allri. Enginn evrópskur leiðtogi hefur lagt fram marktæk orð til sáttar í þessu stríði. Við sem erum þegnar þessara lýðskrumara göngum villt í þokunni eins og K. í þorpinu undir Höllinni þar sem herra West West greifi býr í ósýnilegum kastala sínum. Augljóst er að Evrópa er þetta þorp og West West greifi á sinn vopnabróðir í Washington. Ég sagði einu sinni við róttæka skoðanabræður mína í deilum um stjórnmál að ég liti fyrst á sjálfan mig sem Evrópubúa, svo sem Íslending. Það vakti þá nokkra hneykslun. Ég er enn sama sinnis, en ég hef haft augu til að horfa í Evrópupakka Þorgerðar og Kristínar og ég segi nei við honum. Hann geymir vopnabúr West West greifa.


