Fjar(vistar)kennsla úr sóttkvínni: fagurfræði raunverunnar

Á tíma pestarinnar er okkur kennurum gert að tala til nemanda okkar í gegnum internetið, sem er svolítið eins og að tala út í tómið. Ég átti eftir einn fræðslutíma sem átti að binda enda á umfjöllun okkar um Eros í myndlistinni, í goðsögunum, myndunum, hugmyndasögunni og samtímanum. Þetta ferðalag okkar hófst í Grikklandi fyrir 2400 árum og í síðasta tímanum fyrir sóttkví vorum við farin að tala um Eros í samtímanum út frá sálgreiningunni eins og hún er iðkuð af sálgreininum og heimspekingnum Umberto Galimberti. Það vantaði í raun bara endapunktinn, sem ég ætlaði að setja á þessa yfirferð með því að heimfæra hugmyndir sálgreinisins Jacques Lacans upp á samtímalistina, meðal annars með aðstoð ritgerðar eftir sálgreininn og rithöfundinn Massimo Recalcati. Allt fór í vaskinn og ég sat nemandalaus á skrifstofu minni og nemendur mínir úr Háskóla Íslands og Listaháskólanum sátu lokaðir hver í sínu horni. Úr vöndu var að ráða, og á endanum setti ég mig í hlutverk kennarans fyrir framan tölvuna eins og hún væri eitthvað allt annað. Þetta var þykjustuleikur, og úr honum varð þetta myndband sem ég sendi út í myrkrið síðastliðna nótt sem sendibréf úr sóttkvínni. Ég set það hér inn á vefsíðuna ef einhverjir fleiri  kynnu að hafa áhuga. Allar athugasemdar og fyrirspurnir eru velkomnarhér á hugrunir.com.

Til þess að sjá myndbandið þurfið þið að afrita þetta leiðarmerki og setja í leitarvél ykkar á tölvunni. Myndbandið tekur um það bil eina klukkustund og kallar því á svolitla þolinmæði:

https://1drv.ms/v/s!AjnHerssOtqOn-weU0RxNiE6zRgu5A?e=CVWV3Y

Höfundur: olgisl43

Ólafur Gíslason er sjálfstætt starfandi fræðimaður með listasögu og heimspeki sem sín helstu viðfangsefni. Hann á fjölbreyttan starfsferil sem kennari, blaðamaður, fararstjóri, fagmaður á listasafni, sýningarstjóri myndlistar, listgagnrýnandi o.fl. Hann sótti menntun sína til Svíþjóðar, Danmerkur og Ítalíu, og hefur Ítalía verið sérsvið hans í víðum skilningi. Hann er farsæll fjölskyldumaður, nýfluttur í Kópavoginn. Þessi vefsíða hefur að geyma texta hans og þýðingar, sem hann hefur einkum notað við kennslu í Listaháskólanum og Háskóla Íslands. Síðan spannar áhugasvið hans og ritsmíðar um myndlist, heimspeki og önnur áhugamál og er hugsuð sem opinn umræðuvettvangur.

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.