Hugrunir.com – Vefsíða Ólafs Gíslasonar með textum um listir, menningu og samfélag

Á þessari vefsíðu vildi ég opna aðgang að einhverju úrvali af textum mínum um listir, menningu og mannlíf fyrir þá sem hafa áhuga á slíku efni. Síðan þjónar ekki síst þeim tilgangi að geta vísað nemendum mínum í Listaháskólanum og öðru áhugafólki um listir á tilteknar greinar eða texta sem hafa oft birst í fátæklegum sýningarskrám eða fágætum og sjáldséðum bókum, sem erfitt er að nálgast. Um leið þjónar síðan þeim tilgangi að koma reiðu á textasafn mitt sem enn er í minni eigu, en stór hluti skrifa minna er dreifður um víðan völl og ekki í minni umsjá lengur. Ég er búinn að setja nokkra texta hér á þessa vefsíðu og mun halda því áfram eftir efnum og ástæðum. Í mínum fórum er líka talsvert af þýðingum á efni eftir erlenda höfunda, einkum um myndlist og heimspeki. Þá á ég talsvert safn af eigin textum á erlendum málum. Vonandi tekst mér að setja eitthvað af því efni hér inn. Lesendum er velkomið að gera athugasemdir við skrif mín á þessari heimasíðu, sem hugsanlega gæti líka orðið vettvangur einhverra umræðna. Þetta er nýr vettvangur fyrir mig, og ég geri mér ekki enn grein fyrir hvað úr þessu verður, né hvernig þetta muni virka. En væntanlegum lesendum óska ég góðrar skemmtunar með von um að vettvangurinn geti opnað fyrir ný skoðanaskipti.

SAMSUNG DIGITAL CAMERA
olg. Myndin er tekin í rústum forngrísku borgarinnar Pergamon í Tyrklandi fyrir nokkrum árum.

Höfundur: olgisl43

Ólafur Gíslason er sjálfstætt starfandi fræðimaður með listasögu og heimspeki sem sín helstu viðfangsefni. Hann á fjölbreyttan starfsferil sem kennari, blaðamaður, fararstjóri, fagmaður á listasafni, sýningarstjóri myndlistar, listgagnrýnandi o.fl. Hann sótti menntun sína til Svíþjóðar, Danmerkur og Ítalíu, og hefur Ítalía verið sérsvið hans í víðum skilningi. Hann er farsæll fjölskyldumaður, nýfluttur í Kópavoginn. Þessi vefsíða hefur að geyma texta hans og þýðingar, sem hann hefur einkum notað við kennslu í Listaháskólanum og Háskóla Íslands. Síðan spannar áhugasvið hans og ritsmíðar um myndlist, heimspeki og önnur áhugamál og er hugsuð sem opinn umræðuvettvangur.

Ein athugasemd við “Hugrunir.com – Vefsíða Ólafs Gíslasonar með textum um listir, menningu og samfélag”

  1. Athugið: hægt er að nota leitarvél á þessa vefsíðu fyrir efnisorð eins og höfunda, listamenn, hugtök o.fl. Leitarboxið er merkt „SEARCH“.

Lokað er fyrir athugasemdir.